Dagblaðið - 20.09.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 20.09.1976, Blaðsíða 15
DACiBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1976. Dr. Horst Herold er fæddur í Thiiringen 1923 og tók við stjórn BKA árið 1971. Hann var áður vfirmaður lögregl- unnar í Niirnberg. Hann varð fyrstur Þjóðverja til að taka tölvur í þjónustu bar- áttunnar gegn glæpum. Árangurinn lét ekki á sér standa i Niirnberg, tíðni glæpa lækkaði um 11% eftir að dr. Herold hafði „kort- lagt“ hina ýmsu glæpi þar. Dr. Hcrold lagði stund á laganám og stjórnvísindi og hlaut doktorsgráðu í báðum greinum. því sem áður var. Þetta kemur algerlega í veg fyrir að fólk sé haft í haldi á röngum for- sendum í Iangan tima. Á meðan lögreglumaður hefur ekki haft tækifæri til þess að skoða bíl hins grunaða, er tölvan þegar búin að afla allra upplýsinga sem fást um hann og hvort óhætt sé að leyfa honunt að fara frjálsum ferða sinna. INPOL hefur verið í notkun i fjögur ár og þykir ekki leika nokkur vafi á gildi þess. INPOL getur annað 250 þúsund fyrir- spurnum daglega. I rafmagns- heilanum er að finna persónu- legar upplýsingar um allt að 250 þúsund manns. Þar liggja fyrir allar upplýsingar um 110 þúsund farartæki og 370 þúsund önnur atriði sem eru á leitarlistum þýzku lögregl- unnar. INPOL getur á auga- bragði sagt til um hvort ákveðinn peningaseðill sé stolinn. hvort ákveðin byssa sé eftirlýst, hvort númersskilti bifreiðar sé falsað eða hvort skilríki einhvers séu fölsuð. Allar þessar upplýsingar er nú kleift að fá með aðstoð lítils tækis sem er á stærð við litla vasatölvu og lögreglumenn geta haft í vasa sinum. Það gilda mjög strangar reglur unt eigna- og notarétt þeirra upplýsinga, sem stofnun- in lætur í té. Iléraðslögreglulið eiga fullan rétt á öllum þeim upplýsingum sem þau hafa sjálf látið í té. Þótt sambands- lögreglan ráði yfir öllum tölvunum á hún samt ekki skil- Fingraförin cru borin saman á tölvuskerminum. Alls hafa þeir sautján milljónir fingrafara j „bankanum" sínum. ■ Sprengjusérfræðingar athuga sem sprakk í ruslafötu. yrðislausan rétt til annarra upplýsinga en þeirra sem hún hefur sjálf safnað. Þar að auki má einungis nota upplýsingar, sem fengnar eru hjá INPOL i upplýsingaskyni fyrir lögregl- una. Það er langt frá þvi að þessa fullkomnu tölvutækni megi ein- ungis nota í leit lögreglunnar að ákveðnum aðilum eða hlut- um. Nú er unnið að því að hægt verði að nota þessa tækni í þvi skyni að kortieggja allar þekktar glæpaaðferðir, ef svo má að orði komast. Þetta mun verðá glæpasérfræðingum landsins til ómetanlegrar aðstoðar því þarna verður gerð nákvæm skýrsla yfir allar aðferðir þekktra glæpamanna í Þýzkalandi og þær kortlagðar lið fyrir lið. Þegar verið er að rannsaka óupplýst glæpamál getur viðkomandi rannsóknar- lögreglumaður matað tölvuna með upplýsingum sem þegar liggja fyrir og er tölvan þá ekki nema andartak að komast að raun um hvort annar samsvar- andi glæpur eða glæpamaður er á skránni hjá INPOL. Þannig sparast mikill tími og tala hinna grunuðu verður minni. Sú tækni sem notuð er á rannsóknarstof- leifar sprengju Höfuðfat fórnardýrsins er rannsakað til þess að ákveða hvert morðvopnið hefur vcrið. BKA r næstum ótrúleg. Þeir hafa yfir að ráða smásjám sem geta stækkað frá 20 upp í 500 þúsund sinnum. Þeir geta myndað hluti sem eru svo smáir að þeir sjást ekki með berum augum. Þeir geta vegið og gert athuganir á hlutum sem vega ekki nema einn milljón- asta part úr grammi. Þarna eru einnig tæki sem ákvarða á svip- stundu hvort skjöl séu fölsuð og það tekur ekki nema 120 sek- úndur að bera fingraför saman við sautján milljónirfingrafara sem eru í fingrafarabankanum. BKA er í mjög nánu sam- starfi við alþjóðalögregluna Interpol, sem er byggð upp með samstarfi 120 þjóða. Um 25—30% af starfsemi Interpol er í nánu sambandi við BKA. Stjórnstöðin í Weisbaden hafði afskipti af 35 þúsund af 240 þúsund talstöðvarútköllum Interpol á sl. ári. Fjarskipti Interpol, sem ná yfir Afríku, Asíu og Ameríku, eru mjög þýðingarmikil í baráttunni gegn glæpahringum og alþjóða- glæpamönnum sem annars gæti verið erfitt aö handtaka á þessari hraðfleygu þotuöld. Samstarf sambandsrann- sóknarlögreglunnar við önnur lönd er alltaf að aukast. Á hverju ári skráir stjórnstöðin_t Wiesbaden meira en 120 þús- und atriði erlendis frá. BKA hefur ekki.einungis áhuga á að skrá þýzka glæpamenn og glæpi i upplýsingabanka sína, heldur vill stofnunin einnig hafa í fórum sínum upplýsingar um alþjóðlega og eftirlýsta glæpa- menn. Eitt af framtíðarmarkmiðum Dr. Horst Herold er að koma á fót „Evrópskri glæpamiðstöð" (Euro-Crime Centre). Interpol hefur þegar hafið undirbúning að því að koma á fót sameigin- legri tölvumiðstöð. En allir sem þarna eiga hlut að máli eru fullvissir um að enn getur liðið langur timi þangað til stjórn- málamenn gefa samþykki sitt til þess að slík stofnun komist á laggirnar. Fyrsta skrefið í þessa átt er beint fjarskipta- samband BKA við bæði Scot- land Yard og FBI, sem þegar hefur verið komið á. Síðan 1970 hefur verið kleift að senda myndir af glæpa- mönnum, fingraför og myndir teknar á glæpastaðnum með fjarskiptatækjum víðs vegar um Þýzkaland. Þessi starfsemi hefur nú fært út kvíarnar og er unnt að veita slíka þjónustu út fyrir landamærin. Nú eru beinar línur við Ziirich, Stokk- hólm, London, París, Haag, Brússel, Vín, Róm og Santiago í Chile. í tilraunaskyni hafa verið sendar myndir til Pretóriu og þaðan um gervi- hnött til Brasilíu. Nýkomið Italskar kvenmokkasíur miúku leðri, fóðraðar o ur með sljtsterku solum Teg 2261 leour Litur svart Stœrðir: Nr 36 41 Verð kr 4590 Upplýsingamiðstöðin INPOL þar sem geymdar eru upplýsingar um nærri því hvaðeina sem viðkemur glæpum og glæpamönnum. Sönnunargagn undir rafeindasmásjánni. Aðeins annað Ijósið logaði þegar hillinn rakst á. Glóðarþráðurinn til vinstri brotnaði kaldur, en til ha'gri hafa glerflísar borazt í heitan vírinn. Teg. 2200 Litur: Brúnt leður Stœrðir: Nr. 36—r41 Verð kr. 4470.- 7893 Litur svart leður eða cognac Verð kr. 4250.- Skoverzlun Þórðar Pétu Kirkjustrœti 8 v/Austurvöll. Sími 14181

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.