Dagblaðið - 03.05.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 03.05.1976, Blaðsíða 15
DA(iBLAi)li). MANUMCUR 3. MAÍ 1976. 15 íarki Vals og boltinn var á leið yfir þegar Bergsveinn Alfonsson þarna f.vlgist hann spenntur með. DB-mynd Bjarnleifur. Framarar ril hindrun 2-1 og þrír leikmenn Fram bókaðir Guðmundur Þorbjörnsson, hinn efnilegi sóknarmaður Vals skoraði bæði mörk liðs síns, hið fyrra með fallegum skalla, hið síðara með góðu skoti af stuttu færi. Markheppinn, drengurinn Guðmundur skoraði fyrra mark ;itt á 20. mínútu. — Kristinn ijörnsson gaf góðan bolta fyrir narkið og Guðmundur skallaði ram hjá Þorbergi í marki Fram. rram náði að jafna fyrir hálfleik — Bergsveinn Alfonsson varði á ínu — en boltinn var á leið yfir. Vlarteinn tók vítið — reyndar laröi Sigurður fyrri spyrnu hans — en hafði hreyft sig áður. Vlarteini urðu ekki á nein mistök síðara skiptið. Það kom strax í ljós í síðari íálfleik hvort liðið var sterkara — Valur yfirspilaði Fram og aunar má segja að Fram hafi iloppið vel með aðeins eitt tap- nark áður en yfir lauk. Eins og iður sagði skoraði Guðmundur porbjörnsson síðara mark Vals neð góðu skoti af stuttu færi sem Þorbergur átti ekki möguleika á tð verja. Fram skapaði sér ekkert jmtalsvert tækifæri það sem eftir /ar leiksins. Hins vegar átti Valur jgæt tækifæri er ekki nýttust. Staðan í mótinu er nú: Valur 4 3 0 1 10-2 8 Fram 4 2 11 9-4 6 Víkingur 3 12 0 7-2 5 Þróttur 3 10 2 2-6 2 Armann 3 10 1 2-10 2 KR 3 0 12 1-61 Næsti leikur verður milli KR og Ármanns í kvöld og hefst hann kl. 19- h. halls. Okkarbeztí leíkur í vor — sagði Mike Ferguson, þjólfari Skagamanna, um leik í A og Hauka ó Skaganum í Litlu bikarkeppninni „Ég er mjög ánægður með leik minna manna gegn Haukum. Við náðum okkar bezta leik það sem af er vorinu,” sagði Mike Fergu son, þjálfari Skagamanna, eftir leik íA og Hauka í Litlu bikar- keppninni á laugardag þar sem Skagamenn unnu 3-0 og hlutu sinn fyrsta sigur í keppninni. Þar með bundu þeir enda á sigur- göngu 2. deildarliðs Hauka, sem áður hafði sigrað bikarmeist- ara ÍBK og eins sigurvegara 2. deildar frá síðasta sumri —UBK. Sigur Skagamanna var aldrei í hættu og þrátt fyrir góða spretti Hauka í byrjun þá mættu þeir einfaldlega ofurjörlum sínum. Matthías Hallgrímsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks og í þeim síðari bætti Matthías við öðru marki og hið þriðja skoraði Teitur Þórðarson. Enn eru Skaga- menn ekki með alla sína menn frá í fyrra, er liðið var svo sigur- sælt. Þeir Jón Alfreðsson og Jó- hannes Guðjónsson voru ekki með og eins lék Arni Sveinsson ekki. „Mér lízt vel á sumarið,” sagði Ferguson ennfremur — „ekki er að efa að 1. deildin verður erfið og jöfn. Skagamenn koma til með að mæta sterkir í deiidina. Leikir okkar hingað til hafa verið talsvert misjafnir og eins og kannski er við að búast. Stundum höfum við náð ágætum leikjum en síðan dottið niður á stig meðal- mennskunnar og gott betur. Þetta tel ég ekki óeðlilegt eins og að- stæður hafa verið í sumum leikja okkar — hreint hroðalegar. Annars verð ég að segja eins og er — hér á íslandi eru margir góðir einstaklingar, betri en ég átti von á fyrirfram. Ég get ekki stillt mig um að minnast á ungan ieikmann hér á Skaganum, Pétur Pétursson. Hann er bezti mið- vallarspilari sem ég hef séð á íslandi hingað til. Hann verður góður drengurinn sá, það er ef hann heldur vel á spilunum. Hins vegar eru liðin í deildinni mjög jöfn og svipuð að styrkieika eins og ég átti von á. Þetta gefur því fyrirheit um gott sumar.” h. halls. Staðan í Litlu bikarkeppninni er nú þannig. Ein umferð er eftir Breiðablik hefur þó lokið sínum leikjum: Breiðablik 4 2 11 7-6 5 Haukar 3 2 0 1 4-5 4 lA 3 1115-33 ÍBK 3 1 0 2 4-5 2 FH 3 0 2 1 2-3 2 Þríbœtti heimsmetið íkringlu! Nýi heimsmethafinn í kringlu- kastinu, Mac Wilkins, bætti nýsett heimsmet sitt i kringlu- kastinu á móti í San Jose í Kaii- forníu í 70.86 metra á laugar- daginn. Hann bætti eldra met sitt — 69.16 metra, sett fyrir átta dög- um — í öllum þremur fyrstu köstum sínum á mótinu í San Jose. Wilkins, sem er 25 ára, er nú taiinn liklegur sigurvegari á Olympíuleikunum i Montreal í sumar — og hann sagði eftir heimsmetin á iaugardag, að hann byggist við að kasta um 72 metra í sumar. Góð byrjun FH síðoi allt í handaskolum - FH og Breiðablik skildu jöf n 1-1 íLitlu bikarkeppninni „Ég er alls ekki ánægður með frammistöðu strákanna,” sagði Ian Ure, þjálfari FH, eftir leik liðsins við Breiðablik í Litlu bikarkeppninni á laugardag. FH og Breiðablik skildu jöfn 1-1. FH-ingar voru fyrri til að skora — Leifur Helgason var þar að verki. Hann fékk sendingu í gegn um vörn Breiðabliks og skoraði með góðu skoti. Fram að markinu voru FH-ingar mun frískari og hreinlega yfirspiluðu Blikana. Hins vegar virtist allt loft úr Hafnfirðingum eftir markið — þeir hreinlega hættu að spila. Við það náðu Blikarnir frumkvæðinu og Gísli Sigurðsson jafnaði fyrir þá úr aukaspyrnu. „FH-ingar byrjuðu mjög vel — spiluðu skínandi knattspyrnu,” — sagfði Ure — „og fram að markinu höfðu þeir frumkvæðið en misstu allt spil niður eftir það. Með þetta er ég alls ekki ánægður. Lið verður að spila knattspyrnu í 90 mínútur ef það ætlar að vinna leik. Þetta verða strákarnir að skilja. Það býr margt í liði FH en það er eins og strákarnir vilji alltaf gera erfiða hluti — alltaf, og auðvitað tekst það ekki alltaf. Ef lið ætlar að skila árangri verða leikmenn þess að skilja að i knattspyrnu er það hið einfalda sem gildir. Að gera einfalda hluti mestan part leiksins — svo sem að gefa á samherja við hliðina á þér. Láta þannig boltann ganga manna á milli — það skilar árangri. Að gera erfiða hluti — það er aðeins á færi hinna allra beztu. Þegar strákarnir hafa skilið þetta bind ég miklar vonir við sumarið FH hefur möguleikana og ef við höfum lukkudísirnar með okkur þá tel ég að við ættum að eygja möguleika á einhverju efstu sætanna. Þó verð ég að sgja að mér virðist Valur hafa á að skipa bezta liðinu eins og er en ekki þar með sagt að svo verði þegar út í Islandsmótið er komið.” h. halls. Bommi biður Þjálfa urr. ráð... £g ^iíil Þú átl við vandamál að stríða. *--, En mundu, fyrsl og síðast. að þú crt fæddtm fótbollamáóur^_________________________■—x eir.n þeirra beztu. Eitt af stórféldgum Evrópu vill kattpa þig, Bommi. Kyrii árt hcfði ég sagt nei... ^ r Nú segi ég. Taktu boðinu. Þú ert of góður v leikmaður til að fcsfast hjá einu félagi. Þú - skuldar sjálfum þér breytingu: Markvörður Kastrup, Finn Esmann, siær knöttinn af höfði Atla Þórs Héðinssonar í undan- úrsiitaieiknum í dönsku bikar- keppninni í síðustu viku. Holbæk sigraði með 2—0 á Idretsparken og Atli Þór skoraði fyrra mark liðsins. Fyrsta stig Holbœk í Álaborg Þetta er í fyrsta skipti síðan Holbæk komst í 1. deild fyrir fjór- um árum, að félagið hlýtur stig í Alaborg, sagði Atii Þór Héðins- son, þegar Dagblaðið ræddi við hann í gær, en fyrr um daginn hafði hann leikið með Holbæk gegn AaB í Alaborg. Jafntefli varð 1—1. Ég fékk það hlutverk í leiknum að reyna að draga danska lands- liðsmiðvörðinn Munk Jensen úr vörninni — en þetta er geysilega sterkur leikmaður. AaB skoraði á undari — eftir um 15 mín., en Henrik Tune jafnaði fyrir Holbæk, þegar stundarfjóðr- ungur var af síðari hálfleik. Félagar mínir voru mjög ánægðir að hafa hlotið stig í Alaborg — það hafði ekki tekizt fyrr, sagði Atli Þór ennfremur. Mér fellur mjög vel að leika með Holbæk-liðinu og þetta gengur betur hjá mér með hverjum leik. Það er ekki annað að heyra en ég hafi tryggt mér fast sæti í 1. deiidariiðinu. A þriðjudag leikur Holbæk á heimavelli gegn Vanlöse — en eftir fjóra leiki var Holbæk með fimm stig, einn sigur og þrjú jafntefli. Fékk að hvíla eftir 56 leiki! — Jóhannes lék ekki með Celtic d laugardag Ég lék ekki með gegn Ayr á laugardaginn. Fékk slæmt spark í ökklann í leiknum gegn Hibernian á dögunum og það komst blóð í liðinnsagði Jóhanne$ Eðvaldsson, þegar Dagblaðið ræddi við hann í morgun. En ég reikna fastlega með að leika gegn Hearts í kvöld. Það er síðasti leikur okkar hjá Celtie í deildinni á keppnistímabilinu — og það getur verið að ég komi heim í stutta heimsókn á mið- vikudaginn. Fer svo út aftur til að leika gegn Manch.Utd. Celtie sigraði Ayr 5—3 á úti- veili og þeir Kenn.v Dalglish, tvö , Andy Ritchie, Bobby Lennox og McClusk.v, víti, skoruðu mörk Celtic. Jóhannes lék gegn Rangers sl. mánudag, þó hann væri meiddur i ökklanum, en fékk að hvíla sig á laugardaginn. Kominn tími til, því Jóhannes hefur leikið 56 leiki á leiktíma- bilinu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.