Dagblaðið - 03.02.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1977.
REUTER v
HELGI
PETURSSON
Góður vetur í Alaska:
Skógarbimir
erukomnir
iírhíðunum
Veðrið í Bandaríkjum
Norður-Ameríku hefur sín
áhrif á fleira en mannfólkið
eitt. Nú eru það skógar-
birnir sem eiga í erfiðleik-
um.
Innanrikisráðuneyti
Bandaríkjanna segir að í
Alaska, þar sem veturinn
hefur verið ákaflega góður,
séu skógarbirnirnir komnir
úr vetrarhíðum sínum mörg-
um mánuðum fyrr en venju-
lega. Þeir ráfa nú um glor-
hungraðir og leita sér að æti.
Hins vegar er lítið um
bjarnakrásir á þessum árs-
tíma og óttast líffræðingar
að birnirnir muni brátt
ráðast á þorp til að afla mat-
fanga.
2milljaröar
sjáMoskvu-
Ólympíuleik-
anaáskjánum
Sovétmenn gera ráð fyrir
því að alls muni tveir
milljaróar jarðarbúa fvlgjast
með Olvmpíuleikunum 1980 í
sjónvarpi. Sjónvarpað verður
frá leikunum í lit á 18 rásum í
einu. Bandaríska sjónvarps-
fyrirtækið NBC hefur ke.vpt
réttinn til að dreifa efni frá
Olympíuleikunum á Vestur-
löndum.
Til samanburðar.má geta þess
að talið er að um 1.5 milljaróar
manna hafi fylgzt nieð
Montreal-Olympíuleikunum í
gegnum sjónvarp.
Bandaríkin:
HVELFING YFIR
AKRÓPÓLISHÆÐ?
Það er álit eins fyrrum borg-
arstjóra í Aþenu að réttast væri
að reisa eina gríðarmikla
hvelfingu yfir hin 2400 ára
gömlu hof á Akrópolishæð í
borginni til þess að varna þvi að
þau verði mengunarskemmd-
um að bráð.
George Plytas, sem nú er for-
maður Hinnar nýju hreyfingar
Aþeninga. sagði við fréttamenn
fyrir skömmu að hópur sviss-
neskra vísindamanna hefði
kannað verksummerki og
möguleikana á því að varna
frekari skemmdum á hofunum
og að það væri tillaga þeirra að
reisa gfíðarstóra hvelfingu úr
gleri, yfir alla Akrópólishæð-
ina.
„Það myndi ekki myndast
gufa inni í hvelfingunni og eng-
in efni myndu festast við hana
svo hún yrði ekki skítug,“ sagði
Playtas. Hann sagði ennfremur
að hvelfingin myndi kosta um
40 milljónir Bandaríkjadala.
Kuldakastið í Bandaríkjun-
um hefur leitt af sér margs
konar hörmungar. Vegna gas-
skorts hefur orðið að lækka
húshitann niður í tíu gráður á
celsíus sums staðar. Fólk
verður að vera sérstaklega
hlýlega búið og hér sjáum við
Karen Klafke gangbrautavörð í
Milwaukee í Visconsin. Til að
verjast nístandi kuldanum býr
hún sig vel og líkist einna helzt
palestínskum skæruliða.
Fornir fjendur
leita friðaríns saman
Forsetar Sýrlands og Líbanons
þinguðu Í5 klukkustundir ígær
Ráðamenn í Sýrlandi og
Libanon hafa sætzt á að leita nú
sameiginlega el'tir því að halda
friðinn í suðurhluta Líbanon.
Þessi árangur náðist eftir fimm
klukkustunda langan fund for-
seta landanna, þeirra Hafez al-
Assad og Elias Sarkis.
Sýrlenzkt herlið fór inn í
borgina Nabatiyeh í síðustu
viku. Borgin er aðeins um 11
kílómetra frá landamærum
ríkjanna. — ísraelsmann hafa
nú farið fram á að heriið þetta
hypji sig í burtu hið bráðasta.
ÞJOÐVERJAR SELJA
TYRKJUM 0G
INDÓNESUM VOPN
Vestur-þýzka stjórnin hefur til-
kynnt að hún muni selja Tyrkjum
skriðdreka, sprengjuvörpur og
fleiri vígvélar fyrir 1.2 billjónir
þýzkra marka sem er nálægt 99
milljörðum íslenzkra króna að
verðmæti. Þá hefur verið samið
um sölu á tveimur kafbátum til
Indónesíu.
Þessir vopnasölusamningar
fela í sér að ef kaupendurnir
standa ekki við greiðslur sínar er
v-þýzka stjórnin skuldbundin -til
að greiða framleiðendunum 90%
af söluverðinu.
Stefna stjórnarinnar er sú að
selja ekki vopn til landa þar sem
styrjaldarhætta ríkir. Vopnasalan
til Tyrklands er hins vegar rétt-
lætt með því að landið sé mjög
mikilvægt fyrir varnir á Vestur-
löndum.
Nú er heimilt að veita
Heath spáir breyingum í
bandarískum stjómmálum
—forsetinn verður sifellt
„Við eigum ekki eftir að
njóta þess munaðar að sjá
Bandaríkjamenn beita valdi
sínu á óeirðasvæðum og af því
leiðir að við eigum ekki eftir að
njóta þess munaðar að kenna
þeim um allt sem aflaga fer á
þeim stöðum," sagði Edward
Heath fyrrum forsætisráð-
herra Bretlands í ræðu í gær-
kvöld.
Ræðu þessa hélt Heath á
æskulýðsráðstefnu í London.
Hann spáði því að miklar breyt-
ingar ættu sér nú stað á stjórn-
málasviðinu. Hann taldi að völd
forsetaembættisins færu nú
minnkandi en þingið sækti sí-
fellt í sig veðrið.
Helztu breytimgar vegna
þessa sagði Heath verða þær að
nú gætu forsetarnir ekki tekið
þátt í vonlausu valdatafli hér
og þar í heiminum, eins og
gerðist í Kóreu og Indókína á
sínum tíma. „Þingið mun ekki
leyfa forsetunum slíkt,“ sagði
hann.
Edward Heath, fyrrum for-
sætisráðherra Bretlands, er nú
óbreyttur þingmaður flokks
síns, íhaldsfiokksins.
VERÐUR
gasi milli ríkjanna
Carter Bandaríkjaforseti
undirritaði í nótt ný lög vegna
neyðarástands i nokkrum ríkj-
um Bandaríkjanna. Þau
heimila að gas til upphitunar
verði leitt frá ríkjum, sem nóg
gas hafa. til þeirra þar sem
skortur ríkir.
Skömmu eftir undirritunina
bárust tvö tilboð um eas —
BYGGÐ
annað frá Jose Lopez Portillo
forseta Mexikó og hitt frá ríkis-
stjóra Kaliforníu, Edmund
Brown. Öheimilt hefði verið að
leiða gas frá Kaliforníu út fyrir
ríkismörkin, hefðu lögin ekki
verið undirrituð fyrst.
Þessi nýju neyðarlög fóru í
gegnum Bandaríkjaþing á einni
viku. Jimmy Carter átti samtal
við þingmennina, sem áttu
frumkvæðið að þessu frum-
varpi, og sagði við það tækifæri
að Bandaríkjamenn horfðust
nú í augu við orkukreppu. Hún
væri þó ekki til komin vegna
orkuskorts heldur vegna þess
hve erfitt væri að dreifa
orkunni til neyðarsvæða.
valdaminni
Erlendar
fréttir