Dagblaðið - 30.09.1976, Qupperneq 1
irísdst,
áháð
dagblað
2. ÁR(j. — FIIVIMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1976. — 218. TBL. .RITSTJÓRN SÍÐÍIMÚLA 12, SÍMI 83322, AUÓLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOUTI 2, SlMI 27022
Keflvikingar
Alþýðubankamálið:
Frekari
rannsókn á
viðskiptum
Klúbbsins
Ríkissaksóknari hefur óskað
eftir því við Sverri Einarsson
sakadómara sem annazt hefur
dómsrannsóknina á Alþýðu-
bankamálinu að hann kanni
nánar viðskipti tveggja fyrir-
tækja við bankann. Bæði þessi
fyrirtæki koma mjög við sögu í
ávísanamálinu og bæði eru í
eigu forráðamanna Klúbbsins,
eða Bær hf. og Borgartún 32.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Dagblaðið hefur aflað
sér, mun hafa komið i ljós að í
Alþýðubankanum lá töluvert af
óinnleystum ávísunum frá
þessuin fyrirtækjum. —öV
HANN HEFUR
ÁSTÆÐU TIL
AÐ FAGNA
Veðurfarið austanlands og
norðan hefur verið með
eindæmum gott að undan-
förnu. Hallormsstaðaskógur
hefur dafnað betur nú en oftast
áður. Sigurður skógarvörður
Blöndal á Hallormsstað hefur
sannarlega ástæðu til að fagna
þessu góða sumri. Sprotar
trjánna hafa bætt verulega
við sig. I)B heimsótti Sigurð í
lok síðustu viku og þá var þessi
m.vnd tekin af honum þar sem
har.n s.koðar stoltur ótrúlega
góðan sprota á Alaskaösp. 2-3
ára gamalli. sem vaxið hafa i
sumar í ungum gróðri í
uppeldisstöð skógræktarinnar.
Lengstu sprotarnir eru allt
að 1.70 m eftir sumarið
—DB mynd JBP-
Krafla bezti
geymslustaður fyrir
seinni vélasamstœðuna
— sjá bls. 15
Þeir eiga 10 ára
afmœli í dag, —
sjónvarpsmenn
— sjá bls. 8 og 9
fagna!
Steinar Jóhannsson hefur
skorað jöfnunarmark ÍBK
gegn Hamborg SV og Þórir
Sigfússon vefur Steinar
örmum. Jón Ólafur Jónsson,
hinn gamalre.vndi kappi,
sem leikið hefur alla 16
Evrópuleiki ÍBK, hleypur
ánægður til þeirra félaga.
Keflavík gerði jafntefli
við Hamborg 1-1.
En hinir tveir
Evrópuleikirnir töpuðust —
Skagamenn töpuðu naumt í
Tyrklandi 2-3, en Fram
tapaði illa i Bratislava 0-5.
Sjá íþróttir i opnu.
Islendingum haldið ó steinaldarstigi í tœknimálum:
SKÝRSIA UM UTSJÓNVARP
FALIN OG MÁ ALDREISJÁST
Reynir sýnir fram á að dreifi-
kerfi sjónvarpsins verði ekki
bætt nema litsjónvarp verði
hafið. Tekjur af sölu
ilitsjónvarpa eru lykillinn að
því að bæta dreifikerfið. Lit-
sjónvarp vilja menn þó ekki
almennt fyrr en litsendingar
dagskrárefnis verða auknar. Að
koma því í 80% kostar ekki
nema 40 milljónir.
Reynir telur ástandið hjá
hljóðvarpinu enn átakanlegra
en hjá sjónvarpinu. Ýmsir
möguleikar til úrbóta eru að
skapast en eru ekki nýttir. Til
að 70% þjóðarinnar geti notið
stereo-sendingar útvarps þarf
að kaupa sendi i Vatnsendastöð
sem kostar 4—6 milljónir eftir
styrkleika. Vantar þá einungis,
smátæki á Skúlagötu til að geta
komið útsendingunni við. Allt
málið snýst þvi um 10 milijónir
til að 70% þjóðarinnar njóti
stereo-útsendingar.
Reynir skýrir mál sín vel í
kjallaragreininni.
—ASt.
Sjá bls. 11
35-40 MILLJONIR KOSTAR AÐ SENDA 80% DAGSKRAR-
EFNIS ÚT í LIT OG 10 MILLJÓNIR AÐ K0MA Á STERE0-
SENDINGUM ÚTVARPS TIL 70% ÞJÓÐARINNAR
„Okkur Islendingum er
haldið niðri á steinaldarstigi af
ráðamönnum þjóðfélagsins og
tækniþróun í landinu er tafin
vegna þekkingarskorts og vilja-
leysis stjórnvalda til að takast á
við tæknileg málefni," segir
Reynir Hugason verkfræðingur
í athyglisverðri kjallaragrein í
blaðinu í dag.
Sjónvarpið þarf ekki nema 3
kvikmyndavélar sem samtals
kosta 15—20 milljónir króna og
að auki filmuskanner, sem
kostar aðrar 20 milljónir króna,
til þess að hægt sé að senda um
80% alls dagskrárefnis sjón-
varps út í lit.
Reynir ljóstrar því upp að í
íebrúar sl. hafi verið samin
skýrsla um hvernig bezt yrði
staðið að því að fara opinber-
lega út í litaútsendingar hér á
, landi. Ráðamenn hvöttu sjón-
varpið eindregið til að stinga
þessari skýrslu undir stól og
láta hana aldrei koma fram.
Vi