Dagblaðið - 07.09.1976, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976.
Óvenjuleg „hjúkrunarkona"
Apinn Chosuke skilur þegar
læknirinn talar til hans og er
óiatur við að taka tii höndunum
á dýraspítalanum. Hann er ein-
staklega þolinmóður þegar
hann huggar sjúku dýrin og
virðist skiija þau fullkomlega.
ó japönskum dýraspHaki
Vínberin voru súr...
Nú er komin út bók um popp-
stjörnuna Rod Stewart. Hún er
skrifuð af fyrrverandi vinkonu
hans, Dee Harrington.
„Það er alveg eins gott að
aðrar stúlkur fái nasasjón af
því hvernig maður hann er í
raun og veru,“ sagði hún við
útkomu bókarinnar.
Japanski dýralæknirinn
Junki Uyama hefur nokkuð
óvenjulega „hjúkrunarkonu" í
þjónustu sinni. Það er simpansi
sem hlotið hefur nafnið
Chosuke. Apinn virðist geta
annazt veiku dýrin betur en
nokkur „mannleg“ hjúkrunar-
kona og auk þess hjálpar hann
við tiltektir og ýmislegt á spital-
anum. Hann sópar til dæmis öll
gólfin á hverjum morgni og
hann getur jafnvel rétt læknin-
um ýms tæki og áhöld, sem
hann þarf að nota.
Það sem þykir einna athyglis-
verðast við Chosuke er hve
næman skilning hann virðist
hafa gagnvart sjúkum dýrum.
„Hann er að mörgu leyti
miklu næmari heldur en mann-
leg hjúkrunarkona væri, segir
Junki Uyama, sem er í
japanska dýralæknasamband-
inu og á dýraspítala í Fukuoka í
Japan.
„Hann umgengst veiku dýrin
á sérstakan hátt og virðist finna
á sér þegar þau þurfa á honum
að halda. Stundum eyðir hann
öllum deginum hjá búri „sjúkl-
ings“ og róar hann og huggar.
Dr. Uyama segist fyrst hafa
tekið eftir þessum einstæðu
hjúkrunarhæfileikum apans
þegar nokkur dýr, sem hann
fékk til meðferðar, voru mjög
óróleg. Sjúku dýrin eru jafnan
höfð í búrum og eru oft á tíðum
mjög óróleg.
„Ég tók eftir því að þegar
„sjúklingarnir" urðu allt i einu
rólegir brást ekki að þá var
apinn hjá þeim og huggaði þá
og lét vel að þeim.“
Læknirinn minnist þess er f
hann fékk eitt sinn mjög sjúk-
an hund til meðferðar. Hundur-
inn var þjáður og veinaði í sí-
fellu af kvöldum.
Apinn vék ekki frá þessum
sjúklingiog hætti ekki fyrr en
honum hafði tekizt að róa hann
og fá hann til þess að „gleyma“
sársaukanum og borða eitthvað.
„Það er ekki nokkur vafi á
SMÁTT...
því að það var góðri umönnun
apans að þakka að þessi hundur
hafði það af,“ segir dr. Uyama.
„Hann er farinn að skilja
nokkur orð eins og t.d. skæri,
hlustunartæki, læknistaska, —
og ef ég bið hann um að ná í
þessa hluti gérir hann það.“
Chosuke er jafnan með þegar
læknirinn fer í sjúkravitjanir
heim til sjúklinganna. Hann
heldur þá á læknistöskunni.
Inni á spítalanum sér apinn
um að bera matinn til sjúkl-
inganna og ef einhver
er óstyrkur fyrir uppskurð eða
aðgerð, getur enginn huggað
eða róað betur en Chosuke.
Hann er mjög hreinlátur og
þegar hann sér lækninn undir-
búa sig undir aðgerð, hermir
hann nákvæmlega eftir honum
og skrúbbar sig hátt og lágt.
Áður en hann gengur til náða
á kvöldin þvær hann sér vand-
lega áður en hann fer í náttföt-
in.
Einu sinni sem oftar var
komið með slasaðan hund á
dýraspítalann. Þegar læknir-
inn ætlaði að skoða sárið glefs-
aði hundurinn illilega til hans.
En þegar apinn kom til hunds-
ins og lét vel að honum, fékk
hann blíðar móttökur. Þeir virt-
ust skilja hvor annan mjög
vel.
SÖLUBÖRN
SÖLUKEPPNI!
Frá og með 36. tbl.
hefst
sölukeppni VIKUNNAR
og stendur
tvo mánuði.
Á biðilsbuxunum
5NOVUS-VASATÖLVUR
í VERÐLAUN.
Novus eru mjög
fullkomnar vasatölvur, með V
8 tölustöfum, prósentu,
kvaðratrót og minni.
Söluböm, hringið strax og
tryggið ykkur föst söluhverfi. Síminn er 35320.
ára gamall er á biðilsbuxunum
á nýjan leik. Hann er orðinn
leiður á norrænum ljóskum. Sú
sem hann elskar þessa dagana
er frá Kaliforníu, tuttugu og
þriggja ára ljóska, Angela
James að nafni.
Hún ætlar með honum til
Englands nú þegar hann snýr
aftur til þess að leika með
Fulham í II. deildarkeppninni.
Til vonar og vara fær George
nú greitt eftir hvern leik!
Friðsœlt afmœli
Hjartaknúsarinn Robert Red-
ford átti 39 ára afmæli 18. ágúst
sl. Hann átti friðsælan af-
mælisdag með konu sinni og
fjölskyldu hátt uppi i fjöllun-
um í Utah, þar sem heimili
hans er.
Fótboltahetjan brezka, það má nú segja. Vínberin
George Best, sem er nú þrjátíu voru súr, sagði refurinn...
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli