Dagblaðið - 03.02.1977, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1977.
R'rtarióskast
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða
strax ritara til starfa í utanríkisþjón-
ustunni.
Umsækjendur verða að hafa góða
kunnáttu og þ'jálfun í ensku og a.m.k.
einu öðru tungumáli. Fullkomin
vélritunarkunnátta áskilin.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneyt-
inu má gera ráð fyrir, að ritarinn
verði sendur til starfa í sendiráðum
íslands erlendis, þegar störf losna þar.
Eiginhandarumsóknir með upp-
lýsingum um aldur menntun og fyrri
störf verða að hafa borist utanríkis-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 115, Reykja-
vík, fyrir 10. febrúar 1977.
Utanríkisráðuneytið
Útsala — Útsala
Mikil verðlækkuná
kvenskóm,
karlmannaskóm og
barnaskóm
Skóbúðin Snorrabraut 38
Sími 14190
MMBIAÐin
Útsölustaðir Dagblaðsins
á Neskaupstað:
Bókaverzlun Höskuldar Stefánssonar
Söluskáli Olís (BP)
Umboðsmaður Kolbrún Skarp-
héðinsdóttir, Miðstrœti 8. Sími 97-7496.
Togveiðiskipstjórí sem var við suðurströndina á
mánudagsnótt
Smáfiskurinn frekar
vandamál línubátanna
„Það var ekkert athugavert
við aflasamsetninguna hjá mér
á mánudagsnóttina og mér vit-
andi hafði ekki nema einn bát-
ur fengið óeðlilega smátt, en
það var ekki nema innan við
tonn,“ sagði skipstjórinn á
reykvískum togbát sem var
fyrrnefnda nótt að togveiðum á
svonefndum Mel, í línu milli
Vestmannaeyja og Stokkseyrar.
Hafði hann samband vegna
fréttar blaðsins í gær, þess efn-
is að nokkrir bátar hafi þar
innbyrt mikið af smáfiski, en
hent jafnvel yfir helmingi afl-
ans útbyrðis aftur, vegna þess
að þar var um undirmálsfisk að
ræða.
Kannaðist hann við nöfn bát-
anna sem honum voru nefndir
að verið hefðu á þessum slóðum
um nóttina, en sagði að hver
yrði að svara fyrir sig. Honum
væri ekki kunnugt um að nokk-
ur hefði farið innfyrir leyfileg
mörk, en að vísu hafi hann
haldið af þessum slóðum á und-
an hinum bátunum, enda búinn
að fá góðan afla.
Svæðið sem nefnt var í frétt-
inni að ætti að opna 15. febrúar,
nær alveg að landi og er nú opið
línubátum.
Að sögn skipstjórans er
smæsti fiskurinn yfirleitt nær
landi, svo þessi vandi væri ef til
vill frekar hjá þeim. Væri
reynslan sú, það sem af er ver-
tíðar, að línufiskur báta á SV-
horninu væru óvenju smár,
þótt aflamagnið væri hinsvegar
talsvert.
•G.S.
„Myndirnar eru teiknaðar á tímabilinu páskar 1975—jól 1976. Þær eru gerðar með jákvæðu hugarfari.
Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem óafvitandi hafa horft í augun á mér.... enda er sýningin tileinkuð
þeim.“
Þannig talað Egill Eðvarðsson um myndir sinar. Hann er fyrir miðju á myndinni.
„SPOn-PRÍS” MYNDIRNAR
KOSTA 60 ÞÓS. KALL
sem sýnir íSólon Islandus
— segir Egill Edvardsson
„Þetta er ákveðin sería teikni-
mynda um svipað erótískt tema,
og ég fjalla um persónulega hluti.
Eins konar lítil dagbók. Já, ég
teikna í stað þess að skrifa,“ sagði
Egill Eðvarðsson dagskrárgerðar-
maður hjá Sjónvarpinu, sem opn-
aði i gær sýningu í Galleri Sólon
íslandus í Aðalstræti 8.
Egill bjóst alls ekki við að selja
eina einustu mynd en verðið á
þeim er 60 þús. kr. „Ef mig vant-
aði peninga myndi mér sízt af öllu
detta í hug að selja myndir. Það
fer í taugarnar á mér að tala um
listamenn, spurningin er um
handverk, er það vel — eða illa —
gert?“
Agli finnst að sýningar séu oft
ekki rétt settar upp. Oft sýni þær
myndirnar ekki á réttan hátt.
„Þess vegna langaði mig til þess
að ramma myndirnar mínar inn
og sjá þær saman, þegar ég sá svo
þetta litla lokal í Aðalstrætinu,
varð það úr að ég hengdi þar upp
myndirnar."
Sýningin verður opin 2-6 nema
á sunnudögum 2-10. Henni lýkur
13. febrúar. EVI
ÍSAKSTURSKEPPNI
Á MELAVELLINUM
—nagladekk verða bönnuð
Bilaíþróttaklúbburinn innan
FÍB, h.vggst efna til ísaksturs-
keppni á Melavellinum þann 24.
feb. n.k. og hafa tilskilin leyfi
fengist til þess.
Keppnin verður með þeim
hætti að raðað verður upp keilum
sem bílarnir eiga að aka á milli og
felli þeir keilu. verða bílstjórarnj
ir annað hvort að stanza og rétta
þær við, eða ákveðinn sekúndu-
fjöldi verður dreginn af þeim fyr-
ir. Ekki er ákveðið hvort verður.
Þá verða þeir látnir aka inn í
reiti. bæði afturábak og áfram og
sigrar sá sem kemst skakkafalla-
minnst á skemmsta tímanum i
gegnum allar þroutirnar.
Ekki verður þarna um kapp-
akstur að ræða, því þrautirnar
verða með það skömmu millibili.
Auk þess er bannað að keppa á
negldum dekkjum, svo þetta verð-
ur hin mesta hæfnisprófun.
Selt verður inn á völlinn fyrir
áhorfendur, en komi einhverjir
peningar þannig inn, verður það
fyrsti vísir að sjóði klúbbsins, sem
vinnur nú margþáttuð undirbún-
ingsstörf fyrir sumarið. -G.S.
Bridgefélag
stofnað í Breiðholti
Bridgéfélag Breiðholts hefur
nú verið stofnað. Gerðist það á
fundi sem haldinn var að loknum
spilum, þriðjudaginn 25. janúar.
Var þar vel mætt og fimmtíu
manns skráðu sig sem stofnfé-
laga. Lög félagsins voru samþykkt
og stjórn kosin. Formaður er
Sigurjón Tryggvason en aðrir í
stjórn Leifur Karlsson, Ölafur
Tryggvason, Gunnar Mosty, Sig-
ríður Blöndal og Guðbjörg Jóns-
dóttir.
Bridgefélag Breiðholts mun í
vetur hafa spilakvöld á þriðju-
dagskvöldum í húsi Kjöts og Fisks
i Seljahverfi. Fyrsta keppni fé-
lagsins verður „Febrúartvímenn-
;ngur“, þ.e. fjórir eins kvölda
,tvímenningar“ í febrúarmánuði.
\llir eru velkomnir. Keppnis-
stjóri félagsins er Sigurjón
Tryggvason.