Dagblaðið - 09.10.1976, Side 1

Dagblaðið - 09.10.1976, Side 1
2. ÁRG. — LAUGARDAGUR 9. OKTÖBER 1976. — 226. TBL. .RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOÚTI 2, SÍMI'27022 r Vi Seltirningar sviptir fógetafuíltrúa sínum ,,Þaö hefur kostað töluverða röskun og erfiðleika fyrir íbúa' Seltjarnarnesskaupstaðar, að fulltrúa fógeta í Hafnarfirði, sem starfað hefur á fógetaskrif- stofu hér á Nesinu, hefur verið kippt suður á fógetaskrif- stofurnar í Hafnarfirði,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri í viðtali við DB. „Þessa breytingu tel ég aðeins vera til bráðabirgða og stafa af manneklu á skrifstofunum í Hafnarfirði. Okkur er tjáð að þetta verði aðeins í mánaðartíma. Lengur en það munum við ekki sætta okkur við að vera fuiltrúa- lausir,“ sagði Sigurgeir. Bæjarstjórinn á Sel- tjarnarnesi hefur lítillega fjallað um málið, að sögn Sigur- geirs, en ekki þótti ástæða til sérstakrar ályktunar, þar sem allir bæjarstjórnarmenn telja þetta algert bráðabirgðaúrræði. Sagði Sigurgeir að þörf fyrir fógetaþjónustu væri ört vaxandi, fasteignabreytingar æ tíðari og fólksfjölgun mikil. Sigurgeir sagði að með kaupstaðarstofnuninni hefði fjárveitinganefnd Alþingis aukið fjárveitingu til fógeta- embættis í Hafnarfirði vegna fógetaþjónustu í Seltjarnar- nesskaupstað, og breyting til rýrnunar á þeirri þjónustu, sem veitt hefði verið í kaupstaðn- um, yrði ekki liðin þegjandi og hljóðalaust. Öþægilegt hefði verið, sagði Sigurgeir, að fógetafulltrúanum hefði verið kippt til starfa til Hafnarfjarð- ar án fyrirvara. Baldur Möller ráðuneytis- stjóri kvaðst ekki getað tjáð sig um þetta mál. Það væri mat Þorleifs Pálssonar, eftirlits- manns ráðuneytisins með sýsluskrifstofum utan Reykja- víkur og setts sýslumanns í Hafnarfirði.að í Seltjarnarness- kaupstað væri ekki þorf fyrir fulltrúa í fullu starfi. Víða annars staðar á landinu væri lengra að sækja fógetaþjónustu en fyrir íbúa Seltjarnarness. Embættismannakerfið myndi þenjast mjög út ef hafa ætti fógetafulltrúa á öllum stöðum. Að öðru leyti vísaði Baldur til Þorleifs Pálssonar, en hann var á ferð úti á landi í gær. — Hann lúnar rólegur og tryggur á svip í góðviðrinu'þessi gamli eikarbátur. Liklegast er hann að hvíla sig eftir humarvertíðina og bíður nú nýrra átaka, sennilega með linu, eða einhver léttari veiðarfæri, og sums staðar þykja þessir bátar gjaldgengir á vetrarvertíðina. I)b-mynd: Arni Páll. Þ.vkj þe Afleiðingar þurrviðrisins ó Héraði í sumar: Vatnið að verða dýrara en viskíið! Þetta er orðið eins og í Bret- landi, þar sem vatnið er að sögn orðið dýrara en viskiið, sagði Þorgrímur Gestsson kennari á Hallormsstað í viðtali við DB í gær, en góð- viðrið þar í sumar hefur leitt af sér vatnsskort. Þannig varð skólahúsið al- veg vatnslaust einn dag, en ráðstafanir hafa verið gerðar til að tryggja nægilegt vatn, m.a. með að dæla því úr á með uppsprettuvatni. Gallinn er bara sá að hún er nú 'mjög vatnslítil og ekki unnt að dæla úr henni allan sólarhringinn. Einhverjar skúrir voru eystra í gær og vona Héraðs- búar að hressilega rigni áður en fer að frjósa, svo vatnsbólin taki við sér. — G.S. Róðherra hefur úthlutað þrem embœttum lyfsala í blóra við sérfrœðinga — baksíða Hrútur festist í skíðalyftu í Bláfjöllum t fyrrakvöld komu menii við á Arbæjarstöð og afhentu þar gráan hrút, sem í sumar hefur verið stór og stæðilegur, en var nú aumingjalegur og af honum dregið. Höfðu mennirnir komið að hrútnum, þar sem hann var fastur í vir einnar skíðalyftunnar í Bláfjöllum. Hafði snúið horn hans krækzt utan um vírinn og honum ekki tekizt að losa sig. Var vír þessi uppi á fjallsbrún. Hrútnum var komið í fjárhús en ekki fékkst hann til að bragða heytuggu og í nótt drapst hann. Eigandinn fannst og reyndist frá Innri- Njarðvík. Var hrúturinn 3ja vetra. -ASt.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.