Dagblaðið - 07.09.1976, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976._
Trausti Einarsson prófessor:
Mismunandi vatnsmagn í
berginu rœður hœkkun og
lœkkun lands við Krðflu
„Þessi hækkun og lækkun
lands, sem verður við og við á
Kröflusvæðinu, eru vegna mis-
munandi styrkleika bergsins,
en sá styrkleiki fer eftir vatns-
magni i berginu", sagði Trausti
Einarsson hjá Raunvísinda-
stofnun Háskólans í viðtali við
Dagblaðið. „Sigið verður ein-
faldlega er stinnleiki þess
minnkar, eins og t.d. varð, er
stóra borholan sprengdi allt af
sér og á sama hátt verður vart
við hækkun á landinu, er peim
tekst að beizla borholur, eða
þegar þær lokast, eins og gerzt
hefur“.
„Ég fæ ekki séð, að þetta ris,
sem þeir eru að tala um, hafi
nokkuð með hraunkviku að
gera“, sagði Trausti ennfrem-
ur.
Jarðfræðingar hafa gert
flóknar mælingar með jarð-
skjálfta og bergmálsmælum á
svæðinu og segja þeir jarðrisið
verða vegna þess, að hraun-
kvikan sé að þrýsta sér upp í
sprungur í jörðinni.
„Það er afskaplega flókið að
eiga að túlka niðurstöður
þeirra mælinga'1, sagði Trausti.
„Ég hef séð sumt af þeim gögn-
um, en gallinn er bara sá, að
þeir, sem þessu halda fram,
hafa aldrei lagt fram þau gögn,
sem þeir telja sig geta byggt
skoðanir sínar á.“
Sagði Trausti, að lengi hefðu
legið fyrir nákvæmar mælingar
á þessu.
„Jú, jú, þessi kenning er
þekkt utan úr heimi" sagði
Páll Einarsson hj-á
Raunvísindastofnuninni i
viðtali við Dagblaðið. „Þetta
hefur verið rætt hér hjá okkur,
en er ekki talið geta átt við í
þessu tilviki og þetta skýrir
ekki, hvers vegna bergmáls-
mælageislar ná ekki um allt
svæðið."
9
\
Sagði Páll það vera rétt, að
þeir vísindamenn, sem sett
hefðu fram kenningarnar um
hraunkvikuna, sem Trausti
minnist á, hefðu ekki lagt fram
öll gögn viðvíkjandi málinu,
„enda ekki hægt að skýra það í
stuttu máli fyrir almenningi.
Hins vegar er ekki hægt að
túlka niðurstöður þeirra
mælinga á annan hátt. en við
höfum gert“, sagði Páll enn-
fremur. -HP.
Skólarnir byrjaðir:
„Iss, það eru svoddan
lœti í þessum strókum"
— segja stelpur
Hún Eygló litla var ósköp
áhyggjufull á svipinn þar sem
hún stóð með ömmu sinni í and-
Pær stollurnar Linda og Brvndis
fara nú hvor i sinn skóla.
Sjáið þið nýju skólatöskuna hans
Einars. sem er að fara í fvrsta
skipti í skóla og fékk hana af því
tilefni. Margrét mamma hans og
Hekla lilla s.vstir hans veittu
honum hald og traust á þessum
fyrsta degi. Leifur, níu ára,
stendur á bak við með spánnýja
slundaskrá.
dyri Breiðagerðisskóla í gærdag.
Það var svo sem von, því að það
hafði gleymzt að lesa upp nafnið
hennar, þegar listinn yfir krakk-
ana í sjö ára bekk var kynntur.
Amma hennar reyndi sitt bezta til
að sannfæra hana um, að þetta
gerði samt ekkert til. Hún kæmist
nú samt í skólann. „Ég er bara
sex... en verð sjö ára 2. nóvem-
ber,“ sagði Eygló, þegar hún
fékkst til að tala. Jú, hún þekkti
nokkra stafi og hún hlakkaði til
þess að læra að lesa.
Linda, tíu ára, kom askvaðandi
út úr skólanum. Hún hafi verið
inni hjá skólastjóranum, „sem var
voða almennilegur", til þess að fá
hjá honum ýmis gögn. Hún var að
skipta um skóla. Ætlaði að ganga í
skóla í Grindavík. „Ég hef oft
skipt," sagði Linda. „Eg hef verið
í skóla í Kópavoginum og tvisvar í
Breiðagerðisskóla. Það er lang-
skemmtilegast að læra reikning
og leikfimi. Þetta er hún vinkona
mín, hún Bryndís. Hún passaði
þessa tvo frændur mína frá
Hafnarfirði á meðan ég fór inn til
skólastjórans." Bryndís tekur
þátt í samtalinu og segir að það sé
áreiðanlega langskemmtilegast að
læra handavinnu, sund og leik-
fimi. „Bróðir minn, sem er átta
ára. er í Breiðagerðisskóla eins og
ég. Iss, þar eru alltaf svoddan læti
í þessum strákum. Þeir eru
helmingi verri en stelpur.“ Linda
samþykkir það.
Frændurnir hennar Lindu eru
ekkert hrifnir af þessari yfir-
lýsingu Bryndísar, en láta sem
ekkert sé, enda ekki háir í loftinu
enn. Steingrímur, sem er sex ára,
ætlar í Víðistaðaskólann i
Norðurbænum í Hafnarfirði og
hlakkar ósköp til þess að læra að
lesa. en Úlfar, fjögurra ára, á ekk-
ert við neinn skólalærdóm ennþá.
Ömmurnar tvær, sem þarna
voruaðlíta eftir krökkunum, þær
Jóhanna og Ólína, láta vel yfir því
hlutverki sínu að vera ganga-
verðir.
„Við konur erum alls staðar að
hasla okkur völl,“ segja þær
kímnar og bæta vió að þær láti
það alveg óátalið að afar annist
líka vörzlu í skólum. Yfirleitt
sáust ekki konur við þetta éftirlit
hér áður fyrr.
Þær upplýsa okkur um að
nemendum hafi fækkað töluvert í
Breiðagerðisskóla. Til dæmis
voru níu tólf ára bekkir í fyrra, en
í ár verða þeir aðeins fjórir. Foss-
vogsskóli verður í fyrsta skipti
með tólf ára bekki í ár og þar er
meðal annars að finna ástæðuna
fyrir fækkuninni. EVI
Það eru ekki bara litlu krakkarnir sem mæta í skólann í fyrsta sinn í
sjö ára bekk. IVIeð þeim koma líka mömmur, ömmur eða aðrir — oftast
ættingjar.
Já, svona eru þessir strákar, þeir eru alltaf heimingi óþekkari en
stelpur.
Þær eru allar ömmur þessar þrjár í aftari röðinni, Kristjana, Jóhanna
og Óiína. 1 fremri röðinni eru Eygló, (Jlfar, Bryndís og Steingrímur.
Tilefni mvndatökunnar var byrjun skólanna í gær. DB-mvndir Arni
Páll
VÖRUFLUTNINGA- OG FARMGAFLUG f SENN
— Flugleiðir hyggjast ekki fara inn á þessa braut á nœstunni
Fyrirkomulagsbreyting á
N-Atlantshafsflugi SAS:
SAS flugfélagið á nú í
smíðum Boeing 747 breiðþotu í
Bandarikjunum og á hún að
vera í senn flutninga- og far-
þegavél. Er hún sérstaklega
smíðuð fyrir Norður-
Atlantshafsflugleiðina milli
Bandarikjanna og Skandinaviu.
A hún að kosta um 40 milljónir
dollara og hefur önnur eins
verið pöntuð. einnig fyrir þá
leið. en sú fyrri kemst í notkun
á næsta ári.
Talsmenn félagsins segja að
þessi kaup b.vggist á tveggja ára
athugun á vöruflutningaeftir-
spurn á þessari leið.
Blaðið sneri sér til Sigurðar
Helgasonar, forstjóra Flug-
leiða, og spurði hann hvort
Flugleiðir stefndu hugsanlega
inn á þessa braut hvað varðar
Norður-Atlantshafsflugið.
Hann sagði að vöruflutningar
Flugleiða væru svo hverfandi
litlir miðað við farþegaflutn-
ingana. að miðaó við óbreytt
ástand í þeirn efnum myndi
félagið ekki fara inn á þessa
braut. Hann leit ekki á þessa
fyrirkomulagsbreytingu
SAS sem aukna samkeppni við
Flugleiðir og taldi hann
ekki heldur að SAS gengi með
nokkru nióti á hlut Flugleiða
með þessu. — G.S.