Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 1

Dagblaðið - 14.09.1976, Qupperneq 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976. — 204. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 r v Jarðstöðin reist nálœgt Hveragerði? — staðarvali haldið leyndu af ótta við nýtt „Votmúlabrask" _______ J Blaðið hefur það eftir traustum heimildum að væntanleg jarðstöð muni einna helzt rísa einhvers staðar nálægt Hveragerði, enda verður stöðin að vera í u.þ.b. 50 kílómetra fjarlægð frá borginni vegna rafhrifa umhverfis og í Reykjavík. Brynjólfur Ingólfsson, ráðu- neytisstjóri, sagði I gær að fleiri en einn staður kæmi til greina, þótt einn tiltekinn staður sýndist einna heppilegastur. Ekki vildi hann tilgreina þann stað nánar af ótta við að braskarar reyndu að sprengja verðið upp úr öllu valdi. Taldí hann eðlilegra að ríkið fengi frið til að semja um eðlilegt verð miðað við verðgildi staðarins. Að lokum má geta þess, að útboð í stöðina verða hugsan- lega send út til nokkurra er- lendra fyrirtækja fyrir næstu áramót. — GS «/ Þrótt fyrir öll bróðabirgðalög Þeir höfðu lokið við löndun úr Otri GK 5 og stóðu við spúlun á löndunartækjum, lestarskilrúmum og sólbakaðri bryggjunni í Hafnarfirði í gær, er ljósm. DB Arna Pál bar að. Sjómennirnir landa sínum fiski þrátt fyrir öll bráðabirgðalög og fólkið í landi er jafn fúst til vinnu þá fáu sólardaga sem koma eins og alla rigningardagana hér syðra. Það voru þó ýmsir sem spókuðu sig í blíðunni í Hafnarfirði í gær, sleiktu ís og tylltu sér á veggi og syllur og spjölluðu saman. -ASt. ISLANDIVAR BOÐIÐ AÐ TEFLA Á MÓTI í LÍBÝU — því var hafnað, þar eð Alþjóða skáksambandið stendur ekki að því skákmóti „Það er rétt að okkur barst tilboð um að tefla í Líbýu í október á skákmóti, sem stjórn- völd þar gangast fyrir til að mót- mæla Ölympíumótinu í Israel. Við höfnuðum þessu tilboði þar eð Alþjóða skáksambandið stendur ekki að því svo og vegna þess að við tökum þátt í Olympíumótinu og hefði þess vegna ekki staðið lengur ti! boða að tefla í Líbýu.“ sagði Einar S. Einarsson forseti Skáksambands Islands í samtali við Dagblaðið. Líbýumenn buðu Skáksam- bandinu snemma í sumar að senda sveit þangað. Þeir hugðust greiða uppihald sveitarinnar svo og dagperiinga, eins og venja er á skákmótum erlendis. Auk þess buðust þeir til að greiða ferða- kostnað. Einar sagði að boð þetta hefði komið i gegnum utanríkis- ráðuneytið og sendiráð íslands í London. Hins vegar dróst að senda svar til stjórnarinnar í Trípólí svo að boðið var ítrekað. I Trípólí í Líbýu munu skák- menn úr Arabaríkjunum og mörgum Afríkuríkjum tefla, svo og Sovétmenn, skákmenn frá löndum á Balkanskaga og frá austantjaldsríkjunum. Mótið er haldið tii að mótmæla ákvörðun Alþjóoa skáksainbatuiMii.> um að Fleiri í #■ ■ islenzkum fötum eftir ■ sýninguna? — Sjó viðtöl við sýnendur — bls. 9 Furðuhlutur á lofti yfir hálendi íslands — Sjá bls. 8 Dularfullur hellir fannst vel falinn í Hafnar- fjarðarhrauni Olympíuskákmótið verði haldið í ísrael. Einar sagði ennfremur, að í til- boði Líbýumanna hefði verið boð til skákmánnanna að fá að horfa á hersýningu.sem fram færi í lok skákmótsins þar. Ólympíuskákmótið hefst þann 24. október næstkomandi. ísland verður meðal þátttakenda þar. Tilboð Líbýumanna hafði það fram yfir Olympiumótið, að þeir buðust til að greiða ferðir skák- mannanna, sem þeir verða nú að greiða sjálfir. Ferðakostnaðurinn mun ekki verða undir tveimur milliónum. — AT — — Sjá bls. 8 Far- maður hand- tekinn vegna smygls á lit- sjón- vörpum - Sjá baksiðu

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.