Dagblaðið - 08.06.1976, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 8. JUNl 1976. .
Söltuð grósleppuhrogn
Kaupum söltuð grásleppuhrogn hæsta
verði.
Kynnið yður okkar skilmála áður en
þér seljið annars staðar.
Höfum 30 ára reynslu í sölu grá-
sleppuhrogna.
Hafið samband við Sverri Þóroddsson
eða Friðrik Björnsson.
Þóroddur E. Jónsson
Tryggvagötu 10 — Box 611 — Sími 11747.
Kvenskór
Verðkr. 3.570.-
Litir: Brúnt — svart
(GERVIEFNI)
Laugavegi 59 sími 16850.
Miðbæjarmarkaði —sími 19494.
SKERUM SVAMPINN alveg eins og þér óskió.
svamp, mjúkan svamp, lóttan svamp eóa þungan.
líka, ef þér óskiö -og þér sparió stórfé.
DUGGUVOGI 8 SÍMI 8
/■
3. skoðanakönnun Dagblaðsins: Finnst þér,
að bandaríska herliðið eigi að vera áf ram á
Keflavikurflugvelli?
„Þeir gera ekkert
af sér, greyin"
„Já, og láta þá borga nógu mikið fyrir það. “(Kona
á Reykjavíkursvœðinu).
„Ég er því fylgjandi, að liðið sé hér, þótt það sé
gagnslítið fyrir okkur. “(Karl á Akureyri).
„Ég skrifaði undir hjá Vörðu landi en hef skipt um
skoðun síðan. “(Karl á Reykjavíkursvœðinu).
„Það hefur ekkert hér að gera eins og nú er. Þeir
hjálpa okkur ekki, gagnstœtt því, sem ég hefði
vœnzt.“ (Kona á Akranesi).
„Það er verst, að hér skuli þurfa að vera erlent
herlið.“ (Kona í sveit).
„Það er svo sem gott að hafa þá, ef einhverjir eiga
að vera.“ (Kona á ísafirði).
„Ef herinn fer, þá koma Rússarnir og þá býð ég
ekki í ástandið.'“ (Kona á Reykjavíkursvœðinu).
„Björgunarmenn varnarliðsins hafa bjargað fjölda-
mörgum íslenzkummannslífum. Þeir hafa yfir að ráða
útbúnaði til þess, sem við höfum ekki efni á.“(Kona á
Reykjavíkursvœðinu).
„Ef við erum í NATO, verðum við að láta eitthvað í
té.“ (Karl á Reykjavíkursvœðinu).
„Þeir gera ekkert af sér þarna, greyin, veita okkur
bara öryggi.“ (Kona á Reykjavíkursvœðinu).
„Ég sé ekki, að við höfum nokkurn skapaðan hlut
að gera við Ameríkana.“ (Kona í Ytri-Njarðvíkum).
Þetta eru nokkur dæmi um
svör fólks í skoðanakönnun
Dagblaðsins um afstöðu til
varnarliðsins. . Spurt var:
Finnst þér, að bandaríska
nerliðið eigi að vera áfram á
Keflavíkurflugvelli?
Hringt var í 300 manns og
voru 150 karlar og 150 konur,
helmingur á Reykjavíkur-
svæðinu og helmingur úti á
landi. Hringt var í númer á
ákveðnum stöðum i opnu í
símaskránni. Slík könnun á að
sýna afstöðu fólks, svo að ekki
skakki nema nokkrum pró-
sentum.
Álíka margir
með og móti
Úrslitin urðu, að mjög
svipaður fjöldi var með og móti
varnarliðinu. Stuðningsmenn
þess mörðu það, svo að munaði
tveimur af hundraði en það
nægir að okkar dómi ekki til að
fullyrða megi, að þeir séu í
meirihluta. Hins vegar er óhætt
að slá því föstu, að litlu muni á
fylgi stuðningsmanna og and-
stæðinga herstöðvarinnar,
þegar á landið allt er litið.
Stuðningur við varnarliðið
var lítið eitt meiri úti á landi en
á Reykjavíkursvæðinu. Hlut-
föllin voru nær alveg eins hjá
konum og körlum, en eins og
oft vill verða í skoðana-
könnunum voru mun fleiri
konur óákveðnar.
Stuðningur við varnar-
liðið hefur minnkað
Niðurstöður þessarar
skoðanakönnunar má bera
saman við niðurstöður kannana
Vísis, sem gerðar voru fyrrum
með svipuðum hætti og
kannanir Dagblaðsins nú. I ljós
kemur, að mun fleiri voru áður
fyrr fylgjandi dvöl bandaríska
herliðsins. I könnun Vísis um
varnarliðið árið 1968 voru til
dæmis 57 af hundraði með og
33 af hundraði á móti. 1 könnun
Vísis árið 1970 voru 40 af
hundraði með og 33 af
hundraði á móti og í könnun
Vísis árið 1971 voru 53 af
hundraði með og 26,5 af
hundraði á móti. Eftir það
minnkaði munurinn nokkuð en
þó fór aldrei svo, að augljós
meirihluti væri ekki fylgjandi
áframhaldandi dvöl varnar-
liðsins hér.
Niðurstöður þessarar
könnunar Dagblaðsins eru því
merkilegar, því að þær eru
hinar fyrstu í skoðanakönnun,
sem nær til alls landsins og
mark er á takandi, þar sem ekki
er greinilegur meirihluti fylgj-
andi dvöl varnarliðsins.
Ótti við Rússa
Ekki þarf að fara í grafgötur
um, að áhrifa landhelgis-
málsins gætir mjög í þessum
úrslitum. I vaxandi mæli voru
landsmenn ósáttir við varnar-
liðið, sem hafðist ekki að,
meðan Bretar beittu okkur her-
valdi.
Annars gætti óttans við
Rússana verulega f athuga-
semdum margra. Fólk sagði
sem svo, að færi bandarfski
herinn mundu Sovétmenn brátt
koma.
Nokkrir tóku fram að iáta
ætti Bandaríkjamenn borga
fyrir aðstöðuna hér. Þá gætu
þeir verið.
Andstæðingar hersins tóku
margir fram, að hann hefði
aldrei átt að koma eða vera
farinn fyrir löngu“ og sitthvað f
þeim dúr.
Nokkur brögð voru að því, að
fólk segðist nú vera orðið and-
A f immtudag veröur dregiö i B. f lokki.
9.450 vinningar aö fjárhæö 1S3.930.ooo.oo,
Á morgun er siöasti endurnýjunardagurinn.
6. flokkur:
9 á 1.000.000 kr. 9.000.000 kr.
9 - 500.000 — 4.500.000 —
9 - 200.000 — 1.800.000 —
342 - 50.000 — 17.100.000 —
9.063 - 10.000 — 90.630.000 —
9.432 123.030.000 kr.
Aukavinningar:
10 á 50.000 kr. 900.000 —
9.450 123.930.000.00
k J