Dagblaðið - 28.08.1976, Page 23

Dagblaðið - 28.08.1976, Page 23
23 m> DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976. I Útvarp Útvarp annað kvöld kl. 20,30: Dagskrárstjóri i klukkustund ovanur Helgi Hallvarðsson skipherra verður dagskrárstjóri í eina kiukkustund. Gaman verður að heyra hvaða efni eru honum hugstæð og hverju hann vill koma á framfæri til okkar hlustenda. Helgi er nú skip- herra á varðskipinu Óðni. Myndin er tekin í góðu tómi er hann slappaði af á milli ferða þegar á þorskastríðinu stóð. — KL Útvarp annað kvöld kl. 19,25:Orðabelgur Listnen frasögn af Moskvuréttarhöklunum „Þáttur þessi verður um ung- verska rithöfundinn Arthur Koestler," sagði Hannes Giss- urarson umsjónarmaður þáttar- ins Orðabelgs, sem verður á dagskrá útvarpsins kl. 19.25 annað kvöld. „Einkum mun verða fjallað um bök hans „Myrkur um miðjan dag“. Bókin hefur komið út á íslenzku. Einnig hefur birzt eftir hann ritgerð í bókinni Guðinn sem brást. Myrkur um miðjan dag er listræn frásögn af Moskvu- réttarhöldunum 1938 sem vöktu mikla undrun og umtai Hannes Gissurarson umsjónar- maður Orðabelgs. Honum þykir mjög gaman að gera þessa þætti. DB-mynd Bjarnleifur. víða um heim, þá ekki sízt á Islandi. Þar dró Stalín fyrir dóm ýmsa helztu samstarfs- menn sína í hópi bolsévíkanna. Bók Koestlers er tilraun til sál- fræðilegrar greiningar á játn- ingum sakborninganna og í víðara samhengi úttekt á rúss- nesku byltingunni. Hann velti fyrir sér vandamálum, eins og tilganginum og tækinu í stjórn- málum, hvernig menn verða að flokksverum og öðru slíku. Koestler var mikill ævintýra- maður. Upphaflega starfaði hann sem blaðamaður. Hann gekk í þýzka kommúnistaflokk- inn árið 1930 og barðist í spænsku borgarastyrjöldinni meó lýðveldishernum. Hann var tekinn þar til fanga og beið aftöku en var síðan látinn laus árið 1938. Skömmu síðar sagði hann skilið við kommúnistaflokkinn og skrifaði bók sína, Myrkur um miðjan dag. Síðan hefur hann sinnt ritstörfum. Hefur hann skrifað margt um vísipdi og kommúnisma. George Orwell hefur sagt að bók hans, Myrkur um miðjan dag, sé meistaraverk hans. Koestler er á lífi og býr nú á Bretlandseyjum." „Mér finnst mjög gaman að gera þessa þætti,“ sagði Hannes, „þetta er lífrænt og skemmtilegt starf og ég ætla að halda þessu áfram eins lengi og grundvöllur er fyrir þessu hjá mér. Ég vil koma á framfæri þökk- um til allra þeirra sem hafa hringt í mig og þakkað mér fyrir þættina og eins til þess fólks sem hefur bent mér á efni. Einnig vil ég þakka starfs- mönnum útvarpsins, samvinn- an við þá hefur verið með ágæt- um," — KL Sjónvarp Sunnudagur 29.ágúst 18.00 Bleiki pardusinn. Bandarisk teikni- mvndasyrpa. Þýðandi Jdn Skaptason. 18.10 Sagan af Hróa hetti. 5. þáttur. Hlé 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglysingar og dagskrá. 20.35 Halldór Laxness og skáldsögur hans IV. Vésteinn Ólason lektor rærtir vió skáldió um (’.erplu. 21.25 Jane Eyre. Bresk framhaldsmynd gerð eftir söeu Charlotte Bronte. 4. þáttur. 22.15 Frá Listahátíð 1976. í eplagarði sveiflunnar. í upphafi hljómleika Benny Goodmans í Laugardalshöll 12. iúm siöa.silirtinn léku vihrafónleikar- inn Peter Appleyard og kvartett jass. Kvartettinn skipuðu Gene Bertoncini, gítar, Mike More, bassi, John Bunche, píanó, og Connie Kay, trommur. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 22.50 Aö kvöldi dags. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson, prestur i Lang- holtsprestakalli í Reykjavik. flytur hugvekju. 23.00 Dagskrárlok. Þarna er víbrafónleikarinn Peter Appleyard í hægum takti með kjuðana, fyrst þeim tókst að festa hendur hans á mynd.tiitöiuiega óhreyfðar. Sjónvarp annað kvöld kl. 22,15: í eplagarði sveiflunnar Stórgóðir hljóðfœraleikarar Annað kvöld kl. 22.15 verður sjónvarpað frá Listahátíð. Nú verður sjónvarpað frá upphafi hljómleika Benny Goodmans í Laugardalshöll 12. júní sl. Utsending frá hljómleikun- um verður í þrennu lagi, fyrst verður tekið fyrir upphaf tón- leikapna þegar víbrafónleikar- inn Peter Appleyard og kvart- ett léku jass af fingrum fram. Kvartettinn skipuðu Gene Bertroncini, gítar, Mike More, þgssi, John Bunch, píanó, og Connie Kay sem barði tromm- urnar. Allt eru þetta frábærir hljóð- færaleikarar en þó hreif Peter Appleyardhugi og hjörtu áheyr- enda með frábærum víbrafón- leik. Það var undravert hvað hann var lipur með kjuðana þótt það segi nú ekki allt. En sjón er sögu ríkari og ég ráð- legg jassaðdáendum eindregið að láta þennan þátt ekki fram hjá sér fara. Fyrri hluti tónleik- anna, þegar þessir hljóðfæra- leikarar komu einir fram, var af mörgum talinn betri hluti tónleikanna, þvi eitthvað var af „konungi sveiflunnar“, sem komið hefur hjörtum svo margra til að slá hraðar með klarinettuleik sínum, dregið, enda kannski engin furða, kominn á þennan aldur. En hrífandi framkoma hans og góðlátleg kímni bættu samt allt upp. Nefnist þáttur þessi „I epla- garði sveiflunnar", stjórn upp- töku hafði Tage Ammendrup meðhöndum. —KL Sjónvarp sunnudag kl. 18,10: Sagan af Hróa hetti Vinur alþýðunnar Hrói höttur verður á dagskrá sjónvarpsins kl, 18.10 á morgun. Þá verður sýndur 5. þáttur urri kappann en þættirnir eru 12 alls. Efni fjórða þáttar var á þá leið að útlagarnir ákváðu að nú skyldu þeir ekki una lengur ofríki launráðamanna sem tóku toll af öllum sem fóru í gegnum Skírisskóg. En alþýða manna ann því ekki beint vel að þurfa að greiða einhverjum toll þótt leið eigi um skóginn. Með fyrrgreindri ákvörðun þeirra útlaganna leggja þeir alþýðu manna lið og eignast ýmsa góða stuðningsmenn. Launráðamennirnir flytja sjóð í eigu ábótans í Maríuklaustri til Nottingham svo að skatt- heimtumenn konungs fái ekki lagt á hann toll. Ábótinn heitir launráðamönnum aðstoð fyrir þennan greiða. En útlagarnir ráðast á lestina og ná sjóðnum á sitt vald. Hrói hjálpar Ríkarði riddara frá Engi til að gjalda ábótanum skuld og er útlögunum launaður greiðinn með vopnum. Talsvert ofbeldi og bardagar eru á stundum í þáttunum um Hróa hött og er því foreldrum bent á að athuga hvort þeir telji þætti þessa við hæfi barna sinna. — KL William Marlowe í hlutverki sínu sem Gis- borne. Sunnudagur 29. ágúst 8.00 Morgunandakt. Séra Siguröur Páls- son vígslubiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugrein- um dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðlir- Ireenii i !-*r.i túiili>tarh';iiirt i Schwci'- zingen. 11.00 Messa í Hóladómkirkju ( Hl.jððr. frá Hólahátið fyrra sunnudag). Séra Bolli Gústavsson i Laufási prédikar. 12.15 Dagskráin. Tónleikár. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.20 Mér datt það í hug. Kristinn G. Jóhannsson skólastjóri á Öíafsfirði talar. 13.40 Miðdegistónleikar. 15.00 Hvernig var vikan? Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 16.00 Íslenzk einsöngslög. Gllðrún Tómasdóttir syngur lög eftir Björn Franzson. Guðrún Kristinsdóttir leikur á pianó. 6.15 Wrturl rcuiiir Fréttii 16.25 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.10 Bamatími: Frá skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands- 7. febl'. 1975. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacqu- illat. Einleikari: Manuela Wiesler. Kynnir: Þorgerður Ingólfsdóttir. a. Fyrsti þáttur úr Flautukonsert í G-dúr eftir Mozart. h. Sinfónía nr. 5 (3. og 4. þáttur) eftir Schubert. c. „Lærisveinn galdrameistarans" eftir Dukas. 18.00 Stundarkom með þýzka píanóleikar- anum Werner Haas. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Orðabelgur. Hannes Gissurarson sér um þáttinn. 20.00 Kammertónlist. Tríó í Es-dúr op. 40 eftir Brahms. Dennis Brain, Max Salpeter og Cyril Preedy leika á horn. fiðlu og pianó. 20.30 Dagskrárstjórí í eina klukkustund. Helgi Hallvarðsson skipherra ræður dagskránni. 21.25 Lýrísk svíta fyrir hljómveit eftir Pál ísóifsson. Sinfóniuhljómsveit íslands leikur. Páll P. Pálsson stjórnar. 21.40 „Nýr maður", smásaga eftir Böðvar Guðmundsson. Jlöflindlir les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi Þorgilsson danskennari velur lögin og kynnir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.