Dagblaðið - 10.09.1976, Síða 12
fþróttir íþróttir
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976.
Sjö leikmenn Slovan
í Evrópuliði Tékka!
— Mótherjar Fram ó þriðjudag ekki af verri endanum. Með liði
Slovan Bratislava leika sjö af Evrópumeisturum Tékka.
Tékkóslóvakía kom mjög á
óvart í Evrópukeppni landsliða
Tckkar byrjuðu á að slá út Eng-
lendinga og Portúgali í undan-
keppninni og kom það mjög á
óvart, bætti salti í sár Englend-
inga eftir að Pólverjar höfðu
slegið þá út í riðlakeppni HM ’74.
Síðan léku Tékkar við Sovét-
menn i átta-liða úrslitum og
sigruðu í Bratislava 2—0. Síðan
var leikið í Kænugarði og flestir
bjuggust við að Sovétmönnum
tækist að komast í lokakeppnina í
Júgóslavíu. En svo fór þó ekki —
jafntefli varð í Kænugarði 2—2
og þar með höfðu Tékkar tryggt
sér rétt í undanúrslitin í Júgó-
slavíú. Þar léku einnig heims-
meistararnir V-Þjóðverjar, silfur-
liðið Holland og gestgjafarnir
Júgóslavía. Tékkar léku við Hol-
lendinga og eftir hið mikla lof,
sem Hollendingar hlutu í síðustu
heimsmeistarakeppni var náiiast
litið á leikinn sem formsatriði,
Hollendingar myndu tryggja sér
sigur. En svo fór ekki — eftir
venjulegan leiktíma var staðan
jöfn 1—1.
Tékkar tryggðu sér síðan sigur
í framlengingunni, 3—1, Þá var
komið að úrslitaleiknum við V-
Þjóðverja og eftir tap Hollend-
inga var farið að gefa Tékkum
smá von en raunar bjuggust flest-
ir við að heimsmeistararnir
myndu sigra örugglega. Staðan
eftir venjulegan leiktíma var
2—2 en Tékkar höfðu komizt í
2—0. Ekkert mark var skorað í
framlengingunni og því var víta-
spyrnukeppni og þá loks stóðu
Tékkar uppi sem sigurvegarar —
unnu 5—3.
Það var mál manna sem bæði
sáu leikina í Júgóslavíu og eins í
sjónvarpi, en auðvitað var sjón-
varpað beint um alla Evrópu,
meðal annars var sjónvarpað
beint á Spáni og sáu þó nokkrir
tslendingar leikina, að knatt-
spyrnan sem leikin var í Júgó-
slavíu hafi komizt á nýtt stig —
leikin var óþvinguð sóknarknatt-
spyrna.
En til hvers er verið að segja
frá öllu þessu mörgum mánuðum
eftir að Tékkar höfðu tryggt sér
titilinn. Jú, ástæðan er einíöld.
Hingað til lands er að koma tékk-
neska liðið Slovan Bratislava og
það leikur við Fram í UEFA-
bikarnum á þriðjudag.
t liði Slovan voru hvorki fleiri
né færri en sjö af Evrópumeistur-
unum og einn þeirra, Anton
Ondrus var nýlega valinn í heims-
lið hins þekkta enska knatt-
spyrnurits, World Soccer. Raunar
er Slovan Bratislava talið bezta
félagslið í Tékkóslóvakíu um
þessar mundir og liðið hafði
lengst af góða forystu í tékknesku
1. deildinni á síðasta keppnistíma-
bili en í lokin skauzt Banik
Ostrava upp fyrir Slovan og
tryggði sér titilinn. Að flestra
mati kom þar til að hinir fjöl-
mörgu landsliðsmenn liðsins urðu
þreyttir eftir strangt landsleikja-
prógramm en liðið átti 8 leikmenn
í landsliðinu.
Þreytan sagði til sín og á loka-
sprettinum tapaðist titiilinn og
eins úrslitaleikur Bikarkeppn-
innar, fyrir Sparta Prag 2—3.
Leikmenn Slovan, sem léku
með landsliðinu eru þeir Anton
Ondrus en hann er fyrirliði
Slovan og tékkneska landsliðsins,
Josef Capkovic miðvörður. Jan
Pivarnik bakvörður og Koloman
Gögh en hann er einnig bak-
vörður. Þannig átti Tékkó-
slóvakía alla vörn tékkneska
landsliðsins en í marki stóð
Viktor, sem er fremsti mark-
vörður heims í dag. Markvörður
Slovan var varamarkvörður tékk-
neska landsliðsins, en hann heitir
Alexander Venvel. Frammi voru
þeir Marian Nasny og Jan Sveklik
geysilega sókndjarfir leikmenn.
Jerkenin kom inná sem vara-
ntaður tékkneska landsliðsins
gegn V-Þjóðverjum og hann var
því sjöundi leikmaður Slovan,
sem lék úrslitaleikinn.
Það er því greinilegt að leik-
menn Fram eiga erfitt verkefni
fyrir höndum, þeir leika gegn
einu bezta liði Evrópu og þess má
raunar geta að 1969 varð Slovan
Bratislava Evrópumeistari bikar-
hafa er liðið sigraði Barcelona
3—2 í úrslitum.
Að lokum skulum við líta á
heimsliðið eins og hinn heims-
frægi blaðamaður Leslie Vernon
valdi það í ágústblaði World
Soccer. Þar áttu Tékkar þrjá leik-
menn.
En liðið er: Markvörður Ivo
Viktor Dukla Prag og Tékkó-
slóvakíu.
Aðrir leikmenn: Colin Todd
Derby og England, Anton Ondrus
Slovan og Tékkóslóvakíu, Branz
Beckenbauer Bayern Munchen og
V-Þýzkalandi, Paul Breitner Real
Madrid og V-Þýzkalandi.
Antonin Panenka Bohemians
og Tékkóslóvakíu, Viktor Kolotov
Dinamo Kiev og Sovétríkin,
Branko Oblak, Schalke 04 og
Júgóslavíu.
Ruud Geels Ajax og Holland,
Gerd Muller Bayern Munchen og
V-Þýzkaland og Oleg Blokhin
Dinamo Kiev og Sovétríkin.
Evrópumeistarar Tékka 1976. fyrir leikinn gegn V-Þjóóverjum. Talió frá vinstri.
Nehoda og Gögh. Þarna eru 6 leikmenn Slovan en sjöundi leikmaðurinn,
ALLTER ÞEC
ER HJÁ BÁP
Úrslitaleikur Akraness og Vals í bikarki
Þriðji úrslitaleikur Akurnesinga i röð. F
Þriðji úrslitaleikur Vals <
Pólverjinn þjálfar
ðll ísl. landsliðin!
— Mikið um að vera á handknattleikssviðinu í vetur
Pólski landsliðsþjáifarinn í
handknattleik, Januz Crerwinski,
er væntanlegur til landsins á
mánudag og mun þá strax taka til
við þjálfun íslenzka landsliðs-
fólksins bæði í karla—kvenna og
unglingaflokkum, sagði Birgir
Björnsson, formaður íslenzku
landsliðsnefndarinnar í gær. Það
mun verða tekið mikið tillit til
skoðana hans á vali á landsliði og
ef hann hefur hug á því, gð fá
einhverja eða einhvern af þeim
íslenzku leikmönnum, sem leika
Glsiibæ — Simi 3UJ50.
erlendis, mun HSÍ áreiðanlega
gera ráðstafanir til þess að það
verði hægt.
Hinn 24. maí sl. hófu 25 leik-
menn æfingar hjá landsliðsnefnd
og hefur verið betur æft í sumar
en oftast áður — einkum framan
af, þegar förin til USA var undir-
búin. 51 æfing samtals og æfinga-
leikir og fjórir landsieikir frá
þeim tíma. Eftir USA-förina —
sem fkki hóíst of vel — tvivegis
tap gegn USA, en tveir sigrar
gegn Kanada og því efsta sæti í
mótinu, hefur mæting verið mis-
jöfn. Minnst þegar útimótið stóð
yfir og einnig hafa sumarleyfi
spilað inn í, sagði Birgir enn-
fremur.
Fækkað hefur í landsliðshópn-
um. Af þeim, sem upphaflega
voru valdir, hafa Páll Björgvins-
son, Víking, Olafur Benediktsson,
Val, og Hannes Leifsson, Fram,
ekki mætt til æfinganna — en
síðan drógu þeir Jón Karlsson,
Val, Pálmi Pálmason, Fram,
Pétur Jóhannesson, Fram,
Steindór Gunnarsson, Val,
Friðrik Friðriksson, Þrótti, Ingi-
mar Haraldsson, Haukum,
Hörður Hákonarson, ÍR, Hörður
Harðarson, Armanni, og Sigur-
geir Sigurðsson, Víking, sig til
baka af ýmsum ástæðum.
Það verður rnikið um jið vera ái
handknattleikssviðinu í vetur.
Landsleikir við Sviss i næstu
viku — í byrjun október kernur
þýzka félagsliðið Dankersen, en
þar leika Olafur H. Jónsson og
Axel Axelsson. Möguleiki er á, að
pólska landsliðið leiki hér í októ-
ber eóa nóvember; en ekkert
verður af för til Sovétríkjanna
eins og fyrirhugað hafði verið um
tíma. Tveir landsleikir verða
háðir í Danmörku 11. og 12. des-
ember og tekið þátt í móti í
Austur-Þýzkalandi 14—19. des-
ember, þar sem Island keppir við
Austur-Þýzkaland og tvær aðrar
Austur-Evrópuþjóðir.
í janúar 1977 — dagana 27. og
28. — verða tveir landsleikir hér
heima við Tékka, og tveir leikir
við Vestur-Þjóðverja 5. og 6.
febrúar. Þá kemur að aðalvið-
burði vetrarins — B-keppnin i
Austurríki 25. febrúar til 6. marz.
Dregið verður þar í riðli 19.
september í Vínarborg — og lönd-
unum hefur verið raðað í tvö
flokka. I 1. flokki eru Tékkar,
Austur-Þjóðverjar, Svíar og Spán-
verjar. í 2. flokki Búlgarfa,
Noregur, island og Frakkland. 1
3. flokki verða svo Austurriki og
þrjú efstu lið úr C-keppninni, sem
háð verður í Portúgal. Þar keppa
Holland, Portúgal, Belgía og Bret-
land í A-riðli, Sviss, Finnland,
Luxemborg og Færeyjar í B-riðli
og þrjú þessara landa komast í
B-keppnina í ''ínarborg.
Þar verður keppt í fjórum riðl-
um og tvö efstu lið úr hverjum
riðli komast í undankeppni, og
sex af þeim liðum komast í heims-
meistarakeppnina í Danmörku.
Síðasti stórleikurinn milli ís-
lenzkra liða á þessu leiktímabili í
knattspyrnunni verður á sunnudag á
Laugardalsvellinum. Þá leika Akur-
nesingar og Valsmenn til úrslita í
bikarkeppni KSÍ. Leikurinn hefst kl.
tvö. Það má segja, að allt sé þegar
þrennt er hjá báðum liðum. Akurnes-
ingar leika þriðja árið í röð til úrslita
í keppninni. Valsmenn stefna að
þriðja sigri sínum í bikarkeppninni
— og þetta verður þriðji innbyrðis-
leikur liðanna í úrslitum bikarkeppn-
innar. Einnig þriðji leikur liðanna í
sumar. Að ýmsu leyti standa Vals-
menn betur að vígi í sambandi við tvö
síðasttöldu atriðin. Þeir hafa sigrað
Akurnesinga í fyrri úrslitaleikjum
liðanna — árið 1965 sigraði Valur
Akranés S-3, og 1974 sigraði Valur
4-1. í báðum leikjum liðanna í sumar
í 1. deild sigraði Valur 6-1 á Laugar-
dalsvelli og 3-1 á Akranesi.
Hins vegar má segja, að Akurnes-
ingar bæti þetta upp að nokkru, því í
síðari leikium sínum á keppnistíma-
bilinu hafa þeir tvíeflzt í leikjum
sínum. Og eitt er vist. Þetta hlýtur að
verða stórskemmtilegur leikur þeirra
Ingi Björn — fyrirliði Vals.
tveggja liða, sem bezta knattspyrnu
leika nú á íslandi — sóknarleikur
tveggja sóknarliða.
Spilar Víkingshjátrúin inní?
Síðustu átta árin hafa lið, sem sigrað
hafa Víking í keppninni, unnið bikar-
inn — nema auðvitað, þegar Víkingur
sigraði Breiðablik í úrslitum 1971.
Akurnesingar sigruðu Víking nú —
unnu Víkinga 3-0 á Akranesi, síðan
Keflavík 3-1, einnig á Akranesi, og
FH 3-2 í Kaplakrika á leið sinni í
úrslitin. Valur sigraði Hauka 4-0,
Fram 2-1 og Breiðablik 3-0 eftir jafn-
tefli fyrst 0-0 í sinni leið í úrslitaleik-
inn.
— Nei, ég trúi ekki á Víkingshjá-
trúna og ég held að almennt sé ekki
hugsað um hana á Akranesi, sagði
Jón Gunnlaugsson, fyrirliði Akraness
í gær. Ég hef enga trú á henni heldur
— en gaman væri að brjóta hana á
bak aftur, sagði Ingi Björn Alberts-
son, fyrirliði Vals. Það var á blaða-
mannafundi, sem Akurnesingar og
Valsmenn héldu sameiginlega í gær
— í fyrsta skipti, sem slíkt er gert
fyrir úrslitaleik.
Þar kom fram hjá Pétri Svein-
bjarnarsyni, formanni Knattspyrnu-
Jón t.unnlaugsson — fvrirliöi IA.