Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. — FÖSTIIDAGUR 3. SEPTEMRER 1976. KISSINGER OG VORSTER HITTAST Á SUNNUDAG Nú er talið endanlega ákveðið að þeir Henry Kissinger og John Vorster forsetkS-Afríku hittist í Zurich næstkomandi sunnudag. Utanríkisráðuneytið banda- ríska hafði tilkynnt, að Kiss- inger gæti ekki komið á sunnu- 4C Kissinger vildi heldur heimsækja pabba sinn og mömmu en ræða við Vorster. daginn, sem átti að vera fyrsti dagurinn af þremur, sem þeir ræðast við. Nú hefur það sem sagt breytzt. Um tíma leit út fyrir að diplómatískt taugastríð væri að hefjast vegna yfirlýsinga Kissingers um kynþáttastefnu Suður-Afríku og viðbragða Vorsters við þeim. Övissan um, hvaða dag fundum þeirra tveggja bæri saman var þó ekki á yfirborðinu spröttin af því taugastríði heldur vegna þess að Kissinger hugðist nota sunnudaginn til að hvíla sig og skreppa jafnvel í heimsókn til, foreldra sinna, sem eru nú staddir í Vestur-Þýzkalandi. Erlendar fréttir i REUTER UTSaiQ Stórkostleg verðlœkkun — utsqiq Elízubúðin, Skipholti 5. iAO daða m& an vteH'>\vú'ó»ur('' >>u'e98 'SS><9'»oa,W I Þér getiö valiö v . um fjölmörg boröstofu- sett - og við hlökkum til aö sjá yöur. Húsgagnadeild Jón Loftsson hf. /a. a a a a a 1 íiíili iiiiiíi] íiiiiiL iliil iiliiiii iiiiiiil {ii j- j i i r I L_ □ CI Zi C LJ L j rjij j; jon r 1 l’l Thl 1 1 i1 ii m Hringbraut 121 Sími 2 8601 OtlRDIR 110ND0N Hér má sjá blökkumenn bera einn félaga sinna á brott í miklum óeirðum, sem staðið hafa í Notting Hill í London að undanförnu, eftir að til átaka kom á Calypso-hátíð þann 30. fyrra mánaðar. A.m.k. 100 manns slösuðust í átökunum, þar á meðai 45 lögreglu- menn, sem komið var með á sjúkrahús. Rúður voru brotnar, bílum velt og þeir brenndir í þessum óeirðum, sem taldar eru vera þær verstu þar i landi síðan 1958. BANDARISKIR BÆNDUR FRAMLEIÐA ÞRISVAR SINNUM NlEtRA AF MATVÆLUM EN ÁRIÐ 1955 Hver bandarískur bóndi framleiðir á dag matvæli fyrir 56 manns, eftir því sem kemur. fram í nýrri könnun, sem bandaríska landbúnaðarráðu- neytið hefur látið gera. Til samanburðar má geta þess að fyrir ellefu árum, árið 1965, framleiddi hver bandarískur bóndi matvæli fyrir 37 manns og árið 1955 fyrir 19.5. Fyrir tveimur öldum, eða árið 1776, lifðu meira en 80% prósent mannkynsins á land- búnaðarafurðum. Þá fram- leiddi hver bóndi ofan í sig og aðeins tvo í viðbót. GE0RGE WASHINGT0N HÆKKAR ENN í TIGN Fulltrúadeild Bandaríkja- þings hefur samþykkt að hækka George Washington í tig, í hershöfðingja, — 176 árum eftir að hann lézt. Hugmyndin um að hækka Washington í tign, úr aðstoðar- hershöfðingja í „hershöfðingja herjanna", kom frá hernaðar- nefnd þingsins sem fannst að hann ætti heiðurinn skilinn. Herinn hefur þó látið í ljós misjafnar tilfinningar vegna samþykktarinnar sem enn á eftir að hljóta blessun öldunga- deildarinnar. Segja ráðamenn þar að stöðuhækkun forsetans fyrrverandi hafi sáralitla þýð- ingu fyrir herinn eða stöðu hans í sögunni. „Alltaf er litið á George Washington sem einn mesta herforingja sem við höfum átt. hvaða stöðu sem hann hafði innan hersins," segir í tilkynn- ingu frá hernum. 200 JI/IÍLUR f N0REGI í DAG? Að fengu fordæmi okkar íslendinga er búizt við að Norðmenn tilkynni þá ákvörðun sína að færa land- helgina út í 200 mílur í dag. Miklar umræður hafa verið um þetta mál í Noregi að undanförnu og er álitið að útfærslan taki gildi 1. nóvember n.k. Tilkynni stjórnin þessa ákvörðun sína í dag. verður að bíða staðfestingar Stór- þingsins, en þar er meiri- hluti þingmanna fylgjandi útfærslunni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.