Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 31.08.1976, Qupperneq 7

Dagblaðið - 31.08.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. — ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1976. Erlendar fréttir ÖMAR ^HEpS'f VALDtMARSSON PETURSSON 8 REUTER 8 Líbanon: Óttast örþrífa- ? SOVÉZKUR KAFBÁTUR OG BANDARÍSK FREIGÁTA [tVoru þau hlaðin kjarnorkusprengjum ? Sovézkur kjarnorkuknúinn kafbátur, sem kann að hafa kjarnorkuvopn innanborðs, lenti í árekstri við bandarfska freigátu á Miðjarðarhafinu á laugardag, að sögn talsmanns landvarnaráðuneytisins banda- ríska. Skemmdir urðu óverulegar á skipunum og einu meiðslin hlaut einn af áhöfn freigát- unnar, er hann féll og hand- leggsbrotnaði við áreksturinn. Að sögn talsmanns Pentagon var kafbáturinn af gerðinni Echo 2, einn 27 slikra báta sem borið geta átta SSN-eldflaugar, er skjóta má allt að 250 mílna vegalengd. Freigátan Voge, sem er með 247 manna áhöfn, var á siglingu um sex mílur frá annarri freigátu úr sjötta flotanum á Miðjarðarhafi undan ströndum Grikklands er áreksturinn varð. Segir ennfremur i frétt- um að kafbáturinn, sem er 5.600 tonn að stærð, hafi komið upp á yfirborðið eftir á- reksturinn og þá hafi sézt einhverjar smávægilegar skemmdir á stjórnturni hans. Árekstrar af þessu tagi eru afar sjaldgæfir og er rannsókn i full- um gangi. Nýr fundur Kissingers og Vorsters: Guadeloupe: Brennisteinsfjall fór að gjósá í gœr ráð Sýr- lendinga — Sarkis til fundar við þá í dag Kjörinn forseti Líbanon, Elias Sarkis, mun halda til fundar við sýrlenzka ráða- menn í dag, þar sem hann mun eiga við þá alvarlegar við- ræður, áður en hann tekur við embætti 23. september n.k. Búizt er við, að spennan í Libanon kunni að aukast næstu þrjár vikurnar og menn óttast nú, að Sýrlendingar kunni að grípa til örþrifaráða til þess að binda enda á styrjöldina þar í landi. For- maður sérstakrar sendinefnd- ar Arababandalagsins hefur undanfarið rætt ýmsar laga- legar leiðir til þess að binda enda á styrjöldina við alla aðila, sem viðriðnir eru málið, en þær viðræður hafa ekki vakið mikla bjartsýni. Fóstureyð- ingum fjölgar í Danmörku Fóstureyðingum hefur farið mjög fjölgandi í Danmörku síðan þær voru gefnar frjálsar þar fyrir þremur árum, að því er kemur fram i nýlegri skýrslu dönsku hagstofunnar. I fyrra fjölgaði fóstur- eyðingunum um þrjú þúsund í Danmörku frá árinu áður, og frá 1973-74 fjölgaði fóstureyðingum um ca átta þúsund. Aukningin er mest meðal ungra kvenna og hún er meiri í þéttbýli en dreifbýli. Edlfjallið Soufriere (Brenni- steinsfjall) sem er á frönsku eynni Guadelopue í Karíbahati fór að gjósa seint í gærkvöld. Nokkrir vísindamenn meiddust þegar gosið hófst, þar sem þeir voru að störfum í hlíðum þess. Bandaríska jarðfræðistofnunin í Washington veitti þær upplýsingar eftir tveimur starfs- mönnum sínum á eynni, að gosið væri mikið. Hraunstraumurinn liggur niður eftir hlíðum þess og öskugusurnar ganga tugi metra í loft upp. Gosið var þó engan veginn jafn kröftugt og búizt hafði verið við. Vísindamenn höfðu áður látið í ljós þá skoðun, að fjallið gæti sprungið í loft upp með krafti, sem væri sambærilegur við „nokkrar“ kjarnorkusprengjur, eða allt að 30 megatonna krafti. Búizt er við að harðar samn- ingaviðræður muni eiga sér stað milli Henry Kissingers utanrlkis ráðherra Bandaríkjanna og John Vorsters forsætisráðherra Suður- Afríku, um framtíð þess lands og Ródesíu, er þeir hittast um næstu helgi. Talið er að jákvæð viðbrögð gagnvart samningsdrögum Kissingers um lausn málanna, er hann lagði fram á síðasta fundi þeirra, hafi orðið til þess að öðrum fundi var komið í kring. Fundarstaður þeirra hefur nú verið ákveðinn í Ziirich en þeir hittust síðast í smáþorpi í Bavaríu. Þótt ekki sé vitað hvað þeim fór á milli á þeim fundum, er talið að þeir hafi aðallega rætt möguleik- ann á nýrri lausn í deilunni um Ródesíu og möguleika á því, að Suðvestur-Afríka hljóti sjálf- stæði. „Kissinger-áætlunin“ er talin fela í sér alþjóðlega tryggingu hvítum mönnum undir stjórn blakkra í Ródesíu til handa, aætur fyrir þá hvíta menn sem ákveða að flytja úr landi og al- hliða efnahagsaðstoð fyrir heims- hlutann. Þá er búizt við að Kissinger krefjist svars við því hversu mikinn möguleika Suður- Afríkumenn hafi til þess að koma í kring nýjum friðarviðræðum milli hinna stríðandi sveita 1 Ródesíu, sem nú hafa borizt á banaspjótum í alllanga hríð I dag mun öryggisráð Samein- uðu þjóðanna ræða málefni Suð- vestur-Afríku, en það hefur áður krafizt þess að Suður- Afríkumenn verði á brott úr land- inu og að þar verði komið á sjálf- stæði undir verndarvæng samtak- anna til að byrja með. Frá því að síðasti fundur ráða- mannanna tveggja var haldinn hafa 11 þjóðarbrot lýst yfir þeim ásetningi sínum að lýsa yfir sjálf- stæði fyrir árið 1979. Eftir alla þurrkana: Hann rígnir íLondon Eins og öllum er kunnugt hafa verið miklir þurrkar í Bretlandi að undanförnu og er: talið að efnahagur landsins verði lengi að komast í samt lag eftir þau miklu spjöll sem þeir hafa valdið á ökrum og I verk- smiðjum, þar sem mikið vatn þarf til framleiðslu. Um helgina tók að rigna víða umi landið og í London gerði úrhellisrigningu. Hafa vonir manna þvi aukizt um, að vandræðunum sé að ljúka. Rotta beit sofandi konur Tvær konur, sem búa í þorp- inu Husum í Danmörku, urðu fyrir árás rottu þar sem þær sváfu i rúmum sínum. Voru þær báðar fluttar á slysavarð- stofu til meðferðar. Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á staðinn og drápu lögreglumennirnir rottuna með kúbeini. Konurnar vor;u báðar sofandi í rúntum sínum er rott- an skreið inn til þeirra og beit þær báðar illa í fingurna. verk a sér inn í viðinn og ver hann rotnun og fúa. I S/rppféfagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðian Dugguvogi Símar 33433og 33414

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.