Dagblaðið - 01.10.1976, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FOSTUDAGUR 1. OKTOBER 1976.
/
„24. október '76 mun
styrjöldin hefjast"
Erlendar
fréttir
Nf [/a\
BÖKUNAR- OG GRILLOFNAR, HELLUR-
DJÚPSTEIKINGARPOTTAR O.FL.
RowenLa
HEIMILISTÆKI
© \ íöriimarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112 Matvörudeild S-86-111, VefnaSarv.d. S-86-113
16 manns láta lífið í eldsvoða
1 km undir yfirborði jarðar
Sextán námumenn létu lífið í
austurhluta Frakklands f gær, er
mikil sprenging varð í kolanámu,
þar sem námumennirnir voru að
reyna að slökkva minniháttar
elda, sem upp höfðu-komið.
I fyrstunni var talið að aðeins
níu menn hafði farizt en
björgunarsveitir fundu síðar sjö
lík til viðbótar.
Sprenging varð í námunni, sem
er skammt frá borginni Frey-
ming-Merlabach, er öryggissveit
vann að því að slökkva eld á
rúmlega eins kílómetra dýpi
undir yfirborði jarðar. Er þetta
mesta sprenging, sem orðið hefur
i námunni í 17 ár. 27 manns létu
lífið í gussprcngingu, sem varð
þar árið 195Í) og fyrir nákvæm-
iega tíu árum. létu þrír menn lífið
i slysi, sem þarna varð.
Skœruliðasamtök í Ródesíu:
HÖFNUM ÖLLUM
SÁTTATILLÖGUM
Skæruliðaher Rodesíu hefur
sent frá sér yfirlýsingu, sem birt
var í Maputo í Mosambique í gær.
Segir þar, að þeir hafni algjörlega
sáttatillögum þeim,' sem hvítir
menn og Kissinger hafa komið sér
saman um til lausnar kynþátta- og
stjórnunarvandamálinu í suður-
hluta Afríku.
Segir i yfirlýsingunni að þeir
muni berjast þar til „lokasigur-
inn“ er unninn og er 2ja ára
aðlögunartímabili því, sem
blökkumenn eiga að hafa til þess
að taka völdin i Ródesíu hafnað.
„Við getum ekki, undir neinum
kringumstæðum deilt völdunum
með kynþáttahöturum og
fasistum,“ segir ennfremur í yfir-
lýsingunni.
I ræðu sem Henry Kissinger
utanríkisráðherra Bandarikjanna
hélt í New York i gær sagði hann
að nú væri úrslitastund s-
hluta Afríku runnin upp. Myndi
nú reyna á það, hvort þeir væru
tilbúnir til þess að leysa vanda-
málið á friðsamlegan hátt. Sagði
hann að leiðtogar ýmissa frelsis-
hreyfinga, svo og leiðtogar minni-
hlutastjórna hvítra manna, hefðu
sýnt mikinn vilja til að koma á
friðsamlegri lausn málanna og
hrósaði Bretum fyrir tillöguna
um sérstakt ráð blökkumanna og
hvítra, sem hefði það verkefni að
ræða hentugustu leiðir til þess að
skipa ríkisstjórn í Ródesíu og
ræddi hann ennfremur við Ivor
Richard, sendiherra Breta við
Sameinuðu þjóðirnar, en hann
hefur verið talinn liklegur for-
maður ráðsins, ef það verður sett
á laggirnar.
Q^Electrolux eldhúsinnréttingar
Blökkumenn í Soweto hafa boðað til styrjaldar innan tveggja
vikna, verði ekki komið á jafnrétti fyrir þann tíma: Almennir
borgarar elta blökkumann í óeirðunum, sem þarna hafa verið
undanfarnar vikur.
NY DEILD
(i kjallara undir matvörudeild)
— segja blökkumenn
kvöldi 24. október 1976 mun
styrjöldin hefjast. Menn og
konur á aldrinum 15-65 ára eiga
þá að vigbúast. Árásir hefjast
um leiði'
Er því bætt við, að eignum og
ríkisstarfsmönnum skuli „eytt
eins fljótt og auðið yrði.“ Er
boðað til þessarar uppreisnar
ef ríkisstjórnin „bannar ekki
nauðungarvinnu og kemur á
jafnrétti á öllum sviðum“ fyrir
15. október.
Ford um rannsóknina á einkamálum hans:
„ÉG ER SAKLAUS"
Ford Bandaríkjaforseti hefur
spáð því, að hann verði algjörlega
hreinsaður af öllum ásökunum er
rannsókn þeirri lýkur sem nú
stendur yfir á meintum fjármála-
afbrotum hans, er hann var þing-
maður fyrir Michigan.
í fyrstu yfirlýsingu, sem hann
hefur gefið um málið, sagði hann
við fréttamenn að nauðsynlegt
væri, að rannsókninni, sem er
stjórnað af Watergatesak-
sóknaranum Charles Ruff, yrði
hraðað eins og unnt væri, „því um
leið og reynt er að tefja réttlæltið
hafnar maður þvíH, eins og hann
komst að orði.
Sagði Ford að það væri honum
meira 1 mun að hreinsa sig per-
sónulega með rannsókninni, en að
vinna sér álit í baráttunni fyrir
forstakosningu, sem hann nú háir
gegn Jimmy Carter, fram-
bjóðanda Demókrataflokksins.
^jElectrolux heimilistæki
í Jóhannesarborg
Dreifimiðum iiefur verið
dreift í útborg Jóhannesarborg-
ar, Soweto, þar sem blökku-
menn hvetja til „styrjaldar", ef
yfirvöld veita þeim ekki jafn-
rétti innan tveggja vikna.
Bæklingarnir, sem eru
ljósritaðir, bera yfirskriftina
„Rödd blökkumanna í Suður-
Afríku“ og þar segir m.a.: „Að
JARÐHITI
FINNST í
DANMÖRKU
Viborghérað á Jótlandi
kann nú að verða eitt alls-
herjar gróðurhús fyrir Ðan-
mörku og jafnvel stóran
hluta af Norður-Evrópu.
Verkfræðifyrirtæki í
Árósum, sem ásamt með
Skivehéraði hefur sótt um
leyfi til þess að nýta jarðhita
þann, sem þarna hefur
fundizt, ætlar að setja upp
stóra dreifistöð við Viborg
Hafa nú þegar borizt
umsóknir frá garðyrkju-
stöðvaeigendum.
Vilja þeir nýta jarðhita
þennan í svipuðum dúr og
á íslandi, segir í fréttum frá
Danmörku.
REUTER