Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 01.10.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 01.10.1976, Qupperneq 8
DA(JBLAÐIÐ. KÖSTUDA(JUR 1. OKTÖBÉR 1976. Frjáls útvarpsrekstur? Andrés Björnsson útvarpsstjóri: ,„Ég veit það ekki hvort stereoútvarps sé aú vænta á næstunni," sagði Andrés Björnsson útvarpsst.jóri í við- tali við Dagblaðið. ,.Eg vona það en þetta er allt saman á umræðustigi ennþá. Fer það mikið eftir því hversu ört okkur tekst að dreifa örbylgju- kerfinu sem mér skilst að sé algjör forsenda. Eins hefur verið rætt um það hvaða leiðir eigi að velja í þessu sambandi en þær eru þó nokkrar." Sagðist hann ekki hafa feng- ið neina kostnaðaráætlun enn sem komið væri en bjóst við því að stereoútvarp fyrir þröngan hring hér á Suðurlandi þ.vrfti ekki að kosta neitt mikið „en allt sem fer fram yfir það kost- ar náttúrlega mun rneira,'* sagði Andrés ennfremur. „Við erum hins vegar komnir það langt að við tökum upp tónlist í stereo,“ sagði Andrés. Menn verða fljótt skuld- bundnir út og suður" Stereoútvarp hefur verið rœtt. Sinfónian tekur 20 millj. af 80. Verður gerð að sérstakri rikisstofnun. Ekkert liggur ó með Dagskrá 2. „Við höfum aðstöðu til þess, og það hefur bætt okkar aðstöðu á ýmsan hátt, t.d við Sinfóníuna." Um það hvað Sinfóníuhljóm- sveitin tæki mikinn hluta af fjármagni því er útvarpið hefði til dagskrárgerðar sagðist út- varpsstjóri ekki hafa neinar fastar tölur við höndina en benti á að hún væri að lang- minnstum hluta kostuð af útvarpinu. „ríkið borgar rúman helming og borgin og við skiptum á milli okkar afganginum, — við borgum þó um 24%.“ JáttiAndrés því að sennilega væri hlutur þeirra um 20 milljónir króna af þeim 80 sem þeir hafa til dagskrárgerðar í útvarpinu. „Nú stendur til að Sinfóníu- hljómsveitin verði gerð að sérstakri ríkisstofnun en ég vona að það verði sem lengst þangað til,“ sagði Andrés. „Við verðum samt alltaf aðilar að henni, — ég held að það sé óhjákvæmilegt." „Prógramm tvö var rætt hér miklu meira á árum áður en á seinni tímum hafa hugsanirnar snúizt miklu meira um aðra hluti,“ sagði útvarpsstjóri enn- fremur. Sagði hann það vera svo misjafnt, hvaða þættir í rekstrinum þrengdu að þeim á hverjum tíma og ennfremur að í stað þess að koma á fót nýrri dagskrá, sem byggð yrði á auglýsingum og tónlist, nær eingöngu, sem svar við hug- myndum um nýja útvarpsstöð, sagði hann að rætt hefði verið um það að undanförnu að dreifa efninu meira út á land, „þ.e.a.s. að efnið yrði sótt, með einu eða öðru móti, út á land þannig að sem flestir lands- menn gætu lagt sitt af mörkum við dagskrárgerðina." Taldi hann það að vísu eðlilegt að höfuðstöðvar sjón- varps og útvarps væru í höfuðborginni en benti á að möguleikarnir til þess að senda efni utan af landsbyggðinni hefðu batnað, t.d.á Akureyri. Andrés sagði að þar hefðu þeir, eftir að örbylgjur komu þangað, aðstöðu til þess að senda efni en að önnur aðstaða væri slæm. Um það hald manna að lítið fjármagn og ennþá minni mannskap þyrfti til að koma á fót annarri dagskrá við útvarpið sagði Andrés.: „Já, það þarf enginn að segja mér það. Allar hugmyndir um kotnaðarleysi við slíkt eru algjörlega út í loftið — því plötubunkinn, sem menn tala gjarnan um í slíku sambandi, kostar líka sitt og miklu meira heldur en menn halda.“ Þá benti Andrés á að það mætti ekki einu sinni snúa við plötu án þess að borga fyrir það og það stórar upphæðir. Það mega allir vita, sem ætla sér að fara að hefja útvarps- rekstur," sagði Andrés Björns- son, „að fyrr en varir verða þeir nokkuð skuldbundnir út og suður.“ —HP. Andrés Björnsson útvarpsstjóri. Sérverzlun fyrir þá sem vilja sofa vel Þriðjung ævinnar eru menn í fastasvefni — ef vel á að vera. Það ríður því á að menn láti sér líða vel, sofi í þægilegum rúm- um og klæðist góðum náttföt- um, noti menn slíkan fatnað á annað borð. Sérverzlun með náttföt og undirföt var opnuð á laugardaginn í kjallara Glæsi- bæjar, Madam, heitir búðin. Á m.vndinni er Guðmunda Björgvinsdóttir að sýna tveim viðskiptavinum varninginn. DB-mynd Árni Páll. Ætla að sauma flíkur til útf lutnings „Hér er ekkert atvinnuleysi enda stöndum við betur að vígi en mörg önnur byggðarlög því við byggjum ekki eingöngu á fiskin- um,“ sagði Vigfús Ölafsson, fréttaritari DB á Reyðarfirði. Hér hafa fjölmargir atvinnu sína af verzlun og ýmsum þjónustugreinum. Nokkrir fram- takssamir menn hafa nú stofnað saumastofu hér og er ætlunin að sauma flíkur til útflutnings úr ullarvoðum sem ofnar eru hjá ull- arverksmiðjunni Dyngju á Egils- stöðum. Verða það allt að tíu manns sem fá vinnu í saumastof- unni.“ Er fréttamaður DB átti leið um Reyðarfjörð fyrir skömmu voru staðarmenn önnum kafnir við að mála gömlu verbúðina þar sem saumastofan verður til húsa. Meðal þeirra mátti sjá Helga Seljan alþingismann. „Það eru tveir bátar gerðir út frá Reyðarfirði núna, Gunnar og Snæfugl. Þeir eru báðir 250 tonna stálbátar. Undanfarið hafa þeir verið að veiðum undan Suð- austurlandi og selt afla sinn í Þýzkalandi. Aflinn, sem farið hefur í salt, hefur verið tregur.“ Nú stendur yfir sauðfjárslátr- un á Reyðarfirði og er áætlað að slátrað verði 18 þúsund fjár í haust. —A.Bj. Formaður Alþýðusam- bands Vestfjarða um aðgerðir linusjómanna: Tíðindalaust ó vesturvíg- stöðvunum Það er tíðindalaust hér á vesturvígstöðvunum, sagði Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða, er blaðið spurði hann frétta af launadeilu vestfirzkra línu- báta í gær, en sem kunnugt er er deilan leyst á Súgandafirði og bátar þaðan byrjaðir róðra. Engin hreyfing er í sam- komulagsátt þessa stundina, að sögn hans, og eru engir fundir fyrirhugaðir en á það er að líta að engir formlegir fundir hafa verið haldnir í þessari deilu. G.S. SKJALDHAMRAR SLÁ í GEGN f DUBLIN 100 metra kafli varð útundan Skapgerðareinkenni söguper- sónanna komast frábærlega til skila og er þar enginn veikur hlekkur, segir gagnrýnandinn Tony Hennigan í írska blaðinu Irish Independent á miðvikudag- inn var um flutning leikritsins Skjaldhamra í Abbey- þjóðleikhúsinu í Dublin. Hann segir þetta undir millifyrirsögn- inni: Enginn veikur punktur. Þá lýsir hann hrifningu sinni á verkinu í heild sem hann segir sameina gamanleik og alvarlegt ívaf með ákveðinni meiningu. Hann getur svo sérstaklega leik- myndagerðar Steinþórs Sigurðs- sonar og lýsingar sem hann telur hvort tveggja frábært. í svipaðan streng tekur gagn- rýnandinn Malach.v Magee í blað- inu Evening Herald og bendir les- endum á þær sýningar sem eftir eru á verkinu. Reyndar vakti þetta verk Jónasar Árnasonar mikla ath.vgli á leiklistarhátíð í Dundalk á Ír- landi 1 vor og þar voru sömu leik- arar á ferðinni nema Matheson: Gunnar Eyjólfsson, Jónína Ólafs- dóttir, Anthony Matheson, Gra- ham Swannell, Árni Ibsen og Ingibjörg Ásgeirsdóttir. Alan Boucher þýddi verkið á ensku. Eftir velgengnina þar var flokkn- um boðið til Dublin. Borgarstjórarnir í Reykjavík og Dublin voru viðstaddir frum- sýninguna á þriðjudagskvöldið og þar var höfundurinn einnig mætt- ur. í kvöld, föstudagskvöld, stend- ur svo til að forseti írska lýð- veldisiris sjái verkið. „O, — og ég var búinn að bíða eftir því í 20 ár að þessi vegarspotti yrði malbikaður og gat því ekki stillt mig lengur þegar loksins var búið að klina á liann," sagði ökumaðurinn á svörtu fólksbifreiðinni sem virti ekki lokunarskiltið og ók á nýta malbiksspottanum, „þrætueplinu", á mótum llring- brautar og Vesturgötu í Kefla- vík en sá hluti var einn skilinn eftir, þegar búið var að malbika og oliumalarbera veginn út i Garð og Sandgerði. vegna ágreinings Keflavikurbæjar og loks varð samkomulag um 100 metra ófœran kafla ó veginum milli Keflavíkur og Garðs Vegagerðarinnar. Ekki vitum við hvernig ,,eplinu“ var skipt en bærinn vann verkið. Þar með er einn versti kaflinn á þessari leið orðion greiðf;er. en b;eði vatn og snjór gerðu öku- mönnum olt erfitt fyrir, að vetrar- og vorlagi en það er nú vonandi úrsögunni. —ennn —G.S. Sviðsin\ iid ur írsku úlgáfiiiiiii af Skialilliiiiin iiin. —DK-iiiviiiI

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.