Dagblaðið - 01.09.1976, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. — MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 197^.
12
i
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Landsliðið gegn
Belgum valið
Nú hafa 16 leikmenn verið valdir
fyrir iandsleik íslands og Belgíu á
sunnudaginn í undankcppni Heims-
meistarakeppninnar. Lokakeppnin
fer fram í Argentínu 1978, en and-
stæðingar íslands, eru Belgía, Hol-
land og N-írland.
Fimm atvinnumenn koma til
leiksins, þannig að ísland mun
stiila upp sínu sterkasta liði, og því
ættu möguleikar á óvæntum úr-
slitum hér í Laugardal vissuiega að
vera fyrir hendi.
IlinirlGeru: Landsl.:
Arni Stefánsson, Fram 9
Sigurður Dagsson, Val 13
Öiafur Sigurvinsson, IBV 23
Marteinn Geirsson, Royale Union 23
Jóhannes Eðvaldsson, Celti 18
Jón Pétursson, Fram 17
Gísli Torfason, ÍBK 21
Halldór Björnsson, KR 8
Guðgeir Leifsson, Charleroi 32
Asgeir Sigurvinsson, St. Liege 15
Asgeir Elíasson, Fram 23
Arni Sveinsson, IA 9
Ingi Björn Albertsson, Val 6
Matthías Hailgrímsson, Ilalmia 41
Teitur Þórðarson, IA 23
Guðmundur Þorbjörnsson, Val 3
íþróttir
Stigakeppni GSÍ
Staðan í stigakeppni G.S.Í. — 10
manna landsliðsúrval til vals á
landsliði.
Að loknum 8 stigamótum G.S.t.
1976 er röð efstu manna sem hér
segir:
stig
3 beztu mót
1. Björgvin Þorsteins., G.A. 135.95
| 2. Ragnar Ölafsson, G.R. 95.95
3. Þorbjörn Kjærbo, G.S. 95.50
: 4. Sigurður Thorarensen, G.K. 95.20
5. Þórhallur Hólmgeirsson,
l G.S. 85.85
I 6. Geir Svansson, G.R. 65.20
| 7. Sigurður Pétursson, G.R. 60.30
8. Einar Guðnason, G.R. 54.30
9. Jón Haukur Guðlaugsson,
N.K. 52.15
10. Öskar Sæmundsson, G.R. 48.50
Sigur Borg
Björn Borg, Svíinn ungi sem fyrir
nokkrum vikum vann Wimbledon-
keppnina, hina óopinberu heims-
meistarakeppni tennisleikara, bætti
enn skrautfjöður í hatt sinn þegar
hann sigraði Harold Solomon 6-7,
6-4, 6-1, 6-2 í úrslitum bandariska
tennismótsins fyrir atvinnumenn.
Þetta er í þriðja sinn í röð sem Borg
vinnur þennan titii.
UMFN til
Skotlands
Njarðvík mætir Boroughmuir
Barrs frá Edinborg í Evrópukeppni
bikarhafa í körfuknattleik. Segja
má að Njarðvíkingar hafi þar verið
heppnir — bæði eiga þeir
möguieika á framhaldi í keppnina
og eins eru ferðalög til Skotlands
ódýr.
Ekkert mark var skoroð
| leik hinna sterku varna
— Valur og Breiðablik skildu jöfn 0-0 í undanúrslitum Bikarkeppni KSÍ
og því enn óróðið hvort liðið mœtir ÍA í úrslitum
Islandsmeistarar Vais og Breiða-
bliks iéku i undanúrslitum Bikar-
keppni KSl og skildu liðin jöfn eftir
120 mínútna leik — hvorugu liðinu
tókst að skora. Leikurinn olli von-
brigðum í blíðunni í Laugardal, ef
til vill ekki nema von þar sem bæði
lið hugsuðu fyrst og fremst um að
tapa ekki. Leikurinn einkenndist
því fyrst og fremst af sterkum
varnarleik og ágætri markvörzlu
beggja markvarða.
Mikil deyfð var yfir Valsliðinu,
rétt eins og áhuginn fyrir bikar-.
keppninni væri ekki fyrir hendi.
Blikarnir börðust hins vegar mjög
vel — gáfu aldrei þumlung eftir og
voru eilítið betri aðilinn á vellinum.
Því hefði ef til vill ekki verið
ósanngjarnt að Kópavogsliðið
sigraði — að minnsta kosti munaði
sáralitlu að Blikarnir skoruðu í
síðari hálfleik þegar sending var
gefin fyrir mark Vals og Þór
Hreiðarsson renndi knettinum í átt
að marki en rétt framhjá. Þar fór
bezta tækifæri Blikanna forgörðum.
Þór hefði betur skotið.
Ef við snúum okkur að byrjun-
inni þá hófu Blikarnir leikinn betur
og tvívegis í fyrri hálfleik hefðu
þeir getað skorað ef lukkan og eins
klaufaskapur þeirra sjálfra hefði
ekki komið í veg fyrir það.
Fyrra tækifæri sitt fengu Blik--
arnir á 18. mínútu þegar Hinrik
Þórhallsson fékk knöttinn i vítateig
Vals en Sigurður Dagsson varði
slakt skot hans. Síðara tækifærið
kom skömmu síðar er Hinrik komst
einn inn fyrir vörn Vals en Sigurður
Dagsson. sem var mjög traustur í
marki Vals, varði mjög vel með góðu
úthlaupi.
En smám saman náðu Islands-
meistararnir betri tökum á leiknum
þó ekki hefðu þeir náð að sýna sínar
beztu hliðar. Þó munaði ekki nema
hársbreidd að Guðmundur Þor-
björnsson skoraði í lok hálfleiksins.
Ingi Björn Albertsson brauzt upp
hægri kantinn og gaf góða send-
ingu fyrir mark Blikanna og Guð-
mundur, með opið markið fyrir sér,
var aðeins hársbreidd frá að ná
knettinum.
Staðan í leikhléi var því 0-0.
Síðari hálfleikur var mun daufari
en hinn fyrri — Valsmenn fengu
bezta marktækifæri hálfleiksins.
Ingi Björn komst inn fyrir vörn
Biikanna skömmu fyrir leikslok en
skot hans var ónákvæmt og Ölafur
Hákonarson, sem átti einn sinn
bezta leik í sumar, varði.
Því var óhjákvæmilegt að fram-
lengja og fátt markvert gerðist utan
er Atli Eðvaldsson brauzt skemmti-
lega upp vinstri vænginn og inn í
vítateig Blikanna. Hann gaf góða
sendingu á Guðmund en hann stóð
illa að markinu og tækifærið rann
út í sandinn. Betur hefði Atli gefið á
Inga þar sem hann stóð í vítateign-
um einn og óvaldaður:
Jafntefli var því niðurstaðan og
enn er því óráðið hvort það verður
Breiðablik eða Valur, sem mætir
Akranesi á Laugardalsvellinum
þann 12. september í úrslitaleik
Bikarkeppni KSl.
Leikinn í gærkvöld dæmdi
Magnús Pétursson og hafði hann
góð tök á leiknum, sem alls ekki
var auðdæmdur. Auðvitað er einn
og einn dómur alltaf umdeilanlegur
en þegar á heildina er litið var dóm-
gæzla Magnúsar til prýði.
h halls.
Erfitt hjá
Dinamo Kiev
Dinamo Kiev á erfitt uppdráttar
um þessar mundir og virðist nú sem
baksiag sé komið í seglin eftir
ágæta byrjun liðsins, sem landslið
Sovétríkjanna. Sjálfsagt kemur þar
til óskaplegt álag á ieikmenn, er
iitla hvíid virðast fá. Síðastliðið
sumar var talað um vor í sovézkri
knattspyrnu en nú hefur dökknað
aftur. Fyrir ári var Dinamov Kiev'
ósigrandi í Sovétríkjunum, en nú
hefur liðið þegar tapað tveimur af
þremur fýrstu leikjum sínum í 1.
deiid.
1 gærkvöld tapaði Kænugarðs-
liðið fyrir Lokomotiv Moskvu, 1-2,
reyndar í Moskvu.
Það var hart barizt í gærkvöld þó uppskeran yrði ekki mikil. Hér nær Heiðar Breiðfjörð að leika á Magnús
Bergs Vai. DB-mynd Bjarnleifur.
Þrútt fyrir takta Marsh
nóði Fulham aðeins jöf nu
— margt óvœntra úrslita í deildabikarnum ó Englandi að venju
Bob Hatton, leikmaðurinn sem
Birmingham City seldi í sumar tii
Blackpool, varð fyrri félögum sín-
um að falli þegar Blackpool og
Birmingham mættust í deilda-
bikarnum í gærkvöld. Blackpool
sigraði óvænt 2—1. Willie Ronson
skoraði fyrra mark Blackpool og
síðan gulltryggói Bob Hatton sigur
Lancashireliðsins með góðu marki.
WBA náði athyglisverðu jafntefli
í Liverpool þegar liðið sótti meist-
arana sjálfa, Liverpool, heim á
Anfield Road. Kevin Keegan
skoraði fyrir Liverpool en aðeins
tveimur mínútum síðar jafnaði hinn
snjalli tengiliður, John Giles, fyrir
WBA. Þótt Liverpool sækti stíft
lokakafla leiksins stóð vörn WBA
þétt fyrir.
En lítum á úrslitin í deildabikarn-
um i gærkvöld:
Arsenal — Carlisle 3—2
Blackpool — Birmingham 2—1
Bristol City — Coventry Ö—1
Chester — Swansea 2—3
Crystal Palace — Watford 1—3
Doncaster — Derby 1—2
Exeter — Norwich 1—3
Liverpool — WBA 1—1
Fulham — Peterbro 1—1
Ipswich — Brighton 0—0
Middlesbro — Tottenham 1—2
Northampton — Huddersfield 0—1
Orient — Hull 1—0
Scunthorpe — Notts. County 0—2
Southampton — Charlton 1—1
Sunderland — Luton 3—1
Walsall — Nott. Forest 2—4
Wolves — Sheff. Wed. 1—2
Malcolm MacDonald skoraði
þriðja mark sitt í þremur leikjum
fyrir Arsenal i 3—2 sigri Lundúna-
liðsins yfir Carlisle. Trevor Ross
skoraði tvö mörk fyrir Lundúnaliðið
á aðeins tveimur mínútum en
Carlisle tókst að minnka muninn í
eitt mark. Rodney Marsh fyrrum
leikmaður Manchester City lék sinn
fyrsta leik með Fulham og þrátt
fyrir gamla takta náði Fulham
aðeins jafntefli gegn 3. deildarliði
Peterborough.
Bráðlega mun knattspyrnugoðið
sjálft, George Best, ’ leika með
Lundúnaliðinu ef að líkum lætur.
Hann hefur þegar samþykkt
samning við félagið — aðeins er
beðið eftir samþykki enska knatt-
spyrnusambandsins. Það er því
margt stjörnuleikmanna með
Fulham — það er fyrrum stjörnu-
leikmanna.