Dagblaðið - 20.09.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 20.09.1976, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 20. SEPTEMBE* 1976. w I aðalstöðvum þýzku rannsóknarlögreglunnar: Smósjór sem stœkka 500 jxísund sinnum og vékir sem mynda Til að sjá virðast aðalstöðvar sambandsrannsóknarlögreglunnar miklu frekar heiisuhæli eða rannsóknarstofa. AmihiIamm leln#S f Tölvustýrð upplýsingamiðstöð og talva sem w5 j f1IIC0Q lilllll [ greinir 17 milljén fingrqför á 2 mínútum Það er sennilega af einskærri tilviljun að aðalstöðvar Sam- bandsrannsóknarlögreglu V- Þýzkalands, sem i daglegu tali er kölluð BKA, Bundeskriminal- amt, eru á Gálgafjalli í Wies- baden. Héraðið þar í kring er tengt glæpastarfsemi fyrri ára. Um fimm hundruð metrum frá húsinu var felustaður illræmds glæpamanns, Leichtweis, en hann var algjör plága á kaup- mönnum og póstlestum á 18. öldinni. Hann endaði daga sína í gálg- anum og þá sennilega á nákvæmlega sama stað og bygg- ing rannsóknarlögreglunnar stendur. Þaðan er nú rekin öfl- ug áróðursstarfsemi gegn hvers kyns glæpum. Hjá þessari stofnun ctarfaði Karl Schútz, sem fenginn var hingað til lands til að aðstoða við uppljóstrun glæpamála, sem voru vaxin yfir höfuð ís- lenzku rannsóknarlögreglunn- ar. Schútz sagði í sjónvarpsvið- tali á þriðjudagskvöldið að hann vildi ekki gagnrýna ís- lenzku lögregluna'eða aðferðir hennar, en hann gat ekki neitað því að hún ætti enn eftir margt ólært. Er ekki nokkur vafi á að það yrði hverjum lögreglu- manni til mikils frama ef hann fengi tækifæri til að læra af hinum hæfu vísindamönnum sem starfa í höfuðstöðvum BKA á Gálgafjalli. Safna gögnum. Það er aðeins sárasjaldan aö einhver af lögregluforingjum BKA sér um að upplýsa einstök mál. Stofnunin starfar á miklu breiðari grundvelli og sér um gagnasöfnun og rekur einnig áróður fyrir útrýmingu glæpa. Framkvæmd á lögreglurann- sóknum í V-Þýzkalandi fer fram á þann hátt að öll gagna- söfnun fer fram heima í lög- regluumdæmi hvers héraðs fyrir sig, en gengur einnig til stöðva BKA i Wiesbaden. Er mjög náin samvinna þarna á milli. BKA skapar einnig héraðslögreglunni starfsgrund- völl á breiðari grunni, ef ein- hver þau mál koma upp, sem heimamenn ráða ekki sjálfir við. Til að sjá virðast stöðvar BKA í Wiesbaden líkari heilsu- hæli eóa afskekktri tilrauna- stofu, en miðstöð upplýsinga og glæpauppljóstrana. Þetta er svo sem ekki fjarri lagi. Hjá stofn- uninni starfa um 2500 manns og eru flestir glæpasér- fræðingar og vísindamenn. Starfsfólkið er vandlega valið og það er ekki látið vera í sviðs- ljósinu. Til viðbótar við tölvustýrðu upplýsingamiðstöðina INPOL rekur BKA margar og full- komnar rannsóknarstofur, sem aðstoða lögreglumenn víðs vegar að úr ríkinu við að upp- lýsa glæpamál. Notaðar eru mjög nýtízkulegar aðferðir við alla gagnasöfnun og lögreglu- menn hljóta einnig ómetanlega þjálfun hjá BKA á ýmsum sér- sviðum. Stofnunin sjálf fæst ekki aðeins við gagnasöfnunina heldur einnig við rannsókn ákveðinna málaflokka. Eru það aðallega baráttan við hryðju- verkamenn, ólögleg vopnasala og eiturlyfjasala. Einnig er sér- stök öryggisdeild innan stof- unarinnar og hefur hún aðsetur i Bonn. FæsL sú deild við ORnSSHðll Innritun daglega frá kl. 10—12 og 1—7. Reykjavík Brautarholti 4, simar 20345 og 24959 Drafnarfelli 4 (Breiðholti), sími 74444 Kópavogur Félagsheimilið, síini 38126. Hafnarfjörður Góðtemplarahúsið, sími 38126. Seltjarnarnes Innritun auglýst siðar. Keflavík Innritun auglýst síðar. Unglingar Allir nýjustu táningadansarnir — svo sem Bus Stop. Disco Stretch, Footstomper, Cleveland Continental, Rubi Reddress, Crazv Fever, Taca-tu, Sing Sing. Boogie og inargir fleiri. Kinnig 11> kk og t jútt. öryggismál ríkisins bæði heima og erlendis. Hr. Reikningsheili BKA í Wiesbaden hefur fengið sérstakt orð á sig fyrir hve faglega þar er unnið að öllum málum. Deildin þykir einhver sú nýtízkulegasta sinnar tegundar sem starfandi er í heiminum nú. Er þetta ekki sízt að þakka yfirmanni deild- arinnar, dr. Horst Herold, sem tók við stjórninni árið 1971. Hann hlaut fljótlega viðurnefnið hr. Reikningsheili. Honum tókst á ótrúlega skömmum tíma að nýta tölvu- þjónustu í þágu stofnunar- innar. Er það upplýsingamið- stöð lögreglunnar, INPOL. Miðstöð þessa griðarlega Þarna er verið að leita að glæpamanni og stuðzt við blóð-' rannsóknir. Verið er að kenna rannsóknarlögreglumönnum ýmsar aðferðir til að varðveita sönnunargögn í glæpamálum. mikla heila geymir upplýsingar frá öllum lögreglustöðvum rík- isins, fyrir utan allar þær upp- lýsingar sem BKA hefur aflað. Þegar þessi heili verður full- búinn mun hann geta gefið hverjum þeim lögreglumanni, sem aðgang hefur að honum, umbeðnar upplýsingar, hvaðanæva frá Þýzkalandi. Sem stendur hefur verið komið fyrir 800 sendi- og mót- tökutækjum, sem hægt er að hafa beint samband við frá mörgum stöðum í Þýzkalandi og þá í gegnum stjórnstöðina INPOL. Til stendur að bæta átta þúsund tækjum við þau sem þegar eru komin í notkun. Þetta auðveldar m.a. gifur- lega alla leit að fólki, farar- tækjum eða hverju öðru sem þarf að hafa upp á. Hefur þetta gefið mjög góða raun í sam- bandi við landamæravörzlu. Lögreglan getur á svipstundu fengið upplýsingar um hvort persóna sú, sem verið er að athuga, sé eftirlýst af lögregl- unni. Fjöldi þeirra sem handteknir hafa verið við landamæri ríkis- ins síðan þessi tækni komst í gagnið hefur aukizt um 60%. Ekki gefur þetta þó fyllilega til kynna það hagræði, sem hlýzt af INPOL. Fólk er í rauninni A rannsóknarstofunni tekur ekki nema andartak að ganga úr skugga um hvort skjöl séu fölsuð eða ekki. miklu frjálsara í ferðum, því nú tekur sá tími sem fer í að rann- saka hvort viðkomandi sé sekur eða saklaus ekki nema brot af ■1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.