Dagblaðið - 02.04.1976, Page 8

Dagblaðið - 02.04.1976, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 1976. ,/Við erum að borða útsœðið7/ 5,TIL 6 ARA FISKUR SEST VARLA LENGUR -rœtt við Auðun Auðunsson skipstjóra um óstandið ó miðunum ..Við erum að borða útsæðið," segir Auðunn Auðunsson skip- stjóri. Hvenær kemur hrunið? Það er víst ekki langt undan. Það sýnir vel, hversu ömur- legt ástandið er á miðunum, að nú hef ég ekki séð i neinum mæli 5—6 ára árganginn. Sá fiskur. sem mest er veitt af er frá pundi upp í hálft annað kfló. Þetta er hrikalega hátt hlutfall af smáfiski miðað við undanfarin ár. Ef tekið er saman, hve mikið við höfum látið útlendinga hafa, sést, að við höfum ekkert svigrúm. Ég er á öndverðum meiði við samningastefnuna. Miðað vrð að útlendingar geti afgreitt sig sjálfir á miðunum höfum við afhent þeim 169—184 þúsund tonn, sem samsvarar 54—59 skipum. Það er ekkert eftir handa okkur. Þá er rétt að athuga, að Danir veita Færeyingum styrki til veiðanna, sem nema 5 milljörð- um islenzkra króna. Það væru 27 milljarðar á íslandi miðað við að við erum miklu fjöl- mennari en Færeyingar. Svona er vel gert við færeyska fiski- menn, en annað er uppi a teningnum hjá okkur.” Bretar notfœra sér Fœreyjar Auðunn bendir á, að Bretar notfæri sér Færeyjar. Frá brezku herskipunum fara þyrlur 190 mílur til Færeyja og fá þar fyrirgreiðslu fyrir myndir af síðustu atburðum á íslandsmiðum. Myndunum er komið í flýti til Bretlands. og þessi hraði skiptir miklu í áróðursstríðinu. Auðunn segir, að Færeyingar ættu að minnsta kosti að veita okkur ., hlutleysi" en styðja ekki Breta. Við höfum einnig afsal- að til Færeyinga tíunda hluta af afla á islandsmiðum. „Undanþágusamningar nú gefa okkur enga von um að verða fjárhagslega sjálfstæðir í fyrirsjáanlegri framtíð,” segir Auðunn. Varðskipin svifasein „Miðað við þann afla, sem Bretar hafa fengið, tel ég, að Landhelgisgæzlan hafi farið með hroðaleg ósannindi, því að nær allt tímabilið taldi hún fólki trú um, að Bretum væri haldið frá veiðum,” segir Auðunn. „Togarar eru betri gæzluskip en varðskipin yfirleitt, eins og sannast á Baldri. Öll hin eru stýrisvana. Þau hafa tvær skrúfur og lítið stýri, sem ekki er aftan við skrúfurnar. .. Það er blekking, að hliðarskrúf- urnar komi að gagni, á loðnu- hringnótarskipum koma þær aðeins að gagni á ferð innan við 5 sjómílur. Ef fiskurinn, sem Bretar taka, 85 þús. tonn, fengi að vaxa í 2—3 ár, samsvaraði hann 300 þúsund tonnum. Við ættum að huga að aðferð- um Mintoffs á Möltu i land- helgisdeilunni, nota það að við höfum herstöðvar,” segir Auðunn. „Hér kann að vera um að tefla öryggismál annars vegar og lífshagsmuni hins vegar. Við verðum að velja lífið.” —HH Auðunn Auðunsson skipstjóri við eitt máiverka sinna, þar sem brotnar bára við klettaströnd. Ljósm. Bjarnleifur. ✓ Jónas Sigurðsson skóiastjóri við skerm sjónvarpstölvunnar, sem reiknar út stöðu, hraða og stefnu allra skipa i grenndinni. t DB-mynd Björgvin. FISKLEITARTÆKI I GANGI Á ÞURRU LANDI „Sigiingatækin verða í gangi og fiskileitartækin, sem sjó- mennirnir læra á, einnig. Þá gefst gestum og kostur á að sjá radarsamlíki í gangi,” sagði Jónas Sigurðsson, skólastjóri Stýri- mannaskólans, er hann sagði okkur frá skólakynningu Stýri- mannaskólans sem verður á morgun. laugardag kl. 2-5. A skólakvnningunni verða kennarar og nemendur til leiðbeiningar fyrir þá sem óska upplýsinga. Kynnt verður allt er lýtur að nami við skólann og réttindi að námi loknu. Kven- félagið Aldan sér um kaffi- veitingar í veitingasal hótel- skólans á 1. hæð í sjómannaskóla- húsinu. I Stýrimannaskólanum eru nú 180 nemendur í Reykjavík en auk þess eru 1. stigs deildir starf- ræktar á tsafirði, Neskaupstað og i Vestmannaeyjum. Nám til fiski- mannaréttinda tekur 2 vetur, en nám í farmannadeild tekur 3 vetur. Áður verða nemendur að hafa gagnfræðapróf og 24 mánaða siglingatíma. Þeir sem ekki hafa gagnfræðapróf fyrir geta sest í undirbúningsdeild sem tekur 7 mánuði. Ætli menn ser að öðlast rett til skipstjórnar á varðskipum rikisins verða þeir að nema fjórða veturinn. ASt. Hofna samningi BSRB Hóskóíamenn viljo meiri verkfallsrétt Háskólamenn vilja mun víðtækari verkfallsrétt en felst í samningi Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og fjár- málaráðherra. Þeir finna samningnum ýmislegt annað til foráttu og hafa hafnað honum. Bandalag háskólamanna fettir fingur út í, að stór hluti lögfræðinga og ' viðskipta- fræðinga, sem starfar hjá hinu opinbera, mundi ekki hafa verkfallsrétt samkvæmt samningnum. Þetta á til dæmis við um deildarstjóra, forstjóra og staðgengla þeirra, dómara, starfsmenn forsætis- og utan- ríkisráðuneytis og flpiri. Bandalagið segir, að með þessu og öðrum ákvæðum samningsins hefðu heil felög innan bandalagsins nánast verið án verkfallsréttinda.' Háskólamenn mótmæla einnig, að samningstími skuli verða lögbundinn, og gert ráð fyrir, að hann verði tvö ár. Slíkt telja háskólamenn fráleitt í landi, þar sem verðbólga er 40- 50 af hundraði á ári. Teija þeir að tryggja þurfi einhvern endurskoðunarrétt á samnings- tímabilinu. Slíkan endur- skoðunarétt hafi samninga- réttarnefnd ríkisins boðið en fallið frá því tilboði á síðustu stundu. Bandalag háskólamanna mótmælir einnig skerðingu á lífeyrissjóði opinberra starfs- manna, sem fyrirhuguð er sam- kvæmt samningi BSRB. Há- skólamenn telja einnig nauðsynlegt að endurskoða lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Háskólamenn hafa frá þvi í nóvember átt viðræður við samningsréttarnefnd ríkisins en upp úr viðræðunum slitnaði Þeir vilja frekari viðræður -HH. Tilbreyting fyrir krakkana Krökkum finnst það mjög góð tilbreyting að fara á skemmtun þar sem ýmsir koma fram heldur en að fara alltaf á þrjú sýningar kýikmyndahúsanna, sagði Jóhanna Kristjónsdóttir for- maður Félags einstæðra foreldra. En félagið gengst fyrir barna- skemmtun í Austurbæjarbíói næstkomandi laugardag kl. 3. Allur ágóði af skemmtuninni rennur i minn ingarsjóð félagsins. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs- ins á að nota fé minningarsjóðs til þess að búa dagvistunarstofnanir. sem rísa munu í framtíðinni á vegum félagsins, húsmunum og tækjum og þvi sem þarf. Það verður margt til skemmt- unar bæði leikþættir, sögur verða sagðar, ballett dansaður og fim- leikasýning og almennur söngur með gítarleik. Einnig koma þeir Halli og Laddi fram. -A.Bj. BÚTASALA - RÝMINGARSALA Seljum I dag og nœstu daga ntikið úrval af dönskum, enskum og þýxkum teppum og teppabútum, með miklum afslœtti. Einnig ullarmottur og ullarband ó mjög vœgu verði AXMINSTER . . annað ekki Grensósvegi 8 — Sími 30676

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.