Dagblaðið - 01.09.1976, Side 7
DAGBLAÐIÐ. — MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1976.
Erlendar
fréttir
Stalin
fœr
minna
pláss
en áður
— í nýrri ótgáfu
sovézku al-
frœðibókarinnar
Tuttugu og þremur árum
eftir dauða Stalins hefur
plássið sem honum var ætlað í
„Hinni miklu sovézku
alfræðiorðabók“, verið skorið
niður um helming.
En í 24. bindi safnritsins um
bókmenntir, sem nýlega hefur
verið gefið út í Sovét-
ríkjunum, er hann ekki gagn-
rýndur eins harðlega og áður
hefur verið siður þar í landi,
eða frá árinu 1957.
Þar var áður grein um
Stalín, fjórum árum eftir að
hann lézt og einu ári eftir að
honum var hafnað sem
harðstjóra af eftirmanni hans,
Nikita Khrushchev.
Tólf ár eru liðin frá því að
Khrushchev féll i ónáð og alla
tíð síðan hefur verið reynt að
draga úr spennunni vegna
gagnrýninnar á hendur
Stalín. Kemur þetta berlega
fram í nýju útgáfunni af safn-
ritinu.
Þar er ekki minnzt beint á
ofsóknir Stalíns fyrir og eftir
seinni heimsstyrjöldina, þar
sem álitið er að fjöldi fólks,
sumir telja allt að einni
milljón, hafi látið lífið.
Segir ennfremur í greininni,
að „persónudýrkun", eins og
Stalínstímabilinu er gjarnan
lýst, „varð til þess að brjóta
harðlega gegn hugmyndum
sósíalismans og braut mjög í
bága við starfsemi flokksins og
stefnuna um uppbyggingu
kommúnismans.
I útgáfunni, sem birt var
árið 1957, var Stalín sakaður
um „fjöldaofsóknir“ og segir
þar ennfremur að yfirmenn
leynilögreglu hans, þeir
Yagoda, Yezhov og Lavernty
Beria hafi „myrt og útrýmt
fjölda heiðarlegra manna, sem
undirgefnir hafi verið flokkn-
um“.
Kissinger varar hvíta Afríkumenn við:
„Stjóm blökkumanna
er óumfíýjanleg!"
Kissinger, utanrikisráðherra Bandarikjanna, hefur boðað harða afstöðu til kynþáttamisréttisins í
Ródesíu og Namibíu fyrir fund sinn með Vorster.
Utanríkisráðherra Banda-
rlkjanna, Henry Kissinger, sem
nú undirbýr fund sinn með for-
sætisráðherra Suður-Afríku,
John Vorster, hefur sagt að
hvítir menn í Ródesíu og Nami-
bíu verði að viðurkenna að
stjórn blakka meirihlutans í
landinu verði að veruleika fyrr
eða síðar.
Hann sagði á fundi með
áhugamönnum um málefni
Afríkuríkja í Philadelfíu í gær,
að „hvítir menn í Ródesíu og
Namibíu hljóta að sjá að stjórn
meirihlutans er óumflýjanleg.
Eina vandamálið er hvernig sú
stjórn á að vera og hvernig
henni verður komið á“.
Sagði hann ennfremur að
stjórnvöld í S-Afríku hefðu
stigið jákvæð skref í þessa átt
með því að lýsa yfir stuðningi
við stjórn meirihlutans í
Ródesíu og með því’að fastsetja
dag fyrir sjálfstæði Namibiu.
„Ölíkt því sem gerist í
Ródesíu og Namibíu er ekki
hægt að segja að stjórnvöld í
S-Afríku séu ólögleg eða utan-
aðkomandi nýlendustjórn.
Flestir blökkumannaleiðtogar
viðurkenndu að hvítir menn,
sem búið hefðu í landinu öldum
saman, væru hluti þjóðar'-
innar,“ sagði hann ennfremur.
Réðst Kissinger gegn aðskiln-
aðarstefnunni, sem hann sagði
ósamræmanlega mannlegri
virðingu, — en það er talið vera
útspil til þess að verja ferð
hans til Zurich, þar sem hann
hittir John Vorster, sem hefur
verið gagnrýnt i Bandaríkjun-
um.
Guadeloupe: . . ,
r — segir franskur
BRENNISTEINSFJALL jarðeðlis-
GÆT/ ENN SPRUNGID frœðingur
Franskur eðlisfræðingur varaði
í gærkvöld við aukinni hættu frá
eldfjallinu Soufriere á frönsku
eynni Guadeloupe í Karíbahafi,
þrátt fyrir eldgosið sem hófst þar
í fyrradag og talið er að hafi leyst
úr læðingi töluvert af þeirri orku
sem býr í iðrum fjallsins.
Prófessorinn Allegre, frá eðlis-
fræðistofnuninni í París, sagði að
óvenjumikið gler hefði borizt upp
úr fjallinu í gær og gæti það bent
til, að Soufriere væri að búa sig
undir kröftugra sprengigos. „Við
skulum ekki taka of djúpt í
árinni, en okkur ber að fara að
með fyllstu gát,“ sagði Allegre
prófessor við fréttamenn í Point-
á-Pitre, höfuðborg Guadeloupe.
Soufriere (Brennisteinsfjall)
er 1484 metra hátt og hóf að gjósa
ösku og hrauni I fyrrakvöld.
Sjötiu þúsund manns hafa verið
fluttir á brott frá svæðunum um-
hverfis fjallið, sem vísindamenn
töldu að myndi springa í loft upp
af krafti sem væri á við nokkrar
kjarnorkusprengjur.
Hafréttarráðstefnan:
Viðrœðurnar í baklás
Henry Kissinger, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, mun
halda til New York til þess að
athuga hvort hann megi verða að
liði við að koma umræðum á haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í gang á ný.
Búizt er 'við að hann verði í
New York þar til síðdegis á morg-
un.
Helmingur af þeim tíma sem
ætlaður var til ráðstefnuhaldsins
er nú liðinn en ráðstefnuna sækja
fulltrúar 150 landa.
Hafa viðræðurnar siglt i strand
vegna þess, hversu fulltrúar eru
ósammála um ákvæði um nýtingu
hafsbotnsins.
Þróunarlöndin hafa krafizt
þess að yfirráðin yfir nýtingu auð-
linda hafsbotnsins verði falin al-
þjóðlegri nefnd en Bandarikja-
menn vilja að komið verði á fót
annarri nefnd sem gæti réttar
einkafyrirtækja í þvl sambandi.
Hafa þeir hótað því að þeir
muni hefja málm- og olíuleit á
hafsbotni innan skamms, enda
þótt ekki verði búið aö ná sam-
komulagi um þessi atriði.
Gúmmihúðaðir
leðurfótboltar
Argentinia^^
Verð aðeins kr. 3.750.-
Markmanns-
hanzkar
Verð kr. 1.310.-
Quick og Stylo
Fótboltaskór
Hagstœtt verð
0
Islensk
fyrírtæki
76-77
komin út
Bókin Islensk fyrirtæki veitir
aðgengilegustu og
víðtækustu upplýsingar um
íslensk fyrirtæki, félög og
stofnanir, sem eru fáanlegar
í einni og sömu bókinni.
Islensk fyrirtæki skiptist
niður í:
Fyrirtækjaskrá,
Viðskipta- og þjónustuskrá,
Umboðaskrá
og
lceland today. Viðskiptalegar
upplýsingar á ensku um
l’sland í dag.
Islensk fyrirtæki kostar kr.
4.500.—.
Sláið upp í
"ÍSLENSK FYRIRTÆKI”
og finnið svarið.
FÆST HJÁ ÚTGÉFANDA.
Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf.
Laugavegi 178 - Símar: 82300 82302