Dagblaðið - 20.09.1976, Page 21
J V
21
U.ttlHLAiim. .MAVIDACL K 20. SKI’TKMKKK 197(5.
% BANKASTRÆTI, SÍMI 283 50
Satín samkvœmisjakkar
Blazerinn hefur með tím-
anum orðió annað og meira i
tizkuheiminum en blái og
,,peni“ jakkinn, sem aldrei fer
úrtízku.
Nýjasta nýtt í þeim efnum
eru blazer jakkar úr satíni sem
eru notaðir við kvöldklæðnað.
Ef þú átt svona skínandi
fallegan kjörgrip, sem slíkir
jakkar eru, í klæðaskápnum
áttu völ á óteljandi blæbrigðum
í klæðaburði þínum.
Jakkinn fer einstaklega vel
við síðar samkvæmisbuxur og
má þá gjarnan nota silfurbelti
um sig miðja. Hann hentar
einnig vel yfir mjög flegna
kjóla og blússur og eins við
rúllukragapeysur, sem eru þá
heldur af vandaðri gerðinni.
Einnig má nota blazer við
plíserað pils.
Hægt er að hafa fjölbreytni í
skreytingu jakkans og skreyta
hann með stóru tilbúnu blómi,
sem er mjög í tízku, fallegri
brjóstnælu í jakkalafið eða
nota litskrúðugan hálsklút.
Þarna eru tvær útgáfur af
blazer í kvöldskrúða. Annar er
úr Ijósgráu satíni með yfir-
dekktum tölum, en hinn úr
svörtu efni og hnappalaus.
Báðir jakkarnir eru einstaklega
klæðilegir og eigulegustu flík-
ur í alla staði.
TIZKUHORNIÐ
Kjólasiddin
meira sniðin
eftir
fótleggjunum
Um þessar mundir er kjóla-
síddin sem er í tízku meira
sniðin eftir vaxtalagi viðkom-
andi en grillum tízkukónganna.
Þó er alltaf • einhver ákveðin
stefna ráðandi. Sú sem núna er
hvað vinsælust er hin svokall-
aða 7/8 sídd, eða vel niður f.vrir
hné. Það er alltaf freistandi að
prófa nýju síddina þegar hún
kemur ,,á markaðinp", og þessi
er líka klæðileg fyrir flesta fót-
leggi. Hún er líka hlýleg svona í
vetrarb.vrjun og hentar vel káp-
um og yfirhöfnum og hæfir síð-
buxum, svo ekki sé talað um há
stígvél.
Og til að tolla í tízkunni
þegar vetrarkápan verður
keypt sakar ekki að geta þess i
leiðinni að aðallitirnir á þeim í
vetur verða. fílabeinslitur,
brúnt, svart og kamelullarlitur.
q(wriWL,
HÓTEL
LOFTLEIÐIR símí 22322
^ Tískufatnaöur
" v4 fyrir stelpur og stráka
-v.“ # - ?
Hafiö samband tímanlega.
Bjóöum alls konar mannfagnaö velkominn.
Vistleg salarkynni fyrir stór og smá samkvæmi.
Veisluföng og veitingar aö yðar ósk.
LAMBASKROKKAR
1. verðflokkur kr. 549.-
2. verðflokkur kr. 498.-
SAGAÐ OG PAKKAÐ
HEIMSENDING KR. 200.-
DS^®TTOííyD[l)©1J®Œ)ORQ
Laugalæk 2, REYKJAVSK, simi 3 5o 2o
Chevrolet Blazer
'72—'74. sem mætti greiðast
að fullu á 10—12 mánuðum.
Höfum
kaupanda að