Dagblaðið - 31.08.1976, Síða 1

Dagblaðið - 31.08.1976, Síða 1
2. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGUST 1976 — 192. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMIL27022 ÁnA KSLENDINGAR SKILDIR EFTIR Á FLUGVELLIÁ SPÁNI Átta íslendingar sitja nú úti á Spáni peningalausir og án farangurs síns. Flugvél Arnar- flugs, í leiguflugi fyrir Sunnu, skildi þá eftir á flugvellinum í þessi atburður eftir skringi- legan skollaleik við afgreiðslu flugvélarinnar tii brottfarar. Farþegar allir voru komnir á réttum tíma og farangur í vélina. Stóð fólkið í u.þ.b. 30 mín. við útgönguhlið, unz því var hleypt að vélinni. Er þeir fyrstu komu I vélina var þeim snúið þar vió og sagt að 40 mín. seinkun yrði á brottför. Fólkið settist hvar sem það gat milli flugstöðvar og vélar en örfáir fóru aftur inn í flugstöðina. Er um 20 mín. voru liðnar af hinni tilkynntu 40 mín. seinkun, tók fólk að leita inn í vélina aftur. Voru nú höfð ein- kennilega snör handtök við vélina og starfsmenn gerðu sig Ifklega til að taka landganginn. Fjórir komust upp hann fyrir náð og miskunn, en þá voru 8 farþegar eftir, meðal þeirra piltur, sem hlaupið hafði úr vélinni til að sækja kunningja sinn inn I flugstöðina. Þar hafði fildrei verið tilkynnt um endanlega brottför. í hópi hinna átta, sem eftir voru skildir, eru fullorðin hjón og varð konunni afar mikið um atburðinn er hún sá á eftir flug- vélinni. Starfsmenn á vellinum munu vinna með „hægagangi" vegna kaupkrafna sinna. Mun það e.t.v. eiga einhvern þátt í atburðinum. -EMM/ASt. Dr. Kiesling, þýzki afbrotafrœðingurinn: Fer utan með gðgn til rannsóknar úr Geirfinns- og Miklubrautarmólinu Dr. Kiesling, annar þýzki rannsóknarmaðurinn sem hér hefurverið til aðstoðar rann- sóknarlögreglunni, fer utan til Þýzkalands í dag. Er talið víst, að hann hafi meðferðis verk- efni til efnafræðilegrar úr- vinnslu í bækistöðvum sinum í Wiesbaden, meðal annars úr morðmálinu á Miklúbraut. Dr. Kiesling er lífefna- fræðingur með sérþekkingu I afbrota- og lögreglumálum. Hafði hann fengið gögn úr Geirfinnsmálinu áður en hann kom hingað til lands fyrir rúmri viku. Hefur hann unnið með tæknideild rannsóknarlög- reglunnar síðan. Gerði hann sér dagamun 1 gær og skrapp til Kulusuk á Grænlandi, en fer utan I dag sem fyrr segir. Er þess að vænta að hann komi hingað aftur til starfa en ekki er kunnugt hvenær það muni verða. — JBP — Allt tiltœkt starfslið vinnur í morðmólinu: Gœzluvarð- haldsfanginn sóst ganga í ótt að húsinu Allt tiltækt starfslið rann- sóknarlögreglunnar í Reykja- vik vinnur að rannsókn morðsins á Lovisu Kristjáns- dóttur á Miklubraut 26 á fimmtudaginn. Enn hefur ekkert það komið fram er bendir til lausnar málsins, um- fram það sem áður hefur verið skýrt frá i DB. Maðurinn, sem situr í gæzlu- varðhaldi vegna málsins, heldur statt og stöðugt fram sakleysi sínu. Vitni hafa borið, að þau hafi séð hann á gangi í áttina að húsinu, þar sem morðið var framið, á ákveðnum tíma þennan dag. Annar maður, sem handtek- inn var í fyrrakvöld, var látinn laus um hádegisbilið í gær, eftir að hann hafði gert fulla grein fyrir ferðum sinum og athöfnum daginn sem morðið var framió. Margir hafa verið yfir- heyrðir vegna málsins og er lögð mikil áherzla á að málið upplýsist sem fyrst, að sögn Gísla Guðmundssonar rann- sóknarlögreglumanns. — ÖV VEGAMALASTJORA BOÐIÐ í BÍLTÚR — Vegurinn frú Holtavörðuheiði til Reykjavíkur talinn óökufœr „Ég vil bjóða vegamála- stjóra og blaðamanni Dag- blaðsins í bíltúr norður að Holtavörðuheiði,“ sagði sár- reiður Akureyringur, sem kom til bæjarins í fyrrakvöld. „Ökuferðin þarf ekki að verða lengri en upp að Hvítá, því þá yrðu farþegar búnir að fá nóg af holunum og farartækió kannski endanlega ónýtt, ef ekið væri með eðlilegum hraða.“ Akureyringurinn kvað aðal- þjóðveg landsins í þessa átt með öllu óökufæran á áður- nefndum kafla. Á honum er varla kafla að finna án holu, og vilji menn ekki stórskemma ökutæki sín, verða þeir rétt að lúsast áfram sem á fjallvegi •væri. Akureyringurinn kvaðst hafa haft bílpróf i 30 ár og óft eiga leið á nnlli en nú hefði alveg keyrt um þverbak. Kvaðst hann hafa farið um öræfin fyrir stuttu og ökuferð þar verið leikur á við þetta. „Er ekki til veghefill sunnan heiðar," sagði Akureyringur- inn, sem átti engin orð yfir sofandahátt Vegagerðarinnar. — ASt. Hœstaréttarlögmaðurinn gerir grein fyrir sinni hlið: Okurstarfsemi verzlunar- manns ó Akranesi og „leigubíl- stióra" í Reykjavík — sjó bls. 8 íslenzkir popparar fluttir út? — sjó bls. 9 • Dagurinn sem sólin skein í Reykjavik — sjó bls. 8-9 íslenzkar hofgœrur í Ameríku - sjó bréf fró henni Ameriku eftir Þóri S. Gröndal bls. 10-11

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.