Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER 197
Kosið um sóknarpresta i Dómkirkju og Háteigskirkju
Um helgina munu sóknarbörn
í tveim sóknum Reykjavíkur
ganga aó kjörborói. í Dóm-
kirkjusókn og Háteigssókn
veröur kjörinn nýr prestur.
Dagblaðið ræddi við
umsækjendurna, tvo presta
sem sækja um Dómkirkjuna
og þrj'á sem sækja um Háteigs-
kirkju.
Sr. Auður Eir Vilhjúlmsdóttir, umsœkjandi
um Hóteigssókn:
REYKVÍSKUR SÖFNUÐUR
TEKUR í FYRSTA SKIPTI
AFSTÖÐU TIL KVEN-PRESTS
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir
og eiginmaður hennar, Þórður
örn Sigurðsson.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
prestvígð kona býður sig fram
til prestsstarfs í Reykjavík, og
hlýtur þessi staðreynd að setja
svip sinn á kosningabaráttuna.
Kirkjan hefur tekið þá afstöðu
að konur skuli vera í presta-
stétt og nú tekur reykvískur
söfnuður í fyrsta sinn afstöðu
til þess í almennum
kosningum,“ sagði sr. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir í viðtali við
DB er hún var spurð hvort hún
teldi að það hefði einhver áhrif
á kosningabaráttuna að hún er
^kvenmaður.
Sr. Auður var spurð hvers
vegna hún sækti sérstaklega
um sHáteigssókn og svaraði
hún: Við hjónin erum bæði
Reykvíkingar og hér viljum við
helzt búa og starfa. Við höfum
átt heimili í Frakklandi í fjögur
ár svo tími er til kominn að
snúa heim. Um árabil hefur
hugur minn staðið til prests-
starfa.
Við hjónin ákváðum fyrir
tveimur árum að ég tæki að
mér um eins árs skeið prests-
þjónustu á Stað í Súgandafirði,
þar sem prests væri þörf. Eftir
það fór ég til Suðureyrar, en
okkur var ljóst að slík ráðning
kæmi ekki til greina til margra
ára nema'á stað, þar sem mað-
urinn minn gæti fengið starf í
sérgrein sinni. Við erum for-
eldrar fjögurra barna og viljum
vitanlega að fjölskyldan geti
verið saman.
Raunar er margs að sakna frá
Suðureyri. Fólkið þar er dug-
andi og hreinskiptið og var
starfið með því einstaklega
ánægjulegt. Við mæðgurnar
eignuðumst þar marga góða
vini og það gerði eiginmaður
minn líka, er hann kom þangað
í starfsleyfum sínum.
Þá var sr. Auður spurð hvort
hún væri hlynnt prestskosning-
um almennt.: Sá hluti
kosningastarfsins, sem ég vinn
sjálf, þykir mér mjög lærdóms-
ríkur og raunar skemmtilegur.
Þetta starf er fólgið í því
að heimsækja safnaðarfólkið,
ræða við það og kynnast þvi.
Hvernig sem kosningarnar fara
eru þessi kynni mín af fólki,
sem allt hefur veitt mér hlýjar
viðtökur, mjög mikils virði. A
hinn bóginn tel ég ekki réttlátt
að prestar séu hin eina stétt
embættismanna sem verður að
þeyja kosningabaráttu í sinni
grein. Að lokum vildi sr. Auður
koma fram þakklæti til þeirra
fjölmörgu sem hafa aðs.toðað
hana í kosningabaráttunni.
-G.S.
Sr. Tómas Sveinsson, umsœkjandi um Hóteigssókn:
VIL BÆTA Á MIG VERKEFNUM
— telur kosningobaróttuna hafa verið drengilega
Ég hef hug á auknum verk-
efnum eða stærri yerkefna-
hring og því valdi ég Háteigs-
sókn fremur en t.d. Dómkirkju-
sóknina, sagði sr. Tómas
Sveinsson í viðtali við DB, en
hann er sóknarprestur á Sauð-
árkróki.
Sagðist hann hafa mikinn
áhuga á alhliða og miklu starfi
innan safnaðarins og góðu sam-
starfi við þá aðila sem vinna
safnaðarstörfin, en sérstaka
áherzlu hyggst hann leggja á
barna- og unglingastörf.
Kosningabaráttan nú er
frumraun sr. Tómasar á því
sviði, er hann var kosinn prest-
ur á Sauðárkróki sótti enginn á
móti honum.
Hann var spurður hvort hann
teldi hættu á óheppilegum af-
leiðingum kosningabaráttu sem
þessarar. Hann taldi það mál
hafa tvær hliðar. Jákvætt taldi
hann að ganga í hús sóknar-
barnanna og ná þannig að
kynnast þeim verulega. Hins
vegar væri neikvæða hliðin sú
að kosningabaráttan kynni að
skipta fólki í hópa sem gæti
verið erfitt að sætta eftir á.
Sagði hann það vandamál ekki
eins áberandi í Reykjavík og
úti á landi.
Er hann var spurður álits á
þeirri hugmynd að skipa presta
í stað þess að láta söfnuðina
kjósa um þá sagði hann að það
fyrirkomulag hefði einnig aug-
ljósa galla og gæti valdið
miklum deilum.
Sr. Tómas hefur dvalið í
Reykjavík að undanförnu og
m.a. heimsótt fjölda fólks í
Háteigssókn, sem fyrr segir.
Um kosningabaráttuna vildi
hann að lokum segja að hann
Sr. Tómas: Prestskosningar
hafa bæði jákvæðar og nei-
kvæðar hliðar.
vonaðist til að hún héldist jafn-
drengileg fram á sunnudags-
kvöld og hún hefur verið til
þessa, taldi hann enga heiftúð
hafa hlaupið í hana. —G.S.
Sr. Hannes Guðmundsson, annar umsœkjenda um Dómkirkjuna:
Prestskosningar hafa jaðrað við siðleysi
- stefndi að þvi að beita ekki óróðri og opnaði ekki kosningaskrifstofu
Eg hefi ekki hugsað mér að
opna kosningaskrifstofu, ganga
í hús, hringja til fólks eða
senda frá mér bréf og bæklinga
eins og tíðkazt hefur svo oft
Sr. Hannes Guðmundsson:
Fékk ákveðna bendingu í
draumi. DB-mynd Arni Páll
áður, sagði sr. Hannes
Guðmundsson, annar
umsækjenda um Dómkirkjuna
í Reykjavík í viðtali við DB er
hann var spurður hvers vegna
hann gerði það ekki og hvort
það þýddi að honum væri ekki
alvara.
Hann tók skýrt fram að sér
væri full alvara og hélt áfram:
Mér er fullkomlega ljóst að vel
skipulögð kosningabarátta
getur ráðið úrslitum en hún
getur líka brugðizt, eins og
dæmin sanna. Eg tel að
safnaðarfólkið sé fullfært að
mynda sér skoðun án þrýstings
sem oft verður til þess að rjúfa
vináttubönd og vekja úlfúð
innan safnaðarins. Prest-
kosning á ekki að bera svip af
óvægnum veraldlegum
kosningum, þó þær hafi gert
það í þéttbýli undanfarna ára-
tugi, svo jaðrað hefur við algert
siðleysi, og prestinum hefur
ekki enzt starfsævin til að jafna
ágreininginn. Kosningin á að
fára frám með þeim hætti að
sem minnstum sársauka valdi
bæði fyrir söfnuð og
umsækjendur.
Er sr. Hannes var spurður
hvers vegna hann sækti um
Dómkirkjuna sagði hann tvær
ástæður til þess: Sú fyrri er að
ég er þegar búinn að þjóna í
strjálbýli rúma tvo áratugi og
hefi aldrei sótt um annað
prestsembætti. Ég tel að það
gæti verið gott bæði fyrir mig
og söfnuðinn að breyta nú til!
Síðari ástæðan er sú að ég tel
mig hafa fengið ákveðna
bendingu um það í draumi, að
ég ætti að sækja um þetta
prestakall, en ekki eitthvert
annað. Ég veit að mjög hæpið
er, ef ekki hlægilegt að láta
drauma ráða ákvörðun sinni, en
engu að síður er þetta satt,
sagði hann að lokum. Sr.
Hannes er nú prestur að Fells-
múla í Landssveit.
-G.S.
Sr. Hjalti: Dómkirkjan hefur
verið mín kirkja mestaila æv-
ina. DB-mynd Arni Páll.
Sr. Hjalti Guðmundsson,
annar umsœkjenda um
Dómkirkjuna:
KOSNINGAR BEZTA TÆKIÐ
FYRIR SOFNUÐINN SJÁLFAN
— var skirður, fermdur og giftur i Dómkirkjunni
og hefur þjónað þar
Eg sæki fyrst og fremst um
Dómkirkjuna vegna persónu-
legra tengsla við hana, sagði sr.
Hjalti Guðmundsson, annar
umsækjandinn um Dómkirkj-
una, er hann var spurður um
ástæðu fyrir umsókn sinni.
Hann hélt áfram að skýra hana.
Ég er fæddur og uppalinn í
vesturbænum og hefur þetta
verið mín kirkja mestalla mína
ævi. Foreldrar mfnir sungu í
Dómkirkjukórnum árum sam-
an. Sfðan tók ég við af þeim og
söng þar f um það bil 11 ár hjá
Páli ísólfssyni.
Þá þjónaði ég f Dómkirkj-
unni I Vi ár fyrri hluta árs 1964 f
' veikindaforföllum sr. Jóns
Auðuns og loks má geta að ég er
skírður, fermdur og giftur þar
svo hún stendur mér ákaflega
nær hjarta.
Er hann var spurður hvort
hann hefði sótt um einhverja
aðra sókn í Reykjavík, hefði
Dómkirkjusóknin ekki verið
laus til umsóknar, en sr. Hjalti
er prestur í Stykkishólmi,
sagðist hann ekki geta um það
ságt að svo stöddu, hi-ns vegar
hafi sér þótt einsýnt að sækja
um þessa sókn þegar hún
losnaði nú.
Aðspurður hvort hann væri
fylgjandi prestskosningum,
eins og þær fara nú fram.
Eins og prestskosningar eru
nú, álít ég að þær séu að syngja
sitt síðasta. Þær eru komnar út
í öfgar og sennilega er það
prestunum sjálfum að kenna og
nánustu fylgismönnum þeirra,
sagði Magnús Guðjónsson í
viðtali við DB er hann var
' spurður álits á prestskosning-
um.
Hann sagði t.d. að
ógjörningur væri að heimsækja
fjögur þúsund heimili, eins og
nú væri miðað við að
umsækjendur gerðu. Það væri
einfaldlega ekki tfmi til þess,
prestar hefðu ekki þann tíma
aflögu frá sóknum sfnum og
væri þetta enn erfiðara úti á
landi.
Um kosningabaráttuna nú
sagði hann að hún væri jákvæð
að þvi leyti að þrátt fyrir
mikinn áróður hefði hann ekki
orðið illkvittinn, eins og
umsækjendurnir hefðu reynd-
ar allir vonað í upphafi.
Ekki sagðist hann frekar en
aðrir hafa hugmyndir um
hvernig koma mætti vió
skipunum presta í embætti, í
stað kosninga en hann sagðist
fylgjandi því ef það væri
framkvæmanlegt á einhvern
•lýðræðislegan hátt, svo sem að
tekið yrði tillit til starfsaldurs
og miklu fremur starfsferils.
Sr. Magnús var f 20 ár
prestur á Eyrarbakka og
undanfarið hefur hann þjónað
við Fríkirkjuna í Hafnarfirði.
sagðist hann ekki á þessu stigi
sjá aðra leið betri. Hann sagði:
Þær eru alltaf óþægilegar fyrir
prestinn sjálfan en ég tel
prestskosninguna bezta tækið
fyrir söfnuðinn sjálfan til að
velja sér prest. í kosningum
fær vilji safnaðarins að koma
fram.
Um það hvort eðlilegt væri í
prestskosningum að opna
áróðursskrifstofur, eða upp-
lýsingaskrifstofur, sagði hann
einfaldlega: Sá sem ætlar að ná
árangri verður að setja þess
háttar í gang.
Hann vísaði til reynslu
sinnar frá Stykkishólmi þar
sem hann sagði marga stuðn-
ingsmenn keppinautanna úr
prestskosningunum þar hafa
orðið meðal beztu vina sinna
eftir á, er hann var spurður
hvort ýfingar kosningabarátt-
unnar kynnu ekki að draga
óheppilegan dilk á eftir sér.
Loks vildi hann hvetja fólk
til að taka þátt í kosningunum á
sunnudag, án þess að vera að
mæla með öðrum hvorum um-
sækjandanum, heldur til þess
að fólk sýndi hug sinn til Dóm-
kirkjunnar. Tveir prestar eru
við Dómkirkjuna, og er annar
þeirra, sr. Þórir Stephensen,
bekkjarbróðir sr. Hjalta.
— G.S.
Sr. Magnús: Lofa ekki upp i
ermina.
Hann var spurður að því hvers
vegna hann sækti um Háteigs-
sókn. „Mig langar að evða
starfskröftum mínum I þágu
þjóðkirkjunnar, sem ég hef
þjónað í 20 ár, ég bý nálægt
Háteigssókn sem er fjölmenn
sókn með mikil verkefni. Til að
valda þeim þarf starfsreynslu
seip ég tel mig hafa,“ sagði
hann.
Að lokum var hann spurður
hvort hann væri með einhver
sérstök áform á prjónunum,
yrði hann kosinn, en því vildi
hann ekki svara en sagði:
„Maður á aldrei að lofa upp í
ermina og tíminn einn verður
að skera úr um hvernig unnið
er." -G.S.
Sr. Magnús Guðjónsson, umsskjandi
um Hóteigssókn:
Prestskosningar i þessu formi
að syngja sitt siðasta
*Ó\'