Dagblaðið - 16.09.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1976 — 206. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍBH ;S7022
r
v
Sjónvarpsslurfsmenn
fora sér hœgt í dog
Starfsmenn sjónvarpsins
tóku þá ákvörðun í morgun að
fara sér hægt við vinnu sína í
dag. Það gera þeir til að leggja
áherzlu á launakröfur sínar,
sem til þessa hafa ekki fengið
nægan hljómgrunn hjá launa-
greiðendum þeirra, — ríkinu.
„Þessar aðgerðir eru óskipu-
lagðar með öllu en samt er ein-
hugur ríkjandi hjá öllu starfs-
fólkinu, — allt frá sendli upp í
skrifstofustjóra,“ sagði einn af
starfsmönnunum sem DB
ræddi við í morgun. „Fjöldi
starfsmanna hefur þegar sagt
upp og aðrir íhuga uppsagnir
vegna launamálanna." — AT —
Enda þótt fimmtudagur sé, þá
er á þeim dögum unnið á fullu
hjá sjónvarpinu. 1 morgun var
þó enginn í stjórnklefanum,
heldur sátu menn og ræddu
mái sin. DB-mynd: Árni Páll
fReykjavíkurmótinu |
lauk í gœrkvöld:
HEILDAR VINNINGSUPPHÆÐIN
NAM TÆPLEGA 1,3 MILUÓNUM
— Guðmundur Sigurjónsson hlaut fegurðarverðlaunin, sem kom honum ókaflega á óvart
Verðlaunaafhending í
Reykjavíkurskákmótinu fór
fram í veizlu menntamálaráð-
herra, Vilhjálms Hjálmars-
sonar, í gærkvöld. Efstir og
jafnir urðu þeir Friðrik Ólafs-
son og Jan Timman. Þeir skiptu
með sér efstu verðlaununum og
komu 1900 dollarar eða 354.000
íslenzkar krónur í hlut hvors.
Skákmennirnir í 3.—4. sæti,
þeir Najdorf og Tukmakov,
skiptu verðlaununum á milli
sín og fengu 875 dollara hvor.
Það gerir 163.000 á mann.
t hófi menntamálaráðherra
voru einnig afhent fegurðar-
verðlaun mótsins. Þau hláut
Guðmundur Sigurjónsson fyrir
skák sína við Vickevich í fyrstu
umferðinni. Fegurðarverð-
launin námu 200 dollurum eða
rúmlega 37.000 ísl. krónum.
"Guðmundur lenti i 5.—6. sæti
ásamt Antoshin og hlaut fyrir
það afrek 400 dollara. Heildar-
vinpingsupphæð Guðmundar
nemur því tæpum 112.000
krónum.
Þeir Jón Þorsteinsson og
Bragi Halldórsson sáu um að
velja fegurstu skákina, og kusu
sem áður sagði skák Guð-
mundar við Vuckevich. Að sögn
Ásgeirs Kaaber, blaðafulltrúa
Taflfélags Reykjavíkur, kom
vai þeirra Jóns og Braga Guð-
mundi ákaflega á óvart.
Heildarverðlaunaupphæð
Reykjavíkurmótsins nam 6.850
dollurum, sem gerir á gengi
Skákmenn eru oftast alvarlegir og einbeittir á svip. En svona líta þeir út, þegar þeir brosa að loknu
móti. Friðrik og Timman hafa lika ærna ástæðu til að vera ánægðir. DB-mynd Árni Páll.
dagsins í dag 1.276.155 krónur.
Auk þess þurfti að greiða ferðir
skákmannanna, uppihald og
dagpeninga. Því má ljóst vera
að geysilegur kostnaður hefur
verið við mótshaldið. Ásgeir
Kaaber sagði að verðlaunin
væru þau hæstu, sem greidd
hafa verið á skákmóti hér-
lendis. — Honum var ókunnugt
um tap Taflfélags Reykjavíkur
af mótshaldinu. —AT —
þegar í stað"
Krabbameinshœtta i óliðnoði?
„Könnum mólið
— segir trónaðarlœknir
„Það þarf miklu minni
kveikju en þetta. Ég mun
kanna þetta þegar i stað,“
sagði Ölafur Jónsson trúnaðar-
læknir Álversins um það, að
hætta á krabbameini, sérstak-
lega lungnakrabbameini sé
miklu meiri meðal starfs-
manna í áliðnaði en í öðrum
greinum. Þetta kom fram á al-
þjóðlegrí ráðstefnu um um-
hverfi á vinnustað, sem haldin
var í Osló í síðasta mánuði.
Ólafur sagði að mikið hefói
verið rætt um að loka
kerjunum í Álverinu því að
það sæju allir og fyndu, að um
loftmengun væri þar að ræða.
Hins vegar væri það dýrt, og
það sem verra væri illfram-
kvæmanlegt.að loka þeim, þar
sem ekki hefði verið gert ráð
fyrir því í upphafi Starfandi er
hollustunefnd við fyrirtækið
og er helzt fylgzt með húð-,
ofnæmis- og lungnasjúkdóm-
um. „Þar er einmitt mikið
rætt um kolarykið og sífellt er
unnið að því að draga úr því
eins og hægt er,“ sagði Ólafur.
„Það mætti nefna í þessu
sambandi að kerskálarnir
væru ekki verstir heldur ýmsir
aðrir vinnustaðir, þar sem
unnið er að smíði kola-
skautanna. Menn hafa vitað í
30-40 ár að kolaryk og tjara
valda m.a. krabbameini í
lungum.“
-EVI.
Verður leyfð 24% hœkkun ó landbúnaðarvörum ó 3 vikum?
Ríkisstjórninni hafa borizt
tillögur frá sexmanna-
nefndinni um 15% hækkun á
súpukjöti og að verð á lærum
og hryggjum hækki eitthvað
meira. Þýðir þetta um 100
króna hækkun á kílógrammi af
súpukjöti, en það kostar í dag
584 krónur. Landbúnarvörur
hækkuðu fyrst í september um
8,83% til samræmis við
hækkun vísitölu fram-
færslukostnaðar. Ef hækkun
verður leyfð í samræmi við
tillögur sexmenninganna
hækka ýmsar af ódýrari
kjöttegundunum um sem næst
24% og það á aðeins 3 vikum.
Ekki tókst að ná í Ölaf
Jóhannesson viðskipta-
ráðherra í morgun til að kanna
hvort einhverjar hliðar-
ráðstafanir yrðu gerðar.
-BÁ-
Kólígerlar
fundust í
votnssýni ó
Neskaupsstað
— sjó baksiðu
Svartsýni um
órangur af
för Kissingers
til Afríku
— Erlendar fréttir
bls. 6-7
Annað en
ísland kom
ekki til greina
sagði Janusz
Czerwinski
— sjó iþróttir bls. 12-13
„Heimsins
Ijótasta flik"
-nýr björgunar-
galli fyrir
skipbrotsmenn
—sjó bls. 9