Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.09.1976, Qupperneq 12

Dagblaðið - 07.09.1976, Qupperneq 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976. Iþróttir Iþróttir íþróttir íþ róttir Gullbiörninn i miklum ham Jack Nicklaus bætti einni skrautfjöðrinni í litríkan hatt sinn í gær, þegar hann sigraði í „Vorld-series“ • goifkeppninni miklu á sunnudag Það er ein mesta pcningakcppnin í Banda- rikjunum — verðlaun samtals 300 þúsund dollarar. Gull- björninn Nicklaus sigvaði með nokkrum yfirburðum — Iek holurnar 72 á 275 höggum. Hail Erwin varð annar með 279 högg og Hill þriðji með 280. Þegar síðasta umferðin hófst á sunnudag var Jack Nickiaus í þriðja sæti — tveimur höggum á eftir japönskum golfmanni og Hubert Green. En Nicklaus lék lokaumferðina snillarlcga og hafði náð þessum tveimur eftir fjórar holur. Síðan tók hann forustuna — lék hringinn glæsilega á 68 höggum. Þetta var sjötti sigur Nicklaus í þessari miklu keppni. Finnar unnu Svía Finnar sigruðu Svia í lands- keppni í frjáisum íþróttum, sem háð var i Ilelsinki um helgina. Hlutu 223 stig gegn 187 í karla- keppninni og 91 stig gegn 66 í kvcnnakcppni. Ahorfendur voru 40 þúsund hvorn dag. Mesta athygli vakti, að Lasse Viren tapaði fyrir ianda sínum Martti Vainio í 10 km hlaupinu. Ætlaði sér að setja heimsmel, en sprakk. IHjóp á 28:46.21 mín. Vainio á 28.30.58 mín. Þá varð olympíu- meistarinn Anders Gjærderud aðcins fjórði í 3000 m hindrunar- hiaupi — hljóp á 8:42.29 mín. Kantanen sigraði á 8:27.35 mín. Dinamo Tiblisi bikarmeistari! Dinamo Tiblisi sigraði Ararat Yerevan í úrslitaleik sovézku bikarkeppninnar 3-0 um helgina. Leikurinn fór fram á Leninleik- vanginum í Moskvu að viðstödd- um 75 þúsund áhorfendum. Bæði liðin eru úr Sovétríkjunum. Dinamo frá Georgíu og Ararat við landamæri Tyrklands. Ararat Yerevan var bikarmeistari Sovét- ríkjanna i fyrra. Dinamo Tiblisi mætir Cardiff City frá Wales í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa. Þeir skora í Þýzkalandi! Eintracht Frankfurt sigraði Schalke 04 6-3 í viðureign liðanna í Bundesligunni þýzku. Já, þeir hafa ekki gleymt að skora mörk, Þjóð- verjarnir. Athylgisverður er árangur FC Köln — en liðinu hefur gengið vel eftir að Weisweiler fyrrum fram- kvæmdastjóri Borussia Mönchengladbach og Barce- lona tók þar við stjórninni. En lítum á úr- slitin: B. Dortmund—B. Mönchengladb. 0-0 Dusseldorf—FC Köln 1-3 Ros-Weiss Essen — Hamborg 1-2 Kaiserslautern— Saarbrucken 1-0 Hertha Berlín — Bayern Munchen 1-1 Werder Bremen— Karlruher 1-1 Bochum—Duisburg 2-1 Brunswick—Tennis Borussia 3-1 Eintrach Frankfurt — Schalke 6-3 Hollendingar á æfingu á Laugardalsvelli í gærkvöld. DB-mynd Bjarnleifur. ísland hefur rétt eins og Holland risið úr öskustól — i þremur leikjum þjóðanna hefur ísland sigrað einu sinni — 1961. Hvað gerist á Laugardalsleikvanginum á morgun? Holland, er tapaði fyrir V- Þjóðverjum í úrslitaleik Heims- meistarakeppninnar 1974, hefur þrívegis leikið við ísland. Og hið merkilega er — ísland hefur einu sinni borið sigur úr býtum en það var í Reykjavík 1961. Þá sigraði ísland 4-3. Síðan þá hefur Holland risið úr öskustónni og margir álíta, að það hafi í síðustu heimsmeistara- keppni verið með bezta liðið. Það hafi leikið skemmtilegustu knatt- spyrnuna og hafi haft á að skipa bezta einstaklingi keppninnar. En áður en Holland gat snúið sér að aðalkeppninni varð það að ryðja úr vegi nágrönnum sínum Belgum, og síðan Norðurlanda- þjóðunum íslandi og Noregi, í undankeppninni. Það gerði Holland nokkuð örugglega — liðið sigraði Island í báðum leikjum þjóðanna, en þeir fóru báðir fram í Hollandi. Hinn fyrri fór fram í Amsterdam og endaði 5-0. Hinn siðari var í Deventen og þá sigruðu Hollendingar 8-1. Jú, að vísu stórar tölur en eitt er þó merki- legt og um leið skemmtilegt. ísland gerði það sem öðrum tókst ekki — það er að skora hjá Hollendingum fram að úrslita- Ieiknum við V-Þjóðverja. Guðgeir Leifsson vann knöttinn vel á miðjunni, var fljótur að hugsa og sendi knöttinn í eyðu fram til Elmars Geirssonar og hann hljóp hollenzku vörnina af sér og skoraði örugglega. Já, alit fram að úrslitaleiknum hafði engum tekizt það sem Elmar gerði í Deventen. Stórveldi eins og Belgía, fyrrum heims- meistararnir Brasilía, Svíar sem svo mjög komu á óvart í keppn- inni, Uruguay sem tvívegis hefur orðið heimsmeistari. I átta liða úrslitum sigraði Holland Argentínu 4-0, A-Þýzkaland varð að sætta sig við 0-2 tap og sama gilti um Brazilíu. En þegar að sjálfum úrslitaleiknum kom virtist hollenzka liðið aldrei ná sér nógu vel á strik og tapaði 1-2. Hvorki fleiri né færri en 7 úr liði Hollands í úrslitaleiknum eru hingað komnir. Þeirra frægastur er vafalítið Robbie Rensenbrink, sem nú leikur með Anderlecht og þykir einn snjallasti leikmaður í Evrópu um þessar mundir. Þeir sem léku úrslitaleikinn Sigríður jafnaði íslandsmetið! Mjög góður árangúr náðist á Norðurlandsmótinu i frjálsum íþróttum, sem haldið var á Akureyri dagana 4. og 5. sept. Hæst ber árangur Sigríðar Kjartansdóttur í 100 m hlaupi þar sem hún jafnaði Islandsmet Ingunnar Einarsdóttur, hljóp 100 m á 12.2. Sigríður varð einnig stigahæsta stúlka mótsins, hlaut 23 stig Einnig stóð Aðalsteinn Bernharðsson sig með stakri prýði, vann ' öll spretthlaupin og einnig grindahlaupið. Eitt íslandsmet sveina var sett. Það setti Þorsteinn Þórsson UMSS í hástökki. Hann stökk 1.87. Sama árangri náði Þórður Njálsson en hann keppir í flokki fullorðinna. Mótið var mjög fjöl- mennt og tóku alls 122 keppendur þátt í því. Veður til keppni var mjög gott, og voru áhorfendur óvenju margir. Mótsstjóri var Haraldur Sigurðsson. -STA. fyrir Holland voru: Joengblood, Suurbier, Rijsbergen, Haan, Krol, Jansen, Van Hanegem, Neeskens, Rep, Cruyff, Rensenbrink. Þeir Van der Kerkhof og De Jong komu inn sem varamenn. Þeir sjö sem nú eru hingað komnir eru Reye Van der Kerkhof, PSV Eindhoven, Robbie Rensenbrink Anderlecht, Arie Haan Anderlecht, Wim Jansen Feyenoord, Wim Rijsberger Feyenoord, De Jong Feyenoord og Ruud Krool frá Ajax. Aðrir leikmenn eru Willy Van der Kerkhof PSV Eindhoven, Jan Ruiter Anderlecht, Ruud Geels Ajax, Jan Peters en þeir léku allir í sjálfri aðalkeppninni þó þeir léku ekki í úrslitaleiknum. En til viðbótar eru Jan van Beveren PSV, sem þykir snjall- astur markvarða Hollands, Adrie van Kraay PSV, Cees Kist AZ ’67 og Wim Meustsege Sparta. Af þessu má ljóst vera að Iiðið, sem leikur hér á Laugardalsvellinum verður ekki mikið breytt frá heimsmeistarakeppninni ’74. En að sjálfsögðu munar þar mestu að þeir Johan Cruyff, Johan Neeskens, báðir Barcelona, og Johnny Rep, sem leikur með Valencia, verða ekki með í liðinu er leikur hér á morgun. Þar munar að sjálfsögðu miklu — en margir álíta að Holland verði alls ekki lakara lið því Johan Cruyff hafi ekki verið góður „móralskt” séð. Hvað um það. íslenzkum knatt- spyrnuunnendum gefst einstakt tækifæri. Tækifæri sem ekki er víst að gefist næsta áratuginn eða svo. Að sjá sjálft silfurliðið úr síðustu heimsmeistarakeppni — Holland — á Laugardalsleikvang- inum. Þetta tækifæri munu þús- undir nýta, svo mikið er víst. Og íslendingar fara ekki inn á völl- inn með því hugarfari að leikur- inn sé fyrirfram tapaður — nei, alls ekki. Verði íslenzka liðið ekki fyrir sama slysinu og gegn Belgum, má jafnvel vænta óvæntra úrslita. Það er af sem áður var þegar litið var á slíka leiki nánast sem formsatriði, það er að litla ísland biði lægri hlut. ísland hefur risið úr öskustónni rétt eins og stór- veldið Holland. h halis | Einn kunnasti leikmaður Hollands, van Hanegem, til hægri.í keppni við Argentinumann á Olympiuleikvanginum í Amsterdam þegar Holland sigraði Argentínu 4-1.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.