Dagblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 7
7 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976. Erlendar fréttir Indíánar sagðir myrða börn sm i órvœntmgu Ríkisstjórn Brazilíu kannar nú skýrslur sem borizt hafa, um aö frumstæður Indiána- þjóðflokkur í Amazon- frumskóginum taki börn sín af lífi í örvæntingu sinni yfir yfirgangi hvítra manna á landi þeirra. Ismarth Araujo de Oliveria, yfirmaður stofnunar fyrir mál- efni Indíána í Brazilíu, sagði í viðtali við fréttamann Reuters í Rio de Janeiro í gær, að hann hefði sent sérfræðing sinn inn í frumskóginn á landamærum Perú og Brazilíu til að kanna málið frá fyrstu hendi. I skýrslunum, sem birtar hafa verið í Rio, er haft eftir vísindamanninum Paulo Lucena, að Mayuruna- þjóðflokkurinn stefni nú að sjálfsútrýmingu og taki öll ung- börn sín af lífi. Segir í þessum skýrslum, að á þremur árum hafi Indiánum þessum fækkað úr tvö þúsund í fjögur hundruð, aðallega vegna sjúkdóma hvita mannsins, svo sem mislinga og inflúensu. „Þeir eru örvæntingarfullir og vita ekki hvert þeir eiga að fara, svo að þeir hafa ákveðið að deyja...“ er haft eftir Lucena. Oliveira sagði að sérfræðingur stjórnarinnar yrði fyrst að ganga úr skugga um sannleiksgildi skýrslnanna og síðan ástæðurnar fyrir þessum drápum. Ef þau væru hluti trúarsiða Indíánanna og ekki i nokkrum tengslum við framgang h'vitra manna inni í frumskóginn.væri ekkert hægt að gera, þvi stjórnvöld skiptu sér ekki af helgisiðum einstakra þjóðflokka og ættbálka, sagði Oliveria. „Chilestjórn sendir út morðingja dulbúna sem sendiróðsstarfsmenn" Sviss: Vopnaðir menn gœta Kortsnojs — segir ekkja Allendes fyrrum forseta Ekkja Salvadors Allende fyrrum forseta Chile, ákærði í gær herforingjastjórnina í Chile fyrir að senda út morðingja dulbúna sem sendi- ráðsstarfsmenn til að drepa chileanska útlaga. Ekkjan lét hafa þetta eftir sér eftir sprengjuáarás á Orlando Letelier fyrrum ráðherra í ríkisstjórn manns hennar. Letelier var á svörtum lista hjá DINA, leynilögreglu Chile að sögn ekkju Allende. Hún bætti því við, að morðingjar stjórnarinnar notuðu vegabréf sendiráðsstarfsmanna til að komast allra sinna ferða. Dóttir Allendes, Beatriz, sem er búsett í Havana á Kúbu sagði i gær, að Orlando Letelier hefði skrifað sér og sagt að bandaríska leyni- þjónustan FBI hefði varað sig við því að setið væri um líf sitt. Beatriz skýrði frá því að Letelier hefði skrifað sér tvö bréf um þetta mál og meðal annars sagt, að hann hefði farið fram á vernd frá FBI. Beatriz Allende fordæmdi bandarísku ríkisstjórnina, sem hún kvað ábyrga fyrir morðinu. Stjórnin hlyti að vera samsek chileönsku morðingjunum, fyrst hún hefði. vitað um hótanirnar en ekki sinnt þeim. Hcr sést. AUende forseti ásamt lífvörðum sínum, örfáum klukku- stundum áður en hann var myrtur. — er hann situr að tafli Sex vopnaðir lögregluþjónar stóðu allt í kringum sovézka stór- meistarann Victor Kortsnoj, er hann tefldi skák í borginni Berne í Sviss í gærkvöld. Kortsnoj, sem fór sjálfviljugur í útlegð frá Sovétríkjunum, óttaðist að hans gömlu landar myndu reyna að gera honum eitthvað. — Kortsnoj tefldi við Svisslandsmeistarann Hans-Juerg Kaenel. Kortsnoj hélt blaðamannafund í Ziirich í gær, — þann fyrsta síðan hann leitaði hælis í Hollandi í júlí. — Þar sagði hann, að Sovétmenn myndu ekki hika við að beita valdi til að hindra sig í að taka þátt í áskorendaeinvíg- unum um réttinn til að tefla við heimsmeistarann. Hann kvaðst þess einnig fullviss, að pressa hefði komið frá Kremlverjum á þá rúmlega 30 stórmeistara sovézka sem hefðu fordæmt hann í opnu bréfi. Skákferðalag Kortsnojs til Sviss er hið fyrsta sem hann fer síðan hann leitaði hælis á Vestur- löndum. Öllum áætlunum viðvíkj- andi ferðina er haldið stranglega leyndum af öryggisástæðum. Sovézki stórmeistarinn Victor Kortsnoj, sem nú er á ferða lagi um Sviss, neyðist til að tefla undir lögregluvernd af ótta við að fjandmenn hans í Sovétríkjunum beiti hann of- beldi. Fyrsta sjónvarpskapprœða Fords og Carters í kvöld: 100 millión manns munu horfa á þá í sjónvarpi — skoðanakannanir benda til yfírburða Carters í fíestum ríkjum Ford Bandaríkjaforseti og Jimmy Carter, frambjóðandi Demókrataflokksins, hefja fyrsta sjónvarpseinvígi sitt í Jimmy Carter: Hefur hann raunverulegt vit á hlutunum? kvöld og er búizt við að allt að hundrað milljón manna muni fylgjast með því. Kappræðurnar, sem standa í hálfa aðra klukkustund, gætu skipt miklu máli í kosningabar- áttunni — og jafnvel ráðið úrslitum í kosningunum 2. nóvember. Starfsmenn kosninganefndar Carters hafa gert skoðanakönn- un, sem bendir til þess að hann njóti meira fylgis en Ford í 37 af 50 rikjum Bandaríkjanna. Aðrar skoðanakannanir benda til þess að allt að 20% kjósenda hafi enn ekki ákveðið hverjum þeir greiði atkvæði sitt i kosn- nigunum. Ford verður að standa sig mjög vel i kappræðunum í sjón- varpinu ef honutn á að takast að vinna á sitt band þá k.iósend- Ford verður að sýna að hann sé annað og meira en bráðabirgðafor- seti. ur, sem telja hann aðeins gegna embættinu til bráðabirgða eftir fall Nixons. Carter má ekki standa sig síður og verður að sýna fram á, að stefna hans sé úthugsuð og byggð á skynsemi og dóm- greind. Hann verður einnig að reyna að beina athyglinni frá umdeildu viðtali í Playboy, þar sem hann gerði opinskátt grein fyrir skoðunum sínum á kyn- ferðismálum og siðferði. Kappræðurnar í kvöld verða teknar upp í leikhúsi í Phila- delphiu og munu snúast aðal- lega um innanrikismál og efnahagsmál. Einnig er búizt við að fjallað verði um kornsölu til útlanda og spillinguJnnan stjórnkerfisins. Þetta verður fyrsti kapp- ræðufundurinn af þremur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.