Dagblaðið - 16.12.1976, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1976
se" „Þa mundi eg vist
kölluð háþrýstihópur”
[— sagði Ragnhildur Helgadóttir við atkvæða-
greiðslu um geðdeild — tillögur nefndarinnar
voru samþykktar samhljóða en tillögur
stjórnarandstæðinga allar felldar
„Svona þrýstihópur eins og
ég mundi víst kallast háþrýsti-
hópur, ef ég greiddi atkvæði
með þessari tillögu,*- sagði
Ragnhildur Helgadóttir(S) við
atkvæðagreiðslu um breyting-
artillögur við fjárlagafrum-
varpið á Aiþingi í gær. Ummæl-
in féllu um tillögu Magnúsar
K.jartanssonar (AB) um, að
varið sk.vldi 380 milljónum til
byggingar geðdeildar við Land-
spítalann á næsta ári.
Ragnhildur sagði, að tiliagan
stuðlaði að framkvæmdum í
nauðsynjamáli. Hins vegar
greiddi hún atkvæði gegn
henni með það fyrir augum, að
milli umræðna á þingi, áður en
fjárlög verða endanlega af-
greidd, næðist samstaða um
frekari framkvæmdir við geð-
deild en stefnt er að í fjárlaga-
frumvarpinu. Tillaga Magnúsar
var felld við nafnakall með 38
atkvæðum gegn 15, 1 sat hjá og
6 voru fjarverandi.
Ragnhildur talaði um
,,þrýstihóp“, því að Matthías
Bjarnason heilbrigðisráðherra
hafði fyrir nokkru svarað gagn-
rýni Ragnhildar vegna hæga-.
gangs í framkvæmdum við;
geðdeild með því að tala um
ásókn þrýstihópa.
Tillaga Magnúsar um aukin
framlög vegna Tryggingastofn-
unar ríkisins var einnig felld
við nafnakall með 37 atkvæðum
gegn 17, en 6 voru íjarverandi.
Stjórnarandstæðingar stóðu'
saman við atkvæðagreiðslur um'
breytingartillögur manna úr
sínum röðum, en stjórnarsinn-
ar felldu þær allar. Hins vegar
voru tillögur fjárveitinganefnd-
ar í heild allar samþykktar með
rúmlega 50 samhljóða at-
kvæðum. Blaðið hefur áður
greint frá þeim.
Nafnakall var einnig vegná
tillögu Svövu Jakobsdóttur
(AB) um aukin framlög til dag-
vistunarheimila. Hún var felld
með 37 atkvæðum gegn 18, en 5
voru fjarstaddir. Nafnakall var
vegna tillögu Skúla Alexand-
erssonar (AB) og fleiri um 20
milljón króna framlag til að
draga úr þeim mismun, sem nú
er á upphitunarkostnaði skóla.
sem eru hitaðir með olíukynd-
ingu og þeirra sem eru hitaðir
með jarðvarma. Hún var felld.
Loks var nafnakall vegna til-
lögu Gils Guðmundssonar (AB)
um aukna aðstoð við þróunar-
löndin, og var hún felld með 35
atkvæðum gegn 17, 2 sátu hjá,
en 6 voru fjarstaddir. Ingvar
Gíslason (F) gerði grein fyrir
atkvæði sínu, kvaðst telja að of
lítið væri ætlað þróunarlöndum
í fjárlagafrumvarpinu en sagð-
ist-- ekki vera viss um, að í
tillögu Gils fælist heldur hió
rétta. Hann sat hjá. Nafnakall
fór ekki fram um fleiri tillögur,
en allar tillögur Alþýðubanda-
lags-, Alþýðuflokks- og Sam-
takamanna voru felldar.
Sumar tillögur bíða af-
greiðslu við þriðju og síðustu
umræðu um fjárlagafrumvarp-
ið.
-HH
Gullastokkurinn, —
leikfangasafn handa
vangefnum bömum
— Lionsmenn í Muninn gefa gjöf
sem gladdi
Liklega eru leikföng kærkomn-
ari vangefnum börnum en öðrum.
Þetta hafa þeir líklega vitað, fé-
lagarnir i Lionsklúbbnum Mun-
inn i Kópavogi. Komu þeir auga á
það verkefni til að vinna að í
vetur að gefa vngra vistfólkinu á
Kópavogshæli leikföng að gjöf.
Var þetta svo afráðið í samráði
við stjórn hælisins og Auði
Hannesdóttur, þroskaþjálfa.
Lionsklúbburinn Muninn er 5
ára gamall og var stofnaður að
undirlagi Björns Guðmundssonar
forstjóra, sem þá var umdæmis-
stjóri Lions-hreyfingarinnar hér á
landi. Bað hann Friðrik Haralds-
son bakarameistara að stofna nýj-
an klúbb i Kój>avogi og var hann
fyrsti formaður klúbbsins, en nú-
verandi formaður er Helgi
Magnússon tannlæknir. Félagar
eru 29 talsins.
Fjár til starfsins afla félagarnir
með ýmsu móti, þeir selja perur
árlega í hús í Kópavogi, jólakort,
og á vorin selja þeir garðeigend-
um mold. sem ekið er til garóa
þeirra. Fénu er varið til stuðnings
ýmsum góðum málefnum, til
gamla fólksins, til heimila sem
eiga af ýmsum sökum um sárt að
binda. Þá hefur starfsemi hins
unga Handknattleiksfélags Kópa-
vogs verið studd, svo og skáta-
starfið í bænum.
Þegar leikfangasafnið var af-
hent Kópavogshæli á dögunum
fannst yfirlækni hælisins, Ragn-
hildi Ingibergsdóttur, við hæfi að
safnið hlyti nafn. Einn félaginn
stakk upp a nafninu Gullastokk-
urinn og mun safnið eftirleiðis
ganga undir því nafni. Þarf ekki
að orðlengja það að leikföngin
vöktu óskipta ath.vgli barnanna
og ánægjan skein þar af sérhverri
ásjónu. -JBP-
Slarfsstúlkur Kópavogshælis ásaml nokkrum harnanna virða fyrir sér
nokkur leikfanganna. þegar húið var að laka upp pakkana.
Við afhendingu leikfanganna: Friðrik Haraldsson. form. líknar-
nefndar Munins heidur ræðu (lengst til hægri). Frá vinstri eru
Helgi Magnússon. formaður Munins. Sturla Snorrason. Einar I.
Sigurðsson. Auður Hannesdóttir. þroska þjálfi. Sigurður Guð-
mundson. Ragnhildur Ingibergsdóttir. yfirlæknir. og bak við
Friðrik er Eyjólfur Melsteð. sérfræðingur við hælið. Til hliðar
sést í hiuta af leikfangasafninu.
HREINSIPRÓFA ÍSLENZKIR FRAMLEIÐENDUR FLÍKUR?
Athuganir sem Ne.vtendasam-
tökin hafa gert eru tilefni eftir-
farandi f.vrirspurna og athuga-
semda til Félags íslenzkra iðnrek-
enda og Félags efnalaugaeigenda.
Hreinsiprófa íslenzkir fata-
framleiðendur flíkur áður en þær
eru látnar á markað? Ef svo er.
væri Neytendasamtökunum þökk
að fá upplýsingar um niðurstöður
á meðan fratnleiðendur sjá sér
ekki fært að merkja flikurnar
með hreinsimerkjum.
A markaðnum eru flíkur. inn-
íendar og erlendar. með tölum
sem le.vsast upp í algengasta
hreinsivökvanum, „perklóri" og
spennur. sem losna í sundur í
hreinsivökvanum.
Hér á landi eru íramleidd
herraföt með barmfóðri. eða'
millifóðri. sem aflagast í hreins-
un.
Svo við vitum, þola flíkur úr
loðskinni. rúskinni. „mokka" og
leðurflíkur hvorki „venjulega"
hreinsimeðferð í efnalaug. sé
um að ræða svokallaða fljót-
hreinsun eða þurrhreinsun i litl-
um sjálfvirkum vélum. Skinn eru
mjög vandmeðfarin i hreinsun og
seljendur ættu að brýna fyrir
kaupendum að hreinsa þurfi þess-
ar flikur á sérstakan hátt. þar eð
venjulega eru engar leiðbeining-
ar festar á flíkina sjálfa.
w W
PELSARIURVALI
Hlý og falleg jólagjöf sem vermir.
Ath. Góðir greiðsluskilmálar.
Njálsgötu 14
Sími 20160.
J