Dagblaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 3
3
DACBLAÐlf). FIMMTUDAGUR 29. JTJLl 1976.
Ekki okur heldur
góðgerðarstarf semi
Dúdú skrifar:
Vegna greinarinnar um
húsaleiguokur í DB 22. sl.
Þegar talað er um
húsaleiguokur þá gleymir fólk
því alltaf að til er nokkuð sem
heitri vextir. Einfalt dæmi: Þú
kaupir tveggja herbergja íbúð
fyrir 6-7 milljónir sem er verð,
sem nokkrir fasteignabrask-
arar og andlega vanskapaðir
fasteignasalar hafa fundið upp.
Þó flestir viti að slíkar íbúðir
kosta ekki nema ea 3 milljónir
væru þær byggðar af ein-
hverjum „sanngjörnum
okrurum."
Þú leigir sem sagt tveggja
herbergja íbúð fyrir 360
þúsund kr. á ári.
Tökum nú upphæðina 6
milljónir kr, leggjum hana inn í
banka, sem greiðir okkur 16%
vexti á ári. Hvernig sem það er
hægt þá færð þú í vexti 960
þúsund kr„ sem sagt hér er
mismunur 600 þús kr„ sem þú
færð auka og þarft engar
áhyggjur að hafa af viðhaldi
fasteignarinnar.
Svona til gamans þá er til
annað patent sem sjeníin hafa
fundið upp, þeir ótrúlegu
vextir sem eru 24% á ári
(heimsmet) sem Gjaldheimtan
tekur. Þá horfir dæmið öðruvísi
við.
Vextir af 6 millj. er 1440
þúsund á ári og ef 360 þúsund
sru dregin frá þeirri upphæð
verður hreinn gróði 1080
þúsund. Þú þarf ekkert að
vinna. og allt skattfrjálst.
Hér er því ekkert okur á
ferðinni heldur góðgerðarstarf-
semi.
Mcð kærri kveðju.
«
Við nánari eftirgrennslan
kemur í ljós að það sem
kallað er húsaleiguokur er
nánast gjöf en ekki gjald ‘
Hvað veiztu skemmtilegra
en þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum?
Vilhjálmur Vilhjálmsson flug-
maður, bilstjóri og söngvari: Það
er nú ekki gott að segja. Ég held
satt að segja að ég hafi ekki
fengið betri skemmtun, en þegar
ég var á þjóðhátíðinni í fyrra.
Björgvln Björgvinsson bæjar-
starfsmaður í Eyjum: Ég veit
ekkert skemmtilegra. Mér finnst
þjóðhátíðirnar vera frábærar að
öllu leyti. Ég var þar reyndar.ekki
í fyrra, en ætla alveg örugglega
núna.
G
ísleifur Bergsteinsson skrifar:
Til Önnu
Kæra Anna mín. Ég get nú
ekki orða bundizt eftir að hafa
lesið svar þitt til „Lilla her-
stöðvarandstæðings". Hafði þó
reyndar vænzt þess að sá herra-
maður mundi svara fyrir sig,
eða einhver annar, er væri á
höttunum eftir ungri konu. Ég
geng út frá því sem vísu að þú
sért ein slík. Anna, það hljóta
að vera mjög slæm dæmi
íslenzkra karlmanna, sem þú
kynnist og umgengst, úr því að
þeir eru engir „sjentilmenn11
(það vil ég útleggja sem prúð-
menni)ilítt spennandi (hvað er
nú það), óhreinlegir og drekka
mikið brennivín, úfnir og
ruddalegar fyllibyttur. Nú ætla
ég að segja þér smá sögu, vinan.
Sunnudaginn 18/7 ’76 varð ég
vitni að því er þessir spennandi
„sjentilmenn” þínir héldu
útisamkomu á milli tveggja
húsasamstæða á Vellinum. Þar
hafði verið komið fyrir miklu
magni hljómtækja, og vissi ég
til, að þetta hafði staðið frá því
um kl. 14.00 en ég kom þar um
kl. 17.00. í 35 mínútur varð ég
vitni að því mesta sukki, rudda-
mennsku, óþrifnaði í klæða-
burði og kjaftæði, sem ég um
dagana hef heyrt og séð. I
gegnum hástillt hljómtækin
komu alls konar setningar, eins
og shit, fuck, shut up og annað
»
Ætli það hafi verið þessir „verndarar" sem bréfritari sá í sukki á
útisamkomu á Vellinum? Konur virðast margar hrífast af
útlendum mönnum þótt þeir séu ruddalegir, skítugir og
útúrfullir og viðhafi sóðalegt orðbragð.
Með kærri kveðju.
mun verra sem ég vil ekki
nefna hér. Verndarar þínir
æptu því hærra, sem óþverrinn,
sem sagður var, var meiri. Allir
útbíaðir og blautir, sumir
hverjir frá hvirfli til ilja af
bjór, kóki og víni, æpandi,
skrækjandi, gólandi og
hrínandi. Þessi hópur var þó
nokkuð stór, ca 300-400 manns,
þar á meðal þó nokkrar konur,
en flest virtist þetta fólk á
aldrinum 19-36 ára.
Nei vina mín, á Islandi er í
flestum íbúðum bað eða sturta
og þar að auki eigum við fjölda
sundhalla og lauga. Þrifnaður
íslenzkra karlmanna er
vissulega misjafn, en margar
kynsystur þínar hef ég heyrt á
undanförnum árum segja þessa
setningu; „Eg skammast mín
bara fyrir mínar kynsystur,þær
eru fyllri, skítugri og kjaft-
f-orari og verr klæddar orðnar
en þið karlmennirnir auk þess
þvoið þið hár ykkar betur en
við.“
Anna mín, ég ætla að slá botn
í þessar línur með þeirri ósk til
þín að þú þurfir ekki að leita
langt yfir skammt eftir prúðum,
snyrtilegum, sæmilega
bindindissömum og vel
böðuðum íslenzkum strák.
Fyrir alla muni ef þú umgengst
hið gagnstæða, láttu þá heyra
álit þitt.
Vilja fó loðnu til
Skagastrandar
6^40—1564
á Skagaströnd skrifar:
Þegar ég hlustaði á loðnu-
fréttirnar í útvarpinu í morgun,
um að skipin þyrftu að sigla
með aflann til Suðvesturl.
vaknaði sú spurning í huga mér
til hvers síldarverksmiðjan á
Skagaströnd væri. Er hún bara
okkur Skagstrendingum til
„augnayndis,” með hálfhrunda
lýsisgeyma og óhrjáleg á allan
máta? Mætti ekki hressa svolít-
ið upp á hana og taka á móti
einhýerju magni af loðnu,
minnsta kosti svo að fólk þyrfti
ekki að leita burtu úr byggðar-
laginu eftir atvinnu eða ganga
með hendur t vösum að öðrum
kosti?
✓
Gunnar Hreinsson bæjarstarfs-
maður í Eyjum: Mér finnst mjög
gaman að ferðast uppi á landi, en
það skemmtilegasta í Vestmanna-
eyjum er þjóðhátíðin.
Blrgir Viðar Halldórsson hótel-
stjóri: Þetta er nú mikil persónu-
spurning. Þó held ég að af inn-
lendum viðburðum komist enginn
i hálfkvisti við þjóðhátíðina 1
Eyjum.
Berglind Valdimarsdóttir upp-
vaskari á hótelinu í Eyjum: Það
veit ég ekki. Ég hef einu sinni
verið á þjóðhátíð hér i Eyjum, —
árið 1974. Mér fannst alveg ofsa-
lega gaman þá.
Halla B. Jónsdóttir Vestmaiui-
eyingur: Það er alltaf fjör í Eyj-
um, en þó langbezt þegar þjóð-
hátíðin stendur yfir. Ég veit
ekkert skemmtilegra en að vera
þar með.