Dagblaðið - 03.05.1976, Blaðsíða 13
DACBl.AOIt). MANl'DACl'lí :i MAI 1ÍI7(>.
13
1
staka ánæg.ju af að ljúga að
blaðamönnum, som hann álítur
idjóta upp til hópa. Það má
geta þess að hann gaf heilt
viðtal út á það að nafnið á næst
nýjustu mynd sinni væri nafn á
sænskum leikara, hr.
Amarcord. Nú, en fyrra atriðið
er um kynlíf og afstöðu
Rómar/Fellini til þess. Atriðið
byrjar á Spænsku þrepunum
um hábjartan dag. Þar eru
hippar i frjálslegum ásta-
leikjum og öll myndhreyfing er
líðandi en persónurnar mikið
kyrrar. Allt mjög 'afslappað og
blátt áfram. Hvorki Róm eða
Fellini finna til hinnar minnstu
blygðunar eða feimni. Kynlíf er
ljúft og fagurt og kannski
megrandi ef það er stundað af
ástarþörf, ekki kynlífsþörf. Þá
er klippt yfir á hóruhús
stríðsáranna og allt í einu er
myndavélin miklu kyrrari og
atriðið byggt upp á óþægilegum
og hröðum klippum og
hórurnar eru á fleygiferð. Allt
mjög stressað' og hörkulegt.
Atriðið líkist einna helst
götuóeirðum. Hórurnar eru
feitar og viðbjóðslegar Þær eru
bara að vinna sér inn peninga
og hafa enga tilfinningu. Og
allflestir eru feimnir og
blygðast sín. Ekki batnar það
Tískusýning með allgeðveikilegu yfirbragði. Þessi glans væri nú
eitthvað fvrir poppstjörnur dagsins í dag.
götum og Róm og Fellini
skammast sín. Seinna atriðið er
tískusýning fyrir kirkjuslektið
sem situr í finum stólum með
kardinála í hásæti en sá er
byltingarkenndur mjög, hann
er með kringlótt sólgleraugu.
Prinsessan er persónu-
gervingur Fellinis en hún
heldur tiskusýninguna. Henni
er afneitað af kirkjunni líkt og
Fellini og hún gerir það sem
hún getur til að vera tekin í
sátt. En hún vill breyta
kirkjunni vegna þess að hún er
trúrækin. En það heyrist
setning þegar sýningin hefst:
þegar farið er í yfirstéttar-
vændishús. Að visu líkist það
ekki eins mikið götuóeirðum en
flestir eru vandræðalegir og
einn hlær fíflalega. Vændis-
húsin eru falin i þröngum
ÞORSTEINN
IjLFAR
BJÖRNSSON
Kvik
myndir
1
ii
iBIAÐlB
er smáauglýsingabiaðið
Færeyjaferö er
oðruvisi
Fjöldi víðförulla íslendinga, sem heimsótt
hafa Færeyjar, ferðast um eyjarnar og
kynnst fólkinu, eru á einu máli um aö ferð
til Færeyja sé öðruvísi en aðrar utanlands-
ferðir. Þeir eru lika á einu máli um
að Færeyjaferð sé ógleymanlegt ævintýri.
Þaö sem gerir Færeyjaferð aö ævintýri,
er hin mikla náttúrufegurð, áSamt
margbreytilegum möguleikum á skemmti-
og skoðunarferðum um eyjarnar, og síðast
en ekki síst hið vingjarnlega viðmót fólks-
ins. Ef þú ert einhvers staðar velkominn
erlendis, þá er það í Færeyjum.
Færeyjaferð er skemmtileg fjölskylduferð,
og hún er líkaogekki síður tilvalin ferð fyrir
starfshópa og félagasamtök. Og nú er
i fyrsta sinn hægt að fljúga til útlanda frá
öðrum stað en suðvesturhorni landsins.
Við fljúgum til Færeyja bæði frá Reykjavik
og Egilsstöðum.
Færeyjaferð er ódýrasta utanlandsferð
sem völ er á.
Félög meö beint flug frá Reykjavik og Egilsstöðum
flugfélag LOFTLEIDIfí
/SLAJVDS
Róm vorra daga (1972). Fólk hefur sér það ennþá helst til dundurs
aðsnæða milli hvílubragðanna.
„Heimurinn verður að laga sig
eftir kirkjunni en ekki kirkjan
eftir heiminum.” Og það er
flett ofan af sýndarmennsku
kirkjunnar og áhorfandinn er
ekki látinn vera í neinum vafa
um að kirkjan er bara sýning og
því miður eru margir betri í
„Showbusiness” en hún.
Persónulega verð ég að segja "að
ég mundi heldur fara í kirkju
hjá Fellini þar sem prestar
gengju í búningum með
blikkandi neonljósum heldur
en sjálfa Péturskirkjuna í Róm,
þar sem konur mega ekki vera
berhöfðaðar eða með bera
handleggi.
Að lokum vil ég hvetja alla
kvikmyndaunnendur til að láta
þessa mynd ekki framhjá sér
fara. Vafasamt er hversu lengi
hún kemur til með að ganga,
þar sem ég hef grun um að hinn
venjulegi sjónvarpsáhorfandi,
sem fer í bíó, vilji heldur láta
mata sig og nenni þar af leið-
andi ekki að hugsa um
myndina, og hún fái því fljót-
lega dræma aðsókn. Vonandi er
ég ekki sannspár hvað þetta
snertir.
tískuverslun
fyrir börn
m
Tískufatnaöur
stelpur og stráka
(áöur Kastalinn)
TKðFfie
BANKASTRÆTI, SlMI 2 83 50