Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 15
DAGBLÁÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTÖBER 1976. Það eru engar smábyggingar á Þorvaldseyri, enda verið að reisa þar félagsbú nú. Þar hefur iöngum ríkt stórhugur og byggði Þorvaldur Bjarnason bóndi þar stærstu hiöðu á íslandi árið 1886. í hitteðfyrra var ný hlaða byggð þótt ekki væri sú gamla neitt hrörieg, heldur stóðst hún ekki lengur kröfur tímans. Hlaðan nýja er ekki lengur sú stærsta á Islandi. Ibúðarhúsið fremst á myndinni er byggt fyrir um 50 árum. Það er ekki heldur af minni gerðinni. Nýsmíðin á Þorvaldseyri. Annar súrheysturn á eftir að risa við hlið þess volduga. Hann stendur ekki ofan á bíl- pallinum, þótt hann líti út fyrir það, enda meiri að vöxtum en það. smiðjur okkar. Þær eru nú orðnar 5 stórar á landinu og 3 litlar. Sem dæmi um hvað það myndi kosta mig að fá 3ja fasa rafmagn leitt hingað, sem væri um 2 km leið, get ég sagt ykkur að kunningi minn í Flóanum borgaði níu hundruð þús. kr. fyrir örsutta leið að húsi sínu.“ Vissulega er hœgt að rœkta bygg hér — Svo að við víkjum aðeins er af öðrum toga spunnið. Það er veiðibjallan á vorin, sem er svo vitlaus að hún kann ekkert að hræðast og svo grágæsin á haustin, en það er þó frekar hægt að halda henni frá með hræðum. Veiðibjallan er afar fundvís á að tína upp hvert einasta sáðkorn. Kornuppskerustörf eru ákaf- lega skemmtileg. Fyrst er það slegið, ég er með þreskivél, síðan er það þurrkað og malað í íslendingar eiga eftir að verða stórútflytjendur búvöru. „Nei, og það sem meira er, það verður ekki langt í land með það að íslenzkir bændur fari að framleiða landbúnaðar- vörur fyrir útlendan markað, eins mikið og þeir mögulega geta. Það var norskur blaðamaður sem sannfærði mig um þetta. Hann sagði: í Eystrasalti lifir Eggert er líka nýbúinn að gefa þeim ilmandi töðutuggu nýslegna af túninu. Eftir því sem hann sjáifur segir er það sérvizka hans að láta þær ekki út, þótt enn sé ekki áiiðið á haustið. fyrir sig við súrheysgjöf. Það er lyktin. En gott súrhey er alveg lyktarlaust, svo lyktarlaust að þið getið tekið það í hendi ykkar, burstað það síðan af og þefað. Lyktin er engin. Það er svo önnur saga með vont súrhey. Það er sama hvort farið er i bað, skipt um föt innst sem yzt, enn loðir lyktin við mann. Nei, það er ekkert að fölgrænu góðu súrheyri, og næringargildið efast enginn um. Fyrir nú utan að í því er ekkert ryk, sem svo margir þola illa.“ — Þið eruð líka með heykögglaverksmiðju hér í hreppnum. „Já, við eigum hana nokkrir saman í félagi. Eg get sagt ykkur hversu gott er að gefa heyköggla að l/í og súrhey að 'A. Nytin í kúnum fer upp í 20 kg og það án alls fóðurbætis. Það þarf anzi mikinn fóðurbæti með þurrheyi til þess að ná því, en fóðurbætir er fluttur inn og það liggur í augum uppi að það er þjóðhagslega ódýrara að vinna þetta hér.“ Sigurður Sveinsson fósturbróðir Eggerts hrærir í bygginu, svo að það nái að þurrkast betur áður en það er malað. Þeir œtla að flytja rafmagn um gervi- hnetti. Hvernig vœri að hugsa um ísland? Eggert lá mikið á hjarta, þegar hann fræddi okkur á því hvernig rafmagnsmálum í sveitinni væri háttað. Þar er aðeins einfasa rafmagn, sem hefur það í för með sér að litla mótora verður að kaupa við allar vélar, sem eru miklu dýrari og óhentugri. „Þeir eru að tala um að flytja út rafmagn um gervihnetti til annarra heimsálfa á meðan við erum hér í rafmagnssvelti. Skip í höfninni fá rafmagn frá dísil- vélum. Við verðum að nota olíu í sambandi við heykögglaverk- Kornuppskera er ákaflega skemmtilegt starf. Hún er engin smásmíði þreskivélin hérn Hundurinn Lubbi var ekkert hrifinn af Ijósmyndurum og því síður blaðamönnum og sneri bara bakhlutanum í okkur. ao oðru. Ræktar þú ekki bygg? „Jú, ég hef ræktað bygg í 10 ár. Stundum á 7 hekturum og stundum minna. Ég slæ því föstu að hér undir Eyjafjöllun- um sé hægt að fá fullþroskað bygg á hvaða ári sem er. í fyrra var til dæmis ákaflega kalt og í sumar afar rigningarsamt, eins og hefur víst ekki farið fram hjá neinum. Byggið hefur þroskazt ágætlega þrátt fyrir það. Vandamálið við kornrækt fóður handa svínum. Ég hef prófað kornið í brauð handa heimilisfólkinu. Það getur verið ágætt. Ég er ekki með mörg svín núna, aðeins fjórar gyltur og ætli það séu ekki ell- efu grisir. í fyrravetur fóðraði ég svínin 100% á íslenzku fóðri og til þess að fá prótein notaði ég loðnu." — Það þarf víst ekki að spyrja þig um það að þú hefur trú á íslenzkum búskap? ekki lengur fiskur, það er svo mengað. Allir akrar erlendis eru meira og minna sprautaðir til þess að verjast illgresi og úðaðir til þess að verjast alls konar kvikindum. Hvað verður langt þangað til moldin verður svo menguð og mettuð af eitur- efnum að sprettan hættir? í einfeldni minni held ég því fram sem ég sagði áðan. Útflutningur íslenzkra búvara verður að veruleika. Fyrr heldur en seinna." —EVI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.