Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976. Erlend myndsjá llllllllllllllllll!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!!lllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll FRAKKLAND: Nýr forsætisráðherra var skipaður þar í vikunni, Ravmond Barre. Hann tók við embætti af Jacques Chirac sem Giscard ("Ustaing forseta þótti sælast um of í völd sín. VESTUR-ÞÝSKALAND: Fátt hefur vakið meiri athygli þar undanfarið en hið svokaliaða særingamál. Ung stúlka, Anne- iiese Michel.lézt 1. júlí í sumar eftir að hafa barizt fyrir lífi sínu í tvo mánuði rúrna. Hún var talin vera haldin illum öndum og var kaþólskur prestur fenginn tii að gera tilraun til að reka þá út úr líkama hennar. Allan þann tima, sem særingarnar stóðu yfir, neit- aði Anneiiese að neyta matar og var dánarorsök hennar því næringarskortur. Móðir hennar segir að verst af öllu sé að enn trúi því cnginn að djöfullinn sé til. Litla myndin er af Anneliese, sú stærri af prestinum, föður Arnold Renz. SUÐUR-AFRÍKA: Miklar og blóðugar óelðir urðu i Soweto, útborg Jóhannesarborgar. Biökkumenn þar fóru i þriggja daga allsherjar- verkfall. Zúlumenn í borgarhverfinu voru óánægðir með verkfallið og tóku að sér „eftirlitsstörf“. Þau reyndust fólgin í berserksgangi, morðum, ránum og nauðgunum. Myndin sýnir lögregluna ávarpa Zúlumennina og hvetja þá til að sýna stillingu. EGYPTALAND: Fjöldafundir voru haidnir víða um iand til að fagna skipun Sadats forseta í embætti til sex ára í annað sinn. Myndin er frá fjöldafundi fyrir framan forsetahöllina í Kairó. Fyrra kjörtímabil Sadats rennur út 15. október næstkomandi. KÓREA: Bandaríska flugvélamóðurskipið Midway er nú á austanverðu Kfnahafi í „öryggisskyni“ eftir að spenna jókst mjög í Kóreu. Ástæðan er morðin á tveimur Bandaríkjamönnum á hlutlausa beltinu við Panmunjom. Rúm tuttugu ár eru liðin síðan Kóreustyrjöldinni lauk — en aidrei hefur verið samið um frið, aðeins vopnahlé. JAPAN: Félagar Frjálslynda lýðræðisflokksins í Japan rétta upp hendur á fundi sl. þriðjudag til merkis um stuðning þeirra við „tafarlausa endurnýjun flokksins" en tillaga þess efnis felur í sér óbeina kröfu um að Takeo Miki forsætisráðherra víki úr embætti. Flokksmönnum sumum þykir hann ekki hafa staðið sig nógu vel í Lockheed-málinu — einkum þó þeim sem grunaðir eru um aðild að því.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.