Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.07.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 02.07.1976, Qupperneq 8
8 r DAGBLAEIÐ — FÖSTUDAGUR 2. JULl 1976. Verkfall verkf rœðinga borgarinnar: Hvorugur oðilinn viss um lögmœti verkfallsins „Jæja, piltar, svona kemur þetta til með að ganga næstu vikur. Og ef þið ætlið að reyna að stöðva þetta er til 160 manna lögreglulið hér i borginni." Þetta segir Kristinn Magnússon verkfræðingur að séu orð sem Magnús Öskarsson starfs- mannastjóri borgarinnar viðhafði á skrifstofu byggingar- fulltrúa síðastliðinn miðviku- dag. „Við erum stöðugt að slaka á okkar kröfurn," sagði Gunnar H. Gunnarsson formaður samninganefndar verk- fræðinga hjá Reykjavíkurborg. Kvað hann siðustu kröfu þeirra hljóða upp á 11% hækkun í fyrst áfanga, 12% i næsta og 13% í þeim þriðja. Gagntilboð borgarinnar væri 6%, 8% og 6% Þetta sagði Magnús Óskars- son hins vegar að væri rangt farið með. Taldi Gunnar að borgin hefði engan samningsvilja sýnt. Til dæmis hefðu þeir til að byrja með boðið hækkun frá fyrsta marz en nú neituðu þeir að greiða aftur í tímann. Gunnar kvað verkfræðinga hafa farið í 2 stutt verkföll, annað siðast í maí og hitt f byrjun júní, hefðu þau staðið i 2 daga. A fimmtudag 24.6. hófst síðan verkfall hjá 2 verk- fræðingum sem starfa hjá byggingarfulltrúa, en þar starfa 30 manns. Gunnar sagði að starf þessara manna hefðu verið að yfirfara og árita teikningar auk úttektar sem þeir hefðu gert á byggingum. Verkfall þetta stendur enn. Átökin í gær sagði hann að FIAT KINKAUMBOÐ A ISI.AND Davíð Sigurðsson h.f. SÍDUMÚLA 35 Sími 38881. gasfylling á allar stærðir gashylkja GASBYRGÐASTÖÐ SÍMI 81675 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8 — 12 og 13 — 18 LAUGARDAGA 9 — 12 hefðu byrjað með því, að Magnús Óskarsson hefði mætt með Pál Líndal borgarlögmann og 2 lögregluþjóna. Einn viðskiptavinur var með þeim. Taldi Gunnar að þetta hefði verið-sviðsett til þess að unnt væri að sýna lögreglunni hvað væri að gerast. Tókst byggingarfulltrúum að ná í nokkrar teikningar meðan að stóð í stappi með það hvorfr maðurinn fengi afgreiðslu. Gunnar sagði að þvi væri haldið fram af borgaryfir- völdum að verkfallið væri ólöglegt, en þeir hefu hins vegar ekki kært það. Verkfallið var boðað með V4 mánaðar fyrirvara. A þriðjudaginn skellur á verkfall hjá 5 verkfræðingum f mælingadeild, hafi samningar ekki tekizt. „Ég tel það mjög alvarlegt að borgin skuli fara út 1 það að reyna að brjóta verkfallið á bak aftur. Önnur verkalýðsfélög hafa fengið að vera í friði með þau,“ sagði Gunnar Gunnarsson að lokum. Sjónarmið borgarinnar „Við báðum lögregluna ekki um að hafa afskipti af verkfallinu. Hún yar fengin til þess að gera skýrslu uni það,“ sagði Magnús Óskarsson um síðustu árekstrana í deilu borgaryfirvalda við verk- fræðingana. Hann kvaðst hafa beðið byggingarfulltrúann um að láta sig vita ef einhver kæmi út af teikningu. Þegar hann hefði komið á skrifstofuna hefðu verkfræðingarnir meinað manninum að afhenda teikningu sfna. Þeir hefðu heldur ekki leyft honum að tala við byggingarfulltrúann. Magnús vitnaði í byggingar- samþykkt Reykjavíkurborgar, en f 8. gr. segir: „Skylt er að láta byggingarfulltrúa í té sér- uppdrætti... og eru uppdrættir og útreikningar háðir samþykki hans.“ Hann sagðist telja það afar undarlegt, að menn, sem hefðu verið ráðnir til að aðstoða byggingarfulltrúann við starf hans, teldu sér heimilt að meina honum, með líkamlegri hindrun, aðgang að teikningun- um. Þegar Magnús va'r spurður um lögmæti verkfallsins, kvað hann það vera mjög umdeilt. Það tæki hins vegar 3 vikur að fá úrskurð félagsdóms. Séu ákvörðun hefði þvi verið tekin að láta verkfræðingana eiga fyrsta leikinn eftir að verkfalls- hótunin kom fram. Þeir tveir verkfræðingar, sem eru í verkfalli, hafa f fastalaun 140 þúsund krónur. Þeim voru boðnar 163.153 krónur á mánuði, en það tilboð þótti ekki ’ aðgengilegt af hálfu verk- fræðingafélagsins. MANAÐARAFMÆU YFIRVINNUBANNSINS Á SUNNUDAGINN UMBOÐS- & HEILDVERZLUN „A almennum félagsfundi sem haldinn var f fyrradag sam- þykkti meirihluti fundarmanna að halda áfram verkfallinu," sagði Dóra Ingvadóttir, formaður starfsmannafélags útvarpsins. Nú hefur yfirvinnubannið staðið í einn mánuð, eða frá 4. júní og hlustendur eru farnir að venjast því að heyra ekki lengur fréttaauka og flest það efni sem unnið hefur verið i eftirvinnu. Sáarast hefur þeim eflaust þótt að fá ekki beinar útsendingar frá hljómleikum sem haldnar voru á listahátíðinni. „Kjaranefnd sem skipuð var af hæstarétti til að fjalla um deilu þessa, mun skila úrskurði sínum eftir tíu daga eða hálfan mánuð og mun yfirvinnubannið standa a.m.k. i þann tíma,“ sagði Dóra ennfremur. „Er kjaranefndin hefur skilað úrskurðinum mun félagsfundur síðan fjalla um þær tillögur sem þar koma fram og greiða atkvæði um þær. Félags- fundurinn ræður því endanlega hvort starfsmenn útvarpsins létta af yfirvinnubanninu. Nýstárlegar rannsóknir: Mannlíf sunnan Skarðsheiðar Nú í sumar var hafizt handa við rannsókn á menningarsögu byggða sunnan Skarðsheiðar. Þeir sem að rannsókninni standa eru fyrrverandi og núverandi nemendur í fornleifafræði, þjóð- hátta- og þjóðfræðum, þjóðfélags- fræðum og sagnfræði, alls 6 aðilar, þar af þrír sem þegar hafa lokið námi. Að tvennu leyti má segja, að um nokkra frumraun þjóðlifs- rannsókna sé að ræða. I fyrsta lagi er þetta mjög yfirgripsmikið verk þar sem rannsakaðir verða allir hlutar byggðasögu svæðisins af ólíkum aðilum, en það hefur ekki verið re.vnt hér áður, heldur hafa einstakar greinar verið teknar út úr og rannsakaðar. Er hér því um nýtt samstarf að ræða meðal þessara aðila. I öðru lagi hefur ekki fyrr verið könnuð menningarsaga svo afmarkaðs svæðis. en sú aðferð svæðiskönn- unar hefur reynzt notadrýgst inannlífsrannsóknum i nágranna- löndunum. í sumar verður aðallega unnið að söfnun ritaðra heimilda og búin til skrá yfir þau gögn sem til eru, en gert er ráð fyrir að fram- haldsrannsóknir standi næstu sumur. Rannsókn þessi er að mestu fjármögnuð af Vísindasjóði íslands, en unnið er í samráði við og með nokkrum fjárstyrk Sagn- fræðistofnunar Háskólans, Þjóð- minjasafn Islands og Stofnunar Arna Magnússonar. Segja má að kveikjan að könnuninni hafi komið frá.náms- fólki í Lundi i Svíþjóð, sem sendi frá sér mjög ítarlegt skjal um mannlifsrannsóknir, og varð það til að vekja athygli á mikilvægi samstarfs þessara óliku aðila. Rannsóknirnar í sumar verða takmarkaðar við um eins mánaðar tímabil. þar sem fjár- vjeitingar leyfa ekki meira. en vonazt er til. að á komandi sumrum re.vnist unnt að halda könnuninni gangandi sem lengst, svo að árangur hennar megi sem f.vrst koma fyrir alntennings sjónir. JB Nýja heimavistin á Dalvík sem rekin er sem hótel á sumrin. Dalvíkingar koma upp bœttri hótelaðstöðu Nýlega var nýreist heima- vist Gagnfræðaskólans á Dalvík tekin í notkun sem sumarhótel. I þessari nýju byggingu eru tuttugu stór tveggja manna herbergi á tveimur hæðum. Hreinlætisaðstaða er öll eins og bezt verður á kosið. Gesta- móttaka er í Víkurröst, en heimavistin stendur skammt sunnan við hana og þar eru einnig seldar veitingar. Samkomusalur Víkurrastar hentar vel til ráðstefnuhalds. Eru Dalvíkingar að vonum hinir ánægðustu með þessa viðbót og telja sig nú tilbúna að taka við hinum aukna straumi Terðafólks til bæjarins. Töluvert hefur aukizt að ferðamenn sem leggja upp hringveginn, taki á sig smá aukakróka á afskekktari staði. Fara margir veginn fyrir Ó!afs- fjarðarmúla og til Dalvíkur. Þaðan er síðan greiðfær leið um nágrannabyggðir og inn til Akureyrar. —JB Hótel Bjarg opið allt órið Þau mistök urðu í hótel- úttekt þeirri sem birtist í DB 28. júní sl. að Hótel Bjarg, Búðardal, var sagt sumarhótel, en það er opið allt árið. Rétt átti málsgreinin að vera svona: Hótel Bjarg, Búðardal. Verð hvert rúm kr. 1.200. Verð á morgunverði er misjafnt en máltíðir kosta kr. 660—1500. A hótelinu eru 15 rúm, og er það opið allt árið. Sumarhótel í Hornafirði I samantekt DB á sumar- hótelurii víðs vegar um landið á mánudaginn, láðist að geta um sumarhótelið í Nesjaskóla í Hornafirði. Þetta er þriðja sumarið sem hótelið er rekið. Þar eru 26 herbergi méð handlaug og 9 herbergi án handlaugar, allt tveggja manna. Með handlaug kosta herbergi fyrir tvo kr. 2900, kr. 2000 fyrir einn. Án handlaugar kostar tveggja manna herbergi 2400 kr„ en 1500 kr. fyrir einn. Einnig er hægt að fá svefn- pokapláss og kostar það kr. 700 á herbergi en kr. 600 í skóla- stofu. Morgunmaturinn í Nesjaskóla kostar.kr. 500. Hótelstjórinn er Karl Rafns- son og sagði hann að mjög góð aðstaða væri til funda- og ráðstefnuhalds í hótelinu. Hótelgestir geta farið í skipu- lagðar skoðunarferðir um ná- grennið.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.