Dagblaðið - 28.09.1976, Qupperneq 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976 — 216 TBL. RÍTSTJORN SÍÐUIVUJLA 12, SÍMI 83322, AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022
„Þeir hafa sennilega ekki
œtlað að svindla gróflega"
— sagði Gunnar Olafsson hjó Landhelgisgœzlunni
I þriðja sinn
var allt
í lagi hjó
belgísku
togurunum:
-
„Það var farið um borð í alla
þá belgísku togara sem við
náðum í frá varðskipinu Ægi í
gær," sagði Gunnar Ölafsson,
skipherra hjá Landhelgisgæzl-
unni, í viðtali við Dagblaðið í
morgun. „Þá reyndist þetta allt
saman vera komið í lag hjá
þeim.“ Sem kunnugt er af frétt
um mældust veiðarfæri fjög-
urra belgískra togara ólögleg
við athugun varðskipsmanna á
Tý sl. föstudag og er farið var
um borð í þessa sömu togara
síðar þann dag, reyndust þau
ennbá vera í ólagi.
„Við margendurtekin brot af
þossu tagi fara mál islenzkra
skipstjóra fyrir siglingadóm,
sem dæmir í rnálinu," sagði
Gunnar ennfremur. „An þess
að ég þori að fullyrða það hefur
mér verið sagt, að t.d. Bretar
séu mun strangari á þessu, ef
þeim berast kærur þar fá skip-
stjórar allt að tveggja mánaða
réttindasviptingu fyrir brot af
þessu tagi“.
Sagði Gunnar.að við nánari
athugun á föstudag hefði komið
í ljós, að svo virtist sem bætt
hefði verið gömlum netadræs-
um inn i netin, því að þau
hefðu ekki verið með alia
möskva ólöglega. „Og það sem
meira er, pokinn var oft stærri
en belgurinn, svo þeir hafa nú
sennilega ekki verið að reyna
að svindla gróflega," sagði
Gunnar.
Hann sagði einnig að við at-
hugun i lestum togaranna hefði
komið í ljós að fiskurinn hefði
ekki reynzt smár og að tog-
ararnir virtust fiska bærilega.HP.
30 daga varðhald og 550 þúsund
— fyrir itrekað landhelgisbrot hjó 70 tonna búti
Ingólfshöfða aðfaranótT
Skipstjórinn á Erlingi RE-
65 var dæmdur í 30 daga
varðhald og 550 þúsund
króna sekt til landhelgis-
sjóðs fyrir landhelgisbrot,
en báturinn var tekinn að
ólöglegum veiðum innan
þriggja inílna markanna við
laugardags. Sé sektin ekki
greidd innan skamms tima
lengist fangelsisdómurinn í
40 daga.
Dómurinn var kveðinn
upp hjá fulltrúa fógeta í
Vestmannaeyjum i gær. Afli
og veiðarfæri voru gerð
upptæk. Um var að ræða
ítrekað brot hja skipstjóra.
Skipstjóri á Erlingi er
Sveinn Anton Stefánsson.
Hann tók sér hálfsmánaðar-
frest til þess að ákveða hvort
hann áfrýjar dóminum til
hæstaréttar.
sekt
Allan Magnússon, sem
kvað upp dóminn, sagði í
morgun að búið væri að
setja kr. 1450 þús. til
tryggingar sektinni og
matsverði á afla og
veiðarfærum, en það var að
upphæð 660 þús. krónur.
-A. Bj.
Eniga, meniga, nú græðir
mamma líka peninga! Og
það engar smáupphæðir, ef
hún er handfljót. Það var
svo mikið að gera í
söltuninni í Bæjarút-
gerðinni í gær, að enginn
mátti veraað því aðlíta upp.
Margur hefur á undan-
förnum árum komið
fótunum undir sig fjárhags-
lega með því að fara í síldar-
söltun. A þessum siðustu og
verstu tímum veitir víst ekki
af nokkrum aurum í viðbót
við það sem fyrir er. —DB-
■ mynd Sveinn Þorm.
—Sjá bls. 9.
inrmuuur |urumiuuuuuur urKUSTornunar:
Rétt að halda áfram og koma fyrri
samstœðunni í Kröflu í rekstur
„Þessi greinargerð leggur
ekki mat á það hvort gufa
fáist við Kröflu. Hún er
skrifuð með tilliti til
hættuástands á svæðinu,"
sagði Guðmundur Pálmason,
forstjóri Jarðhitadeildar
Orkustofnunar, sem ritaði
iðnaðarráðherra bréf ásamt
orkumálastjóra. Þar
sögðu þeir meðal annars:
„Rétt er að leggja áherzlu á
að koma fyrri vélasam-
stæðunni í Kröflu i
nothæfan rekstur um næstu
áramót."
Guðmundur sagði að það
sem kæmi fram í greinar-
gerðinni væri meðal annars
það að ekki væri ástæða til
að stöðva framkvæmdir
vegna goshættu.
Guðmundur lagði áherzlu
á að eitt væri að segja að
stefna bæri að einhverju og
annað að það væri hægt. Hér
væri fyrst og fremst um að
ræða ráðleggingar sem
iðnaðarráðuneytinu væru
gefnar. -bA.
; ......, .........
Útboð íslenzka
járnblendifélagsins:
130 milljóna
munur á að
steypa
sðmu hluti
Byggingar járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundar-
tanga hafa verið boðnar út
að talsverðuleyti.
í gær voru 'opnuð tilboð i
undirstöður og steinsteypta
hluti nokkurra mannvirkja
verksmiðjunnar, svo sem
ofnhús, lager, verkstæði,
færibönd og fleira.
Kostnaðaráætlun íslenzka
járnblendifélagsins hf. nam
kr. 442,880.322.00
Eftirfarandi tilboð bárust:
AAalbraut hf.:
BreiAholt hf:
ístak hf.:
MiAfell hf :
Þórísós hf.:
489.459.355.00
465.090.400,00
428.382.740.00
516.603.250.00
610.003.250.00
Ekki hafa tilboðin verið
metin enn, og, verður nú
gerð athugun á þeim.
-BS.
Ali og
Norton
slást í nótt
— íþróttir i opnu
•
Rikið kaupir
Landakot á
800 milljánir
— Sjá baksiðu
Hundur
skaut mann
Erl. fréttir bls. 6-7