Dagblaðið - 07.09.1976, Side 13

Dagblaðið - 07.09.1976, Side 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976. 13 iþróttir þróttir þróttir óttir I Ískmdsmet Ingunnor og Vilmundur á 21.7 sek! w IR hefur forustu í stigakeppni félaganna á Meistaramóti Reykjavikur í frjálsum íþróttum. Þokkalegur árangur í nokkrum greinum. Hlaupadrottningin Ingunn Einarsdöttir, IR, setti enn eitt íslandsmetið í gær, þegar fyrri hiuti Meistaramóts Reykjavíkur í frjálsum íþróttum var háður á Laugardalsvellinum. Ingunn hljóp þá 100 m á 12.0 sek. og bætti íslandsmet sitt um sekúndubrot. Allar aðstæður voru löglegar — vindur 1.5 sek./m. Einnig er skammt stórra högga á milli hjá Vilmundi Vilhjálmssyni, KR. Hann hljóp 200 m á 21.7 sek. sem er bezti árangur hans á vega- lengdinni, og nú er ekki langt hjá honum í hið fræga íslandsmet Hauks Clausen. 21.3 sek., sem Hilmar Þorbjörnsson síðar jafn- aði. Þau Ingunn og Vilmundur voru yfirburðamenn í sínum greinum. Þórdís Gisladóttir, IR, varð önnur í 200 m hlaupinu á 13.2 sek. og Stefán Hallgrímsson, KR. í 200 m hlaupinu á 23.9 sek. Þokkalegur árangur náðist í mörgum greinum í gær, en á óvart kom hve skráðir keppendur mættu illa til leiks. Af 51 skráðum keppendum KR í gær mættu aðeins 16 til leiks — og í eina grein, 800 m hlaup, voru margir KR-ingar skráðir en enginn frá félaginu keppti þar. Af 48 skráðum keppendum IR mættu 39 til mótsins, og af 14 skráðum keppendum Armanns mættu sjö. Mótið hófst með keppni í 400 m grindahlaupi og þar var einn keppandi, Stefán Hallgrímsson,- en hann hætti eftir 200 m. I kringlukasti karla sigraði Guðni Halldórsson, KR, og varð því Reykjavíkurmeistari með Ingunn — enn íslandsmet 49.44 m. Hreinn Halldórsson, KR, kastaði 48.96 m og varð annar — en þeir Erlendur Valdimarsson, KR, og Öskar Jakobsson, IR, voru ekki meðal keppenda. I kúluvarpi kvenna sigraði Ása Halldórsdóttir, Á, — varpaði 10.60 m. Ingunn Einarsdóttir, tR, varð Reykjavíkurmeistari í 400 m hlaupi á 56.6 sek. og því ekki langt frá Islandsmeti sinu. Farið var að hvessa, þegar hlaupið var háð og ef til vill kom það í veg fyrir met hjá Ingunni. Lilja Guð- mundsdóttir, IR, varð önnur á 59.5 sek. I 800 m hlaupi varð Hafsteinn Öskarsson, ÍR, meistari á 2:03.9 Vilmundur — nálgast metið mín., en Einar B. Guðmundsson, FH, sem keppti sem gestur, sigraði i hlaupinu á 2:01.6 mín. I langstökki kvenna sigraði Lára Sveinsdóttir, Á, stökk 5,33 m, en Björk Ingimundardóttir varð önnur með 5.02 m. I 1500 m hlaupi varð Lilja Guðmunds- dóttir, IR, meistari á 4:57.2 mín., en Sólveig Pálsdóttir, KR - systir Ragnhildar — varð önnur á 5:45.5 mín. Elías Sveinsson, KR, sigraði [ hástökki með 1.90 m., en þar keppti Þorsteinn Þórsson, UMSS, sem gestur og setti nýtt sveina- met — 16 ára og yngri — stökk 1.85 m. Sömu hæð stukku einnig Meistarar Liverpool slegnir úr af WBA! — í enska deildabikarnum i gœrkvöld. WBA sigraði 1-0 West Bromwich Albion kom á óvart i gærkvöld er liðið sló út Englandsmeistarana Liverpool í deildabikarnum á „The Hawt- horns“ í West Bromwich, sem er útborg Birmingham. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Mick Martin írski landsliðs- maðurinn, sem WBA keypti frá Manchester United á síðastiiðn- um vetri. Markið kom á 58. mínútu. Gefin var góð sending fyrir mark Liver- pool frá hægri og Martin stökk app og skallaði rétt undir slána. Enski landsliðsmarkvörðurinn Ray Clemence áti ekki möguleika á að verja þar sem eigin varnar- menn hindruðu hann. Þetta var síðari leikur liðanna en síðastliðinn miðvikudag gerði WBA jafntefli við Liverpool á Anfield Road í Liverpool og því varð að leika aftur. Strax eftir leikinn fóru þeir Ray Clemence, Kevin Keegan og Phil Thompson í æfingabúðir enska landsliðsins en á miðviku- dag leikur England við Irland. Væntanlega mæta þeir félagar þeim Mick Martin og Paddy Mulligan aftur en þeir eru báðir í írska landsliðshópnum. Birmingham City keypti i gær skozka landsliðsmanninn John Connolly frá Everton fyrir 75 þúsund pund. Þetta er annar maðurinn sem Birmingham kaup- ir frá Everton á rúmum mánuði — áður hafði Gary Jones verið seidur til Birmingham á 100 þúsund pund. Fyrir voru hjá Birmingham þeir Howard Kendall og Archie Styles — báðir keyptir frá Everton. Svo við snúum okkur að skozka landsliðshópnum, en á miðviku- dag leikur Skotland við Finnland á Hampden Par. Willie Petti- grew frá Motherwell var bætt í hópinn eftir að þeir Joe Jordan og Derek Johnstone höfðu orðið að draga sig út úr honum vegna meiðsla, Ásamt Pettigrew var einnig valinn Tommy McLean frá Ranges, Hafsteinn Jóhannesson, UBK, og Guðmundur Guðmundsson, FH. Erlendur Valdimarsson, KR, sigraði í sleggjukasti 55.20 m og þar náði Hreinn Halldórsson sínum bezta árangri, kastaði 49.94 m. Ágúst Þorsteinsson, Borgfirð- ingur, sem keppti sem gestur í 5000 m hlaupi, náði þar sínum bezta árangri 15:46.2 mín., en Reykjavíkurmeistari varð Hregg- viður Jónsson, KR, sá kunni kappi, á 20:32.6 mín. I 4x100 m. boðhlaupi kvenna sigraði A-sveit tR á 50.1 sekl., en sveit Ármanns varð önnur á 51.8 sek. Björk Eiríksdóttir, IR, náði sínum bezta árangri í spjótkasti, og varð Reykjavíkurmeistari með 33.56 m. Anna Alfreðsdóttir, ÍR, varð önnur — kastaði 30.20 m. I 4x400 m boðhlaupi karla sigraði sveit KR á 3 .'35.4 mín. eftir skemmtilega keppni við sveit IR, sem hljóp á 3:36.6 mín. Mótið er stigakeppni milli Reykjavíkurfélaganna þar sem heildarárangur er lagður saman samkvæmt árangri á stigatöflu. iR var í fyrsta sæti eftir keppnina í gær og fjölþrautum áður með 24.584 stig. KR var með 8.383 stig og Ármann með 4.402 stig. Keppnin heldur áfram í kvöld og hefst kl. 18.15 á Laugardalsvelli. Þá verður keppt i stangarstökki,' hástökki kvenna, langstökki karla, kúluvarpi karla, spjótkasti kagla, kringlukasti kvenna, 110 m grindahlaupi karla og 100 m grindahlaupi kvenna, 800 m kvenna, 100, 400 og 1500 m, hlaupum karla, 200 m hlaupi kvenna, og í tveimur boðhlaupum. 4x100 m karla og 4x400 m kvenna. Einnig verður keppt í 400 m grindahlaupi kvenna sem auka- grein og þar verður Ingunn meðal keppenda, svo fremi veður verði þolanlegt. HAGLABYSSUR RIFFLAR BYSSUP0KAR BYSSUBELTI • Qwik-point fyrír haglabyssur og riffla Póstsendum » 0 Gixsibse — Simi 3(1350. Loks kemur að því að Bönimi er á fcirum til Kvrópu og hann kveður móður sína og vini Um irið og ég knn til ^Gættu þín vel, '■.oniirj J mun Parísar, se.*uli ég þér skeyti/og hafðu samband.. 1 * siuiii*irl»*ga cn vjfl petu Fc. til S|>ána. cfiir 2 ----- ,---s^il hans./við að |csau„'. J Við munum allir sakna hans,| m huggað okkur e fraministöðu w hans í blöðunum. 'Spi Lauda aftur við stýrið! Heimsmeistarinn í kappakstri, Austurríkismaðurinn Niki Lauda, sem stórslasaðist fyrir fimm vikum í keppni í Vestur- Þýzkalandi, og lá marga daga miili heims og hclju, sezt aftur við stýrið í kappakstursbíl sinum í dag í Maraneilo á Italíu. Þá fer fram æfingakeppni fyrir ítöisku grand prix-keppnina og Lauda reynir þar Ferrari-bíl sinn. Úrslit keppninnar verða svo á sunnudag í Maranello. Eftir keppnina í dag verður tekin ákvörðun hvort Lauda keppir á sunnudag — og forsvarsmenn Ferrari sögðu í gær, að fyrirtækið hefði þar siðasta orðið. Lauda mun vera með sér- smíðaöan öryggishjálm í dag, sem sérstaklega er lagaður til að veita sem mest öryggi í sambandi við meiðsli Lauda á höfði. Hinn 27 ára gamli heimsmeistari hefur nú tveggja stiga forskot á Englend- inginn James Hunt í heims- meistarakeppninni og hefur því hug á því að komast sem fyrst í keppni aftur. Hunt hefur verið mjög sigursæll síðustu vikurnar og nálgast stigatölu Lauda mjög. Framan af keppninni í ár virtist Lauda öruggur um að halda titli sínum — meira að segja meiðsli virtust ekki geta komið í veg fyrir það. En eftir að Hunt skiidi við eiginkonuna, sem nú er git Richard Burton, tviefldist hann á kappakstursbrautinni og hefur sigrað á fjórum mótum í röð. Eftir keppnina á ítalíu á sunnu- dag verður næsta grand- prix-keppnin í Kanada 3. október. Stórsigur meistaranna í Hollandi PSV Eindhoven, sem á fimm landsliðsmenn er Ieika hér á Laugardalsieikvanginum á morgun, og eru núverandi meist- arar i Hollandi unnu stórsigur í 1. deild er þeir sigruðu NAC Breda 5-1. Þar með hafa meistararnir hlotið 6 stig — eftir 5 leiki. Feyenoord hefur forystu í deild- inni — hefur unnið alla sína leiki. En litum á úrslitin: Sparta — Eindhoven 3-0 FC Haag — Ajax 1-2 PSV Eindhoven — NAC 5-1 Haarlem — VVV 1-1 AZ ’67 — Twente 3-0 Graafschap — Utrecht 2-1 NEC — Telstar 2-2 Roda — Go Ahead 4-2 FC Amsterdam — Feyenoord 1-2 Eins og áður sagði hefur Feyenoord hlotið 10 stig eftir fimm leiki. Roda er í öðru sæti með 9 sig eftir jafnmarga leiki og í þriðja sæti er Ajax með 8 stig. PSV Eindhoven er síðan í fjórða sæti með 6 stig. George í enska landsliðið Chariie George, hinn snjalli framherji Derby, mun leika sinn fyrsta iandsleik fyrir Engiand á miðvikudaginn, þegar England leikur gegn írlandi á Wembley. George, sem um langt árabil hefur verið einn litríkasti knatt- spyrnumaður Englands, fyrst hjá Arsenai, var valinn í 12 manna hóp Don Revie fyrir leikinn. Ekki gaf brezka útvarpið upp iiðs- skipan í gær, en sagði hins vegar að eini vafinn með liðsskipan væri hvort McFarland, Derby, eða Thompson, Livcrpool, yrðu í ann- arri stöðu miðvarðar.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.