Dagblaðið - 08.06.1976, Side 7
MALLORCA
DAGFLUG ÁSUNNUDÖGUM
VERÐ FRA KR. 39.700,-
Nú er Mallorka fjölsóttasta ferðamanna-
paradís Evrópu. Meira en hundrað
baðstrendur víðsvegar á ströndum hins
undur fagra eylands. Náttúrufegurðin er
stórbrotin há fjöll, þröngir firðir, bað-
strendur með mjúkum sandi og hamra-
borgir og klettar. Glaðvör höfuðborg
fögur og ekta spönsk í útliti og raun.
Mallorka er sannkölluð paradís, þangað
vilja allir ólmir sem eitt sinn hafa þangað
komizt.
Islenzk skrifstofa Sunnu veitir farþegum
öryggi og ómetanlega þjónustu. Þar er
sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið, eins
og fólk vill hafa það, sannkölluð paradís,
vetur, sumar, vor og haust.
Sunna býður mikið úrval af góðum
hótelum, og íbúðum í sérflokki svo sem
TRIANON, ROYAL MAGALUF, PORTO-
NOVA, HOTEL BARBADOS,
GUADALUPE, HELIOS og LANCAST-
ER:
• Nokur sæti laus í 2ja og 3ja vikna ferðir
eftirtalda daga:
13. júní,
4. og 25. júlí,
1. ágúst
12., 19 og 26. sept.
3, og 17. okt.
NÝJUNG: BARNAGÆZLA
COSTA DEL SOL
DAGFLUG A LAUGARDÖGUM.
Verð frá kr. 49.800.-
Frábær aðstaða til hvíldar og skemmtunar
í baðstrandabænum Torremolinos, vinsæl-
ustu ferðamannaborginni á Costa del Sol,
besta baðströnd suður Spánar. Sunna
býður upp á hótel og íbúðir í sérflokki
með loftkældum herbergum og nútíma
þægindum sem koma sér vel í sumar-
hitanum. Góð aðstaða til útivistar, sólbaðs
og sunds við laugar og strönd.
Torremolinos er miðstöð skemmtana-
lífsins, verzlunar og viðskipta á Costa del
Sol. Staður þar sem dagarnir, kvöldin og
nóttin reynast allt of stutt til þess að njóta
þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
íslenzkir starfsmenn Sunnu i Torre-
molinos efna til fjölbreytilegra skemmti-
og skoðunarferða um ströndina fögru,
upp til fjallahéraðanna og Granada og
sigla yfir Gíbraltarsund til heimsóknar í
frábrugðinn heim og framandi þjóðlíf í
Marokko.
Fáein sæti laus í 2ja og 3ja vikna ferðir:
19. júní
10. og 31. júlí
14. og 21. ágúst
4., 11. 18. og 25. sept.
2. og 16. okt.
KAUPMANNAHÖFN
1 OG 2JA VIKNA FERÐIR
VERÐ FRA KR. 27.500,- (FLUGFAR OG
GISTIKOSTNAÐUR).
Ödýrar skemmtiferðir til hinnar glaðværu
og sumarfögru borgar. Skrifstofa Sunnu í
Kaupmannahöfn i skipulggur skemmti- og
skoðunarferðir. Hægt er að velja um dvöl
á einkaheimilum, hótelum og ' sumar-
húsum v/ströndina.
RÍNARLANDAFERDIR 0G
SUMAR Í TÝRÓL
Flogið til Kaupmannahafnar. Frá Höfn er
ekið með þægilegum langferðabíl um
hinar fögur borgir og skógivöxnu sveitir
Danmerkur og Þýzkalands. Stanzað í
Hamborg, Amersterdam og Bríissel en
lengst dvalið við hina fögru og sögufrægu
Rín. Þar ríkir líf og fjör, glaðværð og
dans, sem engu er líkt. Siglt . er með
skemmtiskipum um Rínarfljót framhjá
Loreley og fleiri frægum stöðum. Farið
er í ökuferðir um sveitir og héruð Rínar-
byggða, þar sem náttúrufegurð er mikil.
Síðustu daga ferðarinnar er dvalið í Kaup-
mannahöfn, farið í stuttar skemmti- og
skoðunarferðir, Tívolí, Lorrey, skroppið
yfir til Svíþjóðar og ótal margt annað
gert.
NORÐURLANDAFERÐIR
Ekið frá Kaupmannahöfn um Svíþjóð,
Osló, Þelamörk, og norsku fjarða-
byggðirnar, Harðangur og Sogn.
Dvalið i Kaupmannahöfn í ferðalok.
COSTA BRAVA
SUNNUDAGSFLUG.
VERÐ FRÁ KR. 54.800 (3ja vikna ferðir)
SÉRSTAKLEGA ÓDÝRAR
FJÖLSKYLDUFERÐIR M/DVÖL I
ÍBUÐUM.
Miðjarðarhafsströnd Spánar, frá
stórborginni Barcelona að frönsku landa-
mærunum er rómuð fyrir náttúrufegurð,
ljúfar litlar baðstrendur, ósviknar ekta
spánskar byggðir, fiskimannabæi og
baðstrandarlíf. Lloret de Mar er af
flestum talinn einn fegursti staðurinn á
þessum slóðum. Lífsglaður baðstrandar-
bær þar sem Sunna býður upp á beztu
íbúðir sem til eru og hótel í mismunandi
verðflokkum.
tslenzkir starfsmenn Sunnu í Lloret de
Mar skipuleggja skemmti- og skoðunar-
ferðir á glaðværum kvöldstundum í þjóð-
legar grísaveislur, í næturklúbba og
hlöðuböll. Á sólfögrum sumardögum er
farið í skemmtisiglingar með ströndinni
fögru, ekið úm byggðir til Frakklands og
suður til Barcelona, stærstu borgar við
Miðjarðarhaf, eða til nálægra Pyrenea-
fjalla og dvergríkisins Andorra, þar sem
allar lúxusvörur eru tollfrjálsar, eins og í
Hong-Kong og á Kanaríeyjum.
Nokkur sæti laus í eftirtaldar ferðir:
13. júní .
4. og 25. júlí
15. ágúst
5. og 26. sept.
og leikskóli fyrir börn Sunnufarþega undir stjórn íslenzkrar f óstru
ó C0STA DEL SOL og COSTA BRAVA
ÞVÍ ER SLEGIÐ FÖSTU, HVERGIMEIRA FYRIR FERÐAPENINGANA 0G DAGFLUG AÐ AUKI
■lllliliMHHIHIiHilíHHiliWilil'IHiHI
I
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 8. JtJNÍ 1976.
Nú dregur til úrslita:
Þýðingarmestv forkosningar
til þessa í Bandaríkjunum
Ford Bandaríkjaforseti og
Jimmy Carter börðust hat-
rammlega í kosningabaráttunni
í Ohio í gær, kvöldið fyrir for-
kosningarnar sem draga kunna
til úrslita um það, hver verður
forsetaframbjóðandi, bæði hjá
demókrötum og repúblikönum.
Báðir höfðu ákveðið að beita
kröftum sínum mest í Ohio-
fylki þar eð þeir eru hvorugir
taldir geta farið með sigur af
hólmi í Kaliforníu. Vilja þeir
þá reyna að sigra með sem
mestum mun mótframbjóðend-
ur sina í Ohio og New Jersey til
þess að tryggja sér sem flesta
kjörmenn í þessum fjölmennu
fylkjum og má þá telja víst
hverjir verða frambjóðendurn-
ir við forsetakjörið sjálft, sem
fram fer í nóvember.
AIls eru kjörmennirnir 54(1
fyrir demókrata og 331 fyrir
repúblikana.
C0NC0RDEí
ERFIÐLEIKUM
Hljóðfrá Concorde þota frá væru menn alveg vissir í sinni
flugfélaginu Air France, varð sök, var ekki talið rétt að hætta
að snúa við á. flugi sinu til á neitt og urðu farþegarnir
Washington frá París vegna sem voru 74 að tölu, að skipta
þess, að sprunga mun hafa um vél á De Gaulle flugvelli
komið í einn gluggann í flug- Varð af þessu eins klukku-
stjórnarklefanum. Þótt ekki tima töf fyrir fólkið.
Þar eð Carter er talinn tapa forkosningunum í Kalifornlu hefur
hann einbeitt sér að Ohio og New Jersey-fylkjum í kosningabarátt-
unni að undanförnu. Hann er nú talinn geta tryggt sér nægilega
marga kjörmenn til þess að hljóta útncfningu á flokksþingi demó-
krata í fyrstu umferð.
Ford Bandarikjaforseti hefur
barizt af mikilli hörku fyrir þvi
að hljóta útnefningu flokks
sins i forsetakjöri. Reagan, sem
verið hefur heizti keppinautur
hans að undanförnu, hefur
gengið heldur erfiðlega síðustu
vikur, en þó er hann talinn
vinna öruggan sigur í Kali-
forníu.