Dagblaðið - 07.09.1976, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976.
Iþróttir Iþróttir íþróttir íþ róttir
Gullbiörninn i
miklum ham
Jack Nicklaus bætti einni
skrautfjöðrinni í litríkan hatt
sinn í gær, þegar hann sigraði í
„Vorld-series“ • goifkeppninni
miklu á sunnudag Það er ein
mesta pcningakcppnin í Banda-
rikjunum — verðlaun samtals
300 þúsund dollarar. Gull-
björninn Nicklaus sigvaði með
nokkrum yfirburðum — Iek
holurnar 72 á 275 höggum. Hail
Erwin varð annar með 279 högg
og Hill þriðji með 280.
Þegar síðasta umferðin hófst á
sunnudag var Jack Nickiaus í
þriðja sæti — tveimur höggum á
eftir japönskum golfmanni og
Hubert Green. En Nicklaus lék
lokaumferðina snillarlcga og
hafði náð þessum tveimur eftir
fjórar holur. Síðan tók hann
forustuna — lék hringinn
glæsilega á 68 höggum. Þetta var
sjötti sigur Nicklaus í þessari
miklu keppni.
Finnar unnu Svía
Finnar sigruðu Svia í lands-
keppni í frjáisum íþróttum, sem
háð var i Ilelsinki um helgina.
Hlutu 223 stig gegn 187 í karla-
keppninni og 91 stig gegn 66 í
kvcnnakcppni. Ahorfendur voru
40 þúsund hvorn dag. Mesta
athygli vakti, að Lasse Viren
tapaði fyrir ianda sínum Martti
Vainio í 10 km hlaupinu. Ætlaði
sér að setja heimsmel, en sprakk.
IHjóp á 28:46.21 mín. Vainio á
28.30.58 mín. Þá varð olympíu-
meistarinn Anders Gjærderud
aðcins fjórði í 3000 m hindrunar-
hiaupi — hljóp á 8:42.29 mín.
Kantanen sigraði á 8:27.35 mín.
Dinamo Tiblisi
bikarmeistari!
Dinamo Tiblisi sigraði Ararat
Yerevan í úrslitaleik sovézku
bikarkeppninnar 3-0 um helgina.
Leikurinn fór fram á Leninleik-
vanginum í Moskvu að viðstödd-
um 75 þúsund áhorfendum. Bæði
liðin eru úr Sovétríkjunum.
Dinamo frá Georgíu og Ararat við
landamæri Tyrklands. Ararat
Yerevan var bikarmeistari Sovét-
ríkjanna i fyrra.
Dinamo Tiblisi mætir Cardiff
City frá Wales í 1. umferð
Evrópukeppni bikarhafa.
Þeir skora í
Þýzkalandi!
Eintracht Frankfurt sigraði
Schalke 04 6-3 í viðureign
liðanna í Bundesligunni
þýzku. Já, þeir hafa ekki
gleymt að skora mörk, Þjóð-
verjarnir. Athylgisverður er
árangur FC Köln — en liðinu
hefur gengið vel eftir að
Weisweiler fyrrum fram-
kvæmdastjóri Borussia
Mönchengladbach og Barce-
lona tók þar við
stjórninni. En lítum á úr-
slitin:
B. Dortmund—B.
Mönchengladb. 0-0
Dusseldorf—FC Köln 1-3
Ros-Weiss Essen —
Hamborg 1-2
Kaiserslautern—
Saarbrucken 1-0
Hertha Berlín —
Bayern Munchen 1-1
Werder Bremen—
Karlruher 1-1
Bochum—Duisburg 2-1
Brunswick—Tennis
Borussia 3-1
Eintrach Frankfurt —
Schalke 6-3
Hollendingar á æfingu á Laugardalsvelli í gærkvöld. DB-mynd Bjarnleifur.
ísland hefur rétt eins og
Holland risið úr öskustól
— i þremur leikjum þjóðanna hefur ísland sigrað einu sinni — 1961.
Hvað gerist á Laugardalsleikvanginum á morgun?
Holland, er tapaði fyrir V-
Þjóðverjum í úrslitaleik Heims-
meistarakeppninnar 1974, hefur
þrívegis leikið við ísland. Og hið
merkilega er — ísland hefur einu
sinni borið sigur úr býtum en það
var í Reykjavík 1961. Þá sigraði
ísland 4-3.
Síðan þá hefur Holland risið úr
öskustónni og margir álíta, að það
hafi í síðustu heimsmeistara-
keppni verið með bezta liðið. Það
hafi leikið skemmtilegustu knatt-
spyrnuna og hafi haft á að skipa
bezta einstaklingi keppninnar. En
áður en Holland gat snúið sér að
aðalkeppninni varð það að ryðja
úr vegi nágrönnum sínum
Belgum, og síðan Norðurlanda-
þjóðunum íslandi og Noregi, í
undankeppninni.
Það gerði Holland nokkuð
örugglega — liðið sigraði Island í
báðum leikjum þjóðanna, en þeir
fóru báðir fram í Hollandi. Hinn
fyrri fór fram í Amsterdam og
endaði 5-0. Hinn siðari var í
Deventen og þá sigruðu
Hollendingar 8-1. Jú, að vísu
stórar tölur en eitt er þó merki-
legt og um leið skemmtilegt.
ísland gerði það sem öðrum
tókst ekki — það er að skora hjá
Hollendingum fram að úrslita-
Ieiknum við V-Þjóðverja. Guðgeir
Leifsson vann knöttinn vel á
miðjunni, var fljótur að hugsa og
sendi knöttinn í eyðu fram til
Elmars Geirssonar og hann hljóp
hollenzku vörnina af sér og
skoraði örugglega.
Já, alit fram að úrslitaleiknum
hafði engum tekizt það sem
Elmar gerði í Deventen. Stórveldi
eins og Belgía, fyrrum heims-
meistararnir Brasilía, Svíar sem
svo mjög komu á óvart í keppn-
inni, Uruguay sem tvívegis hefur
orðið heimsmeistari. I átta liða
úrslitum sigraði Holland
Argentínu 4-0, A-Þýzkaland varð
að sætta sig við 0-2 tap og sama
gilti um Brazilíu. En þegar að
sjálfum úrslitaleiknum kom
virtist hollenzka liðið aldrei ná
sér nógu vel á strik og tapaði 1-2.
Hvorki fleiri né færri en 7 úr
liði Hollands í úrslitaleiknum eru
hingað komnir. Þeirra frægastur
er vafalítið Robbie Rensenbrink,
sem nú leikur með Anderlecht og
þykir einn snjallasti leikmaður í
Evrópu um þessar mundir.
Þeir sem léku úrslitaleikinn
Sigríður jafnaði
íslandsmetið!
Mjög góður árangúr náðist á
Norðurlandsmótinu i frjálsum
íþróttum, sem haldið var á
Akureyri dagana 4. og 5. sept.
Hæst ber árangur Sigríðar
Kjartansdóttur í 100 m hlaupi þar
sem hún jafnaði Islandsmet
Ingunnar Einarsdóttur, hljóp 100
m á 12.2. Sigríður varð einnig
stigahæsta stúlka mótsins, hlaut
23 stig Einnig stóð Aðalsteinn
Bernharðsson sig með stakri
prýði, vann ' öll spretthlaupin og
einnig grindahlaupið. Eitt
íslandsmet sveina var sett. Það
setti Þorsteinn Þórsson UMSS í
hástökki. Hann stökk 1.87.
Sama árangri náði Þórður
Njálsson en hann keppir í flokki
fullorðinna. Mótið var mjög fjöl-
mennt og tóku alls 122 keppendur
þátt í því. Veður til keppni var
mjög gott, og voru áhorfendur
óvenju margir. Mótsstjóri var
Haraldur Sigurðsson. -STA.
fyrir Holland voru: Joengblood,
Suurbier, Rijsbergen, Haan, Krol,
Jansen, Van Hanegem, Neeskens,
Rep, Cruyff, Rensenbrink. Þeir
Van der Kerkhof og De Jong
komu inn sem varamenn.
Þeir sjö sem nú eru hingað
komnir eru Reye Van der
Kerkhof, PSV Eindhoven, Robbie
Rensenbrink Anderlecht, Arie
Haan Anderlecht, Wim Jansen
Feyenoord, Wim Rijsberger
Feyenoord, De Jong Feyenoord
og Ruud Krool frá Ajax.
Aðrir leikmenn eru Willy Van
der Kerkhof PSV Eindhoven, Jan
Ruiter Anderlecht, Ruud Geels
Ajax, Jan Peters en þeir léku allir
í sjálfri aðalkeppninni þó þeir
léku ekki í úrslitaleiknum.
En til viðbótar eru Jan van
Beveren PSV, sem þykir snjall-
astur markvarða Hollands, Adrie
van Kraay PSV, Cees Kist AZ ’67
og Wim Meustsege Sparta. Af
þessu má ljóst vera að Iiðið, sem
leikur hér á Laugardalsvellinum
verður ekki mikið breytt frá
heimsmeistarakeppninni ’74.
En að sjálfsögðu munar þar
mestu að þeir Johan Cruyff,
Johan Neeskens, báðir Barcelona,
og Johnny Rep, sem leikur með
Valencia, verða ekki með í liðinu
er leikur hér á morgun. Þar
munar að sjálfsögðu miklu — en
margir álíta að Holland verði alls
ekki lakara lið því Johan Cruyff
hafi ekki verið góður „móralskt”
séð.
Hvað um það. íslenzkum knatt-
spyrnuunnendum gefst einstakt
tækifæri. Tækifæri sem ekki er
víst að gefist næsta áratuginn eða
svo. Að sjá sjálft silfurliðið úr
síðustu heimsmeistarakeppni —
Holland — á Laugardalsleikvang-
inum. Þetta tækifæri munu þús-
undir nýta, svo mikið er víst. Og
íslendingar fara ekki inn á völl-
inn með því hugarfari að leikur-
inn sé fyrirfram tapaður — nei,
alls ekki. Verði íslenzka liðið ekki
fyrir sama slysinu og gegn
Belgum, má jafnvel vænta
óvæntra úrslita.
Það er af sem áður var þegar
litið var á slíka leiki nánast sem
formsatriði, það er að litla ísland
biði lægri hlut. ísland hefur risið
úr öskustónni rétt eins og stór-
veldið Holland.
h halis |
Einn kunnasti leikmaður Hollands, van Hanegem, til hægri.í keppni
við Argentinumann á Olympiuleikvanginum í Amsterdam þegar
Holland sigraði Argentínu 4-1.