Dagblaðið - 03.02.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1977.
105 DAGA SAKLAUSIR
í GÆZLUVARÐHALPINU
9
N
„Rannsóknin hefur jöfn-
um höndum beinzt að því
hvort þeir menn, sem sátu
í gœzluvarðhaldi, séu sak-
lausir. Við teljum að svo
sé,“ sagði Örn Höskulds-
son, rannsóknardómari í
Geirinnsmálinu, í gœrdag.
Um þetta atriði hafði
Halldór Þorbjörnsson yfir-
sakadómari þetta að
segja: „Á þeim mönnum
hvílir enginn grunur.“
Hér er að sjálfsögðu átt
HINIR
Guðjón Skarphéðinsson, fæddur 19. júní 1943.
Hann varð fyrstur til að stöðva Geirfinn, þegar
hann vildi hverfa af fundinum í Dráttarbraut-
inni 19. nóvember 1974, og hóf þannig átökin.
sævar Marinó Ciesieiski, fæddur 6. júlí 1955,
óformiegur leiðtogi hópsins. Hann greip lurk-
inn og barði Geirfinn með honum i fætur og
maga á meðan Kristján hélt honum hálstaki.
Kristján Viðar Viðarsson, fæddur 21. apríl 1955.
„Tilviljun réð því hvort menn komust líffs af úr
slagsmálum við hann,“ segir félagi hans, Sævar.
Erla Boiladóttir, fædd 19. júlí 1955, unnusta
Sævars og barnsmóðir. Hún stóð álengdar og
fyigdist með átökunum við Geirfinn en tók
tveimur dögum síðar þátt i að flytja iík hans frá
Grettisgötu 82 og grafa það í Rauðhólum.
,STÓRHÆTTULEGUR FRÉTT AFLUTNINGUR'
— sagði Örn Höskuldsson rannsóknardómari
„Stöðugar fréttir í blöðum af
gangi rannsóknarinnar voru
mjög til trafala og raunar stór-
hættulegar," sagði Örn
Höskuldsson rannsóknardóm-
ari á fundinum með frétta-
mönnum í gær.
Fóru Örn og Karl Schutz
hörðum orðum um fréttaflutn-
ing af málinu og töldu blöðin
hafa sýnt afar lítinn samstarfs-
vilja. Er ekki loku fyrir það
skotið að sú skoðun sé gagn-
kvænt um afstöðu sakadóms-
manna gagnvart blöðunum.
Kváðu þeir gæzlufangana
hafa skýrt frá því að það hefði
mjög auðveldað þeim að dyljast
i upphafi hversu nákvæmlega
var skýrt frá öllum gangi rann-
sóknarinnar (í Keflavík) í fjöl-
miðlum og raunar allt fram í
ágúst á siðasta ári.
Nefndi Örn sem dæmi um
„stórhættulegar" fréttir frá-
sögn Vísis af því sl. haust að
Kristján Viðar Viðarsson hefði
skýrt svo frá við yfirheyrslur að
Geirfinnur hefði fallið aftur
f.vrir sig fram af kletti við
Dráttarbrautina í Keflavík“og
dauði hans því verið slys. v,,Ef
Guðjón Skarphéðinsson, sem þá
var enn laus, hefði lesið þessa
frétt hefði hann getað borið hið
sama fyrir rétti og þá væri
sannleikurinn ef til vill ekki
kominn í ljós,“ sagði Örn.
„Það var einnig mjög ergi-
legt að vita til þess að upp-
lýsingar lækju héðan út og til
fjölmiðla," sagði hann. „Þið,
sem eruð að berjast á móti spill-
ingu, megið vel vita að ég tel
þetta spillingu; lögreglumenn
hafa brotið trúnað í opinberu
starfi og réttargæzlumenn
einnig. Það er spilling,“ sagði
Örn Höskuldsson.
-ÓV/BS
við þá Einar Bollason
kennara, Magnús Leó-
poldsson framkvœmda-
stjóra, Sigurbjörn Eiríksson
veitingamann og Valdimar
Olsen verzlunarmann.
Örn Höskuldsson greindi
blaðamönnum frá því að
sakborningarnir hefðu
játað við yfirheyrslur að
hafa haft um það saman-
tekin ráð að benda á
þessa fjóra menn en þœr
ábendingar leiddu síðan til
gœzluvarðhaldsúrskurðar
þessara fjögurra manna.
„Þetta er sjálfstœtt brot,“
sagði Örn. „Alvarlegt
brot.“
Dagblaðið hafði í gœr-
kvöldi tal af þrem mann-
anna sem saklausir urðu
að hlíta gœzluvarðhaldi í
105 daga hver. í Sigur-
björn Eiríksson, veitinga-
mann og bónda, sem sat í
gœzluvarðhaldi í 90 daga,
náðist ekki þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
-BS/ÓV
„Hvernig á aö bæta
fyrir mannorðsmorð?”
—spyr Einar Bollason, saklaus
„Jú, þú getur rétt ímyndað þér
hvort ég er ekki ánægður,** svar-
aði Einar Bollason spurningu DB
i gærkvöld um viðbrögð hans við
því að hann hefur nú verið
hreinsaður af öllum grun um
aðild að hvarfi Geirfinns Einars-
sonar.
„Sá langi tími sem liðið hefur
með þetta allt í lausu lofti hefur
að sjálfsögðu farið afskaplega í
taugarnar á manni," sagði Einar.
„Mér finnst satt að segja heldur
litið tillit hafa verið tekið til þess
að fjölskyldur okkar hafa mátt
þjást allan þennan tíma.
Það er rétt núna að maður er að
byrja að átta sig almennilega á
þessu, að þetta skuli loks vera
búið,“ sagði Einar enn fremur.
„Nú vil ég sjá hvernig þessir
menn ætla að fara að því að bæta
fyrir þetta á einhvern hátt; ég á
ekki annað orð en mannorðsmorð
yfir þetta.“
Um hugsanlegar skaðabóta-
kröfur á hendur ríkisvaldi og ein-
staklingum, sem fjölluðu opinber-
lega um meintan hlut Einars í
hvarfi Geirfinns á meðan hann
var enn undir grun, sagði Einar
að hann hefði lítinn áhuga á að
fara að draga fjölskyldu sína inn í
margra ára málavafstur, enda
teldi hanp skyldu ríkisvaldsins að
koma í veg fyrir slík málaferli.
„Því er ekki að neita," sagði
Einar, ,,að maður hefur lært ýmis-
legt af þessari hræðilegu reynslu
Fyrst og fremst er það hversu
marga afskaplega góða og sterka
félaga maður á sem hafa staðið
með manni í gegnum súrt og sætt,
einkum félagar mínir í KR og
samkennarar í Flensborg. Ég get
glaðzt innilega yfir þvi.“
-ÓV/BS
„Hvaö segja sjálfskip-
uðu dómararnir núna?v
—spyr Magnus Leöpoldsson, saklaus
„Nei, ég get ekki sagt ao ég se
ánægður en þetta er stórbót,"
sagði Magnús Leópoldsson þegar
fréttamaður DB náði tali af
honum í gærkvöld. Kvaðst
Magnús gjarnan hafa viljað fá af-
dráttarlausari yfirlýsingu um sak-
leysi sitt.
„Mér finnst ekki beinlínis
ástæða til að halda veizlu þótt
minn þáttur og hinna þriggja sé
uppkláraður," sagði Magnús.
„Þetta er natturlega viss áfangi,
maður er hressari en áður en þó
hryggur líka. Þetta ógæfusama
fólk á líka sína aðstandendur og
þá er ekki nóg að hugsa bara um
sjálfan sig.“
Magnús kvaðst ætla að fróðlegt
væri að vita hvað „allir þessir
sjálfskipuðu dómarar** héldu nú
um málið, þeir sem „voru virk-
astir á meðan ég var í tukthús-
inu,“ eins og hann .orðaði það.
-ÓV/BS
„Þungu fargi hefur
verið af mér létt"
— segir Valdimar Olsen, saklaus
„Það gefur auga leið að þungu
fargi er at manni létt,“ sagði
Valdimar Olsen, einn fjórmenn-
inganna sem sátu í gæzluvarð-
haldi í 105 daga vegna Geirfinns-
málsins, í samtali við DB í gær-
kvöldi. Valdimar hefur nú verið
hreinsaður af öllum grun um
aðild að málinu ásamt hinurá
þremur.
„Annars getur maður lítið um
þetta sagt að svo stöddu,** sagði
Valdimar. „Þetta hefur náttúr-
lega breytt lifi manns ofboðslega
en það er erfitt að henda reiður á
i hverju það er fólgið. Ég hef
reynt eftir beztu getu að láta
þetta ekki hafa áhrif á mig og geri
mér enn ekki fulla grein fyrir
hvaða afleiðingar*þetta kann að
hafa.“
Valdimar vísaði öllum spurn-
ingum um hugsanlegar skaða-
bótakröfur til lögfræðings síns en
taldi það þó „óaðskiljanlegan
hluta af öllu saman“ að gera
slíkar kröfur.
-ÓV/BS