Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.08.1976, Qupperneq 1

Dagblaðið - 27.08.1976, Qupperneq 1
2. ARG. — FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1976— 189. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022 57 ára kona fannst alblóðug í íbúð: AUGLJOST TALIÐ AÐ KONAN HAFIVERIÐ MYRT — áverkar taldir eftir höggvopn, blóðslóð eftir íbúðinni niður í kjallara Rannsóknarlögreglan hóf i gærkvöldi umfangsmikla rann- sókn á meintu morði 57 ára gamallar konu í Reykjavík. Konan hafði komið við að Miklubraut 26 einhverntíma 1 seinni hluta dags í gær. ibúar þess húss munu vera í London og hafði konan tekið að sér að vökva blóm mæðgnanna sem búa í íbúðinni. Eiginmann konunnar fór að lengja eftir konu sinni í gær- kvöldi, þegar hún var ekki kom- in heim og óskaði eftir að lögreglan athugaði hverju það sætti. Kom í ljós seint í gær- kvöldi að konan lá illa til reika fyrir neðan hringstiga, sem liggur niður í kjallara íbúðar- innar. Rannsóknarlögreglan var í miklum önnum í morgun og frá henni var engar nýjar upplýs- ingar að hafa umfram það sem blöðin í morgun fluttu. Gísli Guðmundsson rannsóknar- lögreglumaður mun stjórna heildarrannsókninni og hefur með sér þa sem til þarf. Haukur Bjarnason rannsóknarlögreglu- maður mun stjórna leit að vopni því sem hugsanlegt er að hafi verið morðvopnið. Konan fannst á gangi íbúðar- innar, og eftir þeim heimildum sem Dagbl'aðið aflaði sér í morgun, lá blóðrefill eftir íbúð- inni niður í kjallarann, en þar mun eldhús íbúðarinnar vera. Eins og fyrr segir var lík kon- unnar afar illa til reika og úti- lokað talið að um slys hafi verið að ræða. Töldu sumir jafnvel að öxi hefði verið notuð við verkn- aðinn, eða eitthvert annað höggvopn. Að þessu vopni er nú leitað. Fréttamenn Dagblaðsins komu á staðinn í gærkvöldi og ræddu við íbúa í næstu íbúðum, en þær eru samfastar íbúðinni við númer 26. Enginn þeirra hafði orðið var vió mannaferðir inn eða út úr íbúðinni þennan dag, enda fæstir heima fyrr en undir kvöld. Það eru tilmæli rannsóknar- lögreglunnar að fólk hafi sam- band við lögregluna, ef það tel- ur sig hafa orðið vart við mannaferðir við staðinn í gærdag. —JBP Mikið lögreglulið var mætt við Miklubraut 26 í gærkvöldi þegar ljóst varð að válegur atburður hafði gerzt þar. íbúarnir, tvær konur, voru erlendis, þegar atburðurinn gerðist. Litlu myndirnar: Húsmóðir á tröppunum, lögreglumenn að leit. — Haukur Bjarnason fann sóigieraugu í einum garðinum. DB-myndir Árni Páll og Sveinn Þormóðsson. ---------------------—------------------------- Sjávarútvegsróðuneytið herðir eftirlitið á miðunum: Óskað ef tír að Landhelgisgœzlan kanni af lasamsetningu v-þýzku togaranna - ÍTSC-IhÉÍ"Wnir Þótt sjávarútvegsráðuneytið sé ekki trúað á að aflaskýrslur vestur-þýzku togaranna hér á íslandsmiðum séu rangar, eins og fjöldi íslenzkra sjómanna telur og rökstyður nokkuð sterkt, hefur ráðuneytið nú farið fram á við Landhelgis- gæsluna að hún athugi sér- staklega aflasamsetningu og aflamagn hjá v-þýzkum togurum af og til, að þvi er Þórður Ásgeirsson skrifstofu- stjóri ráðuneytisins, sagði i viðtali við DB. í viðtali við blaöið í fyrradag V segir forstjóri Land- helgisgæzlunnar að ef Gæzlan eigi að taka upp slíkt eftirlit, verði hún að fá sérfróða menn til þess, en Gæzlan er í rauninni eini aðilinn, sem má stöðva erlendu togarana í þessum erindagjörðum. Þórður taldi enga annmarka á að kenna nokkrum sjómönnum Gæzlunnar til verka í þessu sambandi. Þórður sagði að undanfarið hefði allt eftirlil með veiðum hér verið hert eftir mætti og gat þess t.d. að nýlega hefði ráðuneytið falið tveim þýzkum konsúlum íslands í Þýzkalandi að fylgjast sérstaklega náið með löndunum togaranna af Islandsmióum. Þeir hafa af og til sent hingað skýrslur um at- huganir sínar og ber tölum þeirra af vigtarseðlum saman við tölur rannsóknastofnunar þýzka sjávarútvegsins, sem sendir reglulega skýrslur. Eng- inn tslendingur fylgist með þessum löndunum, en Þórður sagði að ráðuneytið gæti hvenær sem væri sent út mann til eftirlits, ef ástæða þætti til. Um fleiri aðgerðir, sem miðuðu að hertu eftirliti, sagði Þórður að búið væri að endur- bæta framleiðslueftirlit sjávarútvegsins verulega, undirmálsfiskur væri gerður upptækur og sektum beitt, auk þess sem búið er að þjálfa fjóra menn til að fara í veiðiferðir með íslenzkum fiskiskipum til að fylgjast með aflasamsetningu og stærðar- flokkum upp úr sjó. -G.S. Svört skýrsla um Kröflu: Er ólit sérfrœð- inganna dauða- dómur yfir gufu- aflsvirkjuninni? - bls. 4 NATO-flugslysið i gœr: íslendingarnir stólu senunni fráVL- mönnum — bls. 9 „Vinstri fóturinn er styttri en hœgri" sagði lœknirinn við Ásgeir Sigurvinsson — sjá iþróttir i opnu HVERNIG VERÐA HIN MIKLU AUÐÆFI Á HAFSBOTNI NÝn? — sjá kjallaragrein Benedikts Gröndal bls. 10-11

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.