Dagblaðið - 18.08.1976, Síða 1

Dagblaðið - 18.08.1976, Síða 1
2. ARG—MIÐVIKUDAGUR 18. AGtJST 1976— 181. tbl. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83J22, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMI 27022 Hún ú afmœli í dag — Reykjavík 190 úra Reykjavík á 190 ára afniæli i dag og í tilefni dagsins flagga nú strætisvagnarnir. Þrátt f.vrir þetta stórafmæli verður ekkert sérstakt umstang, en til hátiðarbrigða verður þó opnuð sýning í Arbæjarsafni á eimreiðinni frægu, sem ók um Reykjavík á árunum 1913 til 1928. Eimreiðin stendur nú pússuð og fín eftir miklar endurbætur inni i skemmu, sem nýlega var reist yfir bana. Myndina tók Bjarnleifur á Skothúsveginum og gnæfir eitl sterkasta andlitseinkenni borgarin'nar þa’rna upp: úr húsþökunum. ÞRÍR HÓPAR VIÐRIÐNIR ÁVÍSANAMÁLIÐ — Lagt inn ú reikning til skiptis með innstœðulausum úvísunum Ávísanamisferli tuttugu og eins manns, sem Seðlabankinn skilaði gögnum um til Saka- dóms Reykjavíkur fyrir npkkru, er enn í rannsókn. Beinist hún meðal annars að tengslum á milli þessara manna viðað ýta á undan sér milljóna- tugum með skipulegum hætti. Þykir ýmislegt benda til þess, að þessi hópur manna hafi ekki haft beint samband innbyrðis, heldur sé hér um að ræða aðal- lega þrjá hópa, sem þó tengja6t beint og óbeint við útgáfu inn- stæðulausra tékka. Aðferðin, sem notuð var, er einkum í því fólgin, að einstakl- ingar í þessum hópum hafa lagt inn á reikninga hver annars í mörgum bönkum og þó aðallega bankaútibúum bæði í Reykjavikog utan borgarinnar. Til dæmis hefur verið lagt inn á ávísanareikning í banka i Reykjavík með ávísun á útibú annars banka utan borgarinn- ar. Hefur þannig skapazt bók- haldsleg innstæða, sem notuð hefur verið til þess að gefa út ávísanir á. Þegar ávísun á úti- búið barst því, var búið að leggja inn á reikninginn þar með ávísun á enn annað útibú á allt öðrum stað. Þannig hefur verið yelt milljónatugum. sem aldrei voru til öðruvísi en í bankafærslum á innstæðulaus- um tékkum. Eins og Dagblaðið hefur margoft áður skýrt frá, var þessarar rannsóknar Seðla- bankans óskað af Sakadómi Reykjavíkur í tengslum við Geirfiiinsmálið. Algerlega er synjað fyrir að gefa upp nöfn þessara manna, sem eru 21 að tölu. Víst er þó talið, að sumir þeirra séu peð í tafli hinna stærri, sem að öllum líkindum eru naumast meira en helmingur þeirra, sem í þessum hópi eru. BS. — sagði golf leikarinn heimsfrœgi, Jack Nicklaus, við komuna til Reykjavíkur í morgun „Kennt ykkur eitthvað? Það getur verið að ég geti það á sunnudaginn,“ sagði Jack Nicklaus, golfleikarinn frægi frá Bandaríkjunum. Hann var hinn hressasti eftir ferðina í einkaþotu og hafði fjölskylduna með sér. Nicklaus verður hér þar til á sunnudag, en þá sýnir hann listir sínar á golfvelli Ness á Seltjarnarnesi. Síðasta áratug hefur hann verið fremsti golfleikari heimsins og unnið öll stærstu mót, sem haldin eru. Nú í ár hefur honum ekki gengið sem skyldi, en þrátt fyrir það er hann einn tekjuhæsti golfleikari í ár. Fjölskylda heimsfrægs manns við komuna til Reykjavíkur. Nicklaus kom hingað beint frá PGA mótinu í Banda- ríkjunum, sem er eitt af fjórum stærstu mótum í heimi. Þrátt fyrir það að hann hefði forustu á síðasta degi, tókst honum ekki að sigra. -KP. KANNSKIGET EG KENNT YKKUR EITTHVAÐ ✓ Geirfinnsmólið: SCHÍÍTZ VELUR SAMSTARFSMENN Undanfarna vikur hetur uu Arnason frá tækniaeild rann- manna hópur frá Sakadómi sóknarlögregiunnar og Rúnar Reykjavíkur og lögreglunni Y Sigurðsson lögreglumaður. Reykjavík unnið að rannsókn Geirfinnsmálsins undir stjórn V-Þjóðverjans Karls Schiitz. Aðstoðarmenn Schutz í þessu máli eru Örn Höskuldsson, fulltrúi Sakadóms, sem stjórnað hefur rannsókninni til þessa, rannsóknarlög- reglumennirnir Eggert N. Bjarnason, ívar Hannesson, Jónas Bjarnason, Grétar Sæmundsson og Sigurbjörn Víðir Eggertsson, Haraldur Flestir þessara manna hafa áður komið nærri rannsókn málsins, til dæmis hafa þeir Eggert og Sigurbjörn Víðir verið helztu samstarfsmenn Arnar Höskuldssonar, og Rúnar var um tíma samstarfs- maður Hauks Guðmundssonar, sem annaðist fyrstu umferð rannsóknar málsins. Auk þess- aramanna verður Pétur Eggerz sendiherra með hópnum, en hann hefur verið túlkur Schiitz hérlendis. Þessi hópur mun á næstunni helga sig rannsókn þessa máls eingöngu, auk rannsóknar Guðmundarmálsins, sem komin er á lokastig og verður send ríkissaksóknara á næstu dögum. Hópurinn mun starfa undir leiðsögn Þjóðverjans og eftir þeim aðferðum, sem hann hefur þróað og beitt með góðum árangri í heimalandi sínu. Engar upplýsingar um þetta mál er að fá frá Sakadómi frekar en áður. —ÖV

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.