Dagblaðið - 03.08.1976, Síða 28
Bílakaup valdamannanna:
Bankastjórar sitja við
sama borð og raðherrar
Enginn almennur opinber starf smaður fœr lengur lagðan til bíl
„Bankastjórum er gefinn
kostur á aö kaupa bifreiðar á
sömu kjörum og ráðherrar
njóta,“ sagði Magnús Jónsson
bankastjóri i Búnaðar-
bankanum.
Magnús sagði að rekstuis-
kostnaður bifreiðanna væri
einnig greiddur. Aðflutnings-
gjöld þessara bifreiða eru
greidd af viðkomandi bönkum.
Ekki er heimild fyrir þessu í
lögum. En Magnús sagði að
bankaráð einstakra banka
ákvæðu kjör bankastjóranna,
og væru þessi gjöld greidd af
öllum bönkum. Hér er um að
ræða tolla, innflutningsgjöld og
söluskatt.
Þegar bankastjórarnir
ákveða að fá sér nýja bíla, er
þeim veitt 350 þúsund króna
lán. Hefur sú tala ekki hækkað
síðan 1970. Er það til 10 ára
með 5-10% vöxtum. Þetta lán fá
þeir aðeins einu sinni. En þeir
mega kaupa biferið með fyrr-
greindum kjörum á 3ja ára
fresti.
Róðherrar
Þeim er gefinn kostur á að
kaupa sér bíla sjálfir eða að
ráðuneytin eigi bifreiðar, sem
ráðherrar geta aðeins notað í
vinnutíma. Allir ráðherrar
munu nú vera á eigin bílum. Þá
greiða ráðuneytin bílstjórum
þeirra laun. Og allur rekstrar-
kostnaður bifreiðanna er
greiddur.
Starfsmenn róðu-
neyta og banka
Þeir njóta margir hverjir
bílastyrks. Og ,í sumum
tilfellum er þeim leyft að nota
bifreiðar sem viðkomandi
stofnanir eiga. Verða þeir þá að
vera þurfandi fyrir bifreiðarn-
ar. Bifreiðarnar eru alls ekki
ætlaðar til notkunar utan
vinnutíma.
Opinberir starfsmenn
„Enginn fær lengur lagðan
til bíl, en bílar eru til á flestum
stofnunum, sem verður að
skilja eftir á vinnustað að
vinnu Iokinni“ sagði Einar
Sverrisson í fjármála-
ráðuneytinu. Þá njóta margir
bílastyrkja. Einar sagði að
bílastyrkjunum væri skipt
niður í þrjá flokka.
I fyrsta lagi væri um að ræða
lokaða samninga. Er þá áætlað
hversu mikið sé ekið á ári
hverju og er þá miðað við þörf
stofnunarinnar.
Þá eru opnir samningar, sem
eru mjög óreglulegir.
Þá halda viðkomandi starfs-
menn akstursdagbók. Verður
forstöðumaður hverrar stofn-
unar að kvitta fyrir aksturinn.
Þriðji samrtingurinn er eigin-
lega blanda af hvoru tveggja.
Er þá um að ræða starfsmenn
sem þurfa að aka mjög;
mismunandi mikið. Ýmist
halda þeir akstursdagbók eðat
fá fastan styrk.
Einar vildi fá að geta þess a<i
hann liti ekki á þetta sem
bllastyrk. Hér væru um
greiðslu fyrir afnot bifreiðanna
í þágu stofnanna að ræða.
Tregða banka vúð
svörum
Reynt var að fá upplýsingar í
nokkrum bönkum um fyrir-
komulagið þar. Erfiðlega gekk
að fá svör. Þannig var svar eins
aðstoðarbankastjóra, að hann
þyrfti að tala við aðra banka-
stjóra áður en hann gæti
svarað. Var honum þá bent á að
ef sama fyrirkomulagt ríkti í
rlkisbönkunum, hvers vegna
þyrfti þá að tala sig saman.
Taldi hann þetta ágengni
blaðamanns og neitaði að svara
í síma.
Loftsteinn
eða
gervihnöttur
Furðufyrirbæri þáð, sem sást
víðs vegar að um kl. 10.30 á
sunnudagskvöldið, hefur verið
skýrt með ýmsum hætti. Sumir
telja, að hér hafi verið um loft-
stein eða svokallaðan vígahnött
að ræða, en aðrir að hér hafi
brunnið upp gervitungl eða hluti
þess, eins og fram kemur í
annarri frétt hér í blaðinu. Blaðið
hefur áreiðanlegar heimildir
fyrir því, að hvor skýringin um
sig geti verið rétt, eins og þetta
fyrirbæri lýsti sér að sögn
áhorfenda.
Loftsteinar eru hlutar
reikistjarna sem sundrazt hafa,
og leita fyrr eða síðar lægri
loftlaga nær jörðu, ef leið þeirra
liggur á sporbraut umhverfis
hana eftir sprenginguna.
Hvort sem þarna var um loft-
stein eða gervitungl að ræða, er
það allt annað og óskylt því
fyrirbæri sem glitský eru nefnd
og sáust síðar þetta kvöld. Sjá bls
4.
BS
„Það er nú flott okkar lögreglulið"
Þannig var sungið í revíunni forðum. Þar var að vísu einnig talað um Austurstræti, en þessí mynd er
tekin í Kirkjustræti, fyrir framan Alþingishúsið, þegar dr. Kristján Eldjárn var settur í forsetaemb-
ætti í þriðja sinn á sunnudaginn. (DB-mynd: Arni Páll)
ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 1976.
Millisvœðamótið:
Larsen á
lakari stöðu
gegn Byrne
Bandaríkjamaðurinn Byrne á
betri stöðu í biðskák við Bent
Larsen frá 16. umferð millisvæða-
mótsins sem var tefld í gærkvöld.
Övæntustu úrslitin þóttu þó er
Portisch, sem átti möguleika á að
ná einu af 3 efstu sætunum,
tapaði fyrir Lombard frá Sviss.
önnur úrslit í 16. umferð urðu
að Hubner og Geller gerðu jafn-
tefli og sömuleiðis Matanovic og
Petrosjan, Tal og Anderson.
Rogoff vann Castro bg Liberzon
(með svart) vann Sanguineti.
Biðskákir urðu hjá Gulko og
Sosonko, Smejkal og Smyslov.
Híibner hefur nú forystu með
10lA vinning. Larsen kemur
næstur með 10 og biðskák, Tal
hefur 10, Smyslov 9'A og biðskák,
Petrosjan 9lA, Portisch og Ulf
Andersson 9 hvor.
Larsen á eftir að tefla við Mata-
novic, Smejkal og Hiibner.
HObner á eftir Smyslov, Pet-
rosjan og Larsen. Tal á eftir
Sosonkö, Castro og Liberzon.
Smyslov á eftir að tefla við
Hubner, Diaz og Sanguineti.
A bls. 4 eru úrslit biðskáka úr
13., 14. og 15. umferð.
— ASt
Tollverðir fundu áfengt,
samsvarandi 180 þriggja
pela flöskum, og 7600
sígarettur um borð í m/s
Skaftafelli á fimmtudaginn.
Skipið var nýlega komið til
Reykjavíkur frá Banda-
ríkjunum. Hluti varningsins
fannst um boð í skipinu, en
afgangurinn var kominn í
land og fannst í bil.
Eigendur smyglvarnings-
ins reyndust vera stýri-
maður, vélstjóri og tveir há-
setar, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá tollgæzl-
unni.
—ÓV
Kolmunnaveiðar Runólfs:
50 T0NN í EINU KASTI
— gengur skv. björtustu vonum
Kolmunnaveiðarnar, sem tog-
arinn Runólfur stundar nú, til
reynslu, virðast ætla að fara fram
úr björtustu vonum og sem dæmi
um það má nefna að aðfaranótt
sunnudags fyllti skipið sig í þrem
togum og fékk hvorki meira né
minna en 50 tonn i einu sem er
einstaklega stórt tog.
Runólfur landaði á Norðfirði á
fimmtudaginn og álti að leita
kolmunna um helgina og koma til
Hornafjarðar i dag. Fann hann
yfirdrifið magn af kolmunna víða
og stóðst skipstjórinn því ekki
mátið að kasta á hann með
fyrrgreindum árangri. Landaði
hann í fyrradag á Norðfirði, og er
áætlað að hann landi aftur á
Hornafiröi á morgun.
—G.S.
mmmmmmmmmmmmmmmmmaassriamíi --nrawT
w
MISSIR VÍNYEITINGALEYFIÐ
seldi smyglað óf engi og skinku
Dómsmálaráðuneytið hefur
neitað að endurnýja vínveit-
ingaleyfið, sem llótel Vest-
mannaeyjar hafði. Astæðan er
sú, að hótelhaldararnir viður-
kenndu í velur að hafa selt
smyglað áf'engi og mat. 40—50
flöskur af áfengi og óliltekið
magn af skinku.
Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem blaðið hefúr
aflað sér í Eyjum, var áfengiö
keypt um borð í skipi i Vest-
mannaeyjahöfn og matvælin
sömuleiðis. Þetta var sl. hausl,
en snemma i vor viöurkenndu
hótelhaldararnir tveir við yfir-
heyrslur í Vestmannaeyjuin að
nafa selt umi ædaan varntng.
Vínveitingaleyfi þeirra, sem
dómsmálaráðuneyti veitir til
eins árs i senn, rann út 1. júlí sl.
og höfðu þeir þá ekki sótt um
endurnýjun þess. Þegar það var
síöan gert neitaði ráðuneytið.
Rannsókn þessa niáls er ekki
lokið hjá fógeta í Eyjum.
Bretaprins á Egilsstaðaflugvelli:
LÖGREGLUFLOKKUR
SLÖKKVILIÐ 0G
LÆKNIR TIL TAKS
Það var niikið um . ásamt foruneyti sínu og tvein
Egilsstaðaflugvelli klukkan
þrjár mínútur f.vrir sex i gær-
morgun, er hans hátign Karl
Bretaprins lenti þar í einka-
flugvél. Einn landi hans, senni-
lega öryggisvörður, og átta
islenzkir lögreglumenn tóku á
móti prinsinum, auk þess hafði
slökkvilið Egilsstaða verið
kvatt til vallarins og læknir af
staðnum.
Forvitnum íslendinguni var
vendilega haldið i fjariægð frá
prinsinum og var stranglega
bannað að reyna að hafa eitt-
hvað san oand við hann. Frá
flugvellinum hélt prinsinn
islenzkum lögregluþjónum.
sem eiga að fylgja honum á
ferðum hans hér.
Tildrög bessa niikla sjónar-
spils á Egilsstaðatlugv. voru,
að Karl prins er hingað kominn
til laxveiða. Mun hann veiöa i
Laxá i Vopnafirði, en þar
veiddi nann einnig i fyrra-
suniar. Ekki tókst lilaöinu að
afla nánari upplýsinga um
ferðir hans hér. neiiia livað lík-
legt er talið að hann muni aka
til Reykjavikur að veiðuni lokn-
iini.
—G.S./B.Arthúrsson.