Dagblaðið - 09.10.1976, Qupperneq 12
12-,
r
Jazzmenn koma saman
$ve
Mú í SWnasa'num
Jazzklúbbur Reykjavíkur
gengsöfyrir jazzkvöldi í Súlna-
sal Hótel Sögu á mánudags-
kvöldið. Þar vinda fimm gamal-
kunnir jazzarar sér i sveifluna.
Þeir eru Jón Páll gítarleikari,
Gunnar Ormslev, Árni Schev-
ing, Rúnar Georgsson og Alfreð
Alfreðsson.
„Starfsemi Jazzklúbbsins er
svolítið með höppum og
glöppum," sagði Jón Páll er DB
ræddi við hann vegna
tónleikanna. „Það er helzt
þegar einhver kemur að utan
að menn koma saman og leika
nokkur lög til að endurnýja
kunningsskapinn.
Svo er einnig nú að þessu
sinni. Ég er búinn að vera í
Svíþjóð í hálft annað ár við
tónlistarflutning."
Árni bætti því við að hann
hefði mest leikið með sænskum
danshljómsveitum en einnig
tekið smájazz þegar svo bar
undir.
Jazzinn hefst klukkan níu á
mánudagskvöldið í Súlna-
salnum. -AT,-
Jazzistarnir æfðu af kappi er
Sveinn Þormóðsson ljósmynd-
ari leit inn tii þeirra. Frá
vinstri eru Arni Scheving, Jón
Páil, Gunnar Ormslev, Alfreð
Alfreðsson og Rúnar
Georgsson.
r Þarno sérðu. Nú hefurðu
Grenjandi höfuðverk.
Guð blessi þig.