Dagblaðið - 03.02.1977, Blaðsíða 23
23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 1977.
(*
Utvarp
Sjónvarp
i
lítvarp f kvöld kl. 19,40: Leikrit vikunnar:
Bandarískt verðlaunaleikrit
um uppgjör fjölskyldunnar
Eitt af leikritunum eftir banda-
riska höfunda, sem ráðEert er að
flytja í útvarpinu á árinu, verður
á dagskránni í kvöld kl. 19.40.
Þetta er leikritið Engill horfðu
heim, sem Ketty Frings samdi
eftir samnefndri skáldsögu eftir
Thomas Wolfe. Jónas Kristjáns-
son gerði þýðinguna en leikstjóri
er Baldvin Halldórsson.
Kóbert Arnfinnsson
Jón Sigurbjörnsson
Gunnar Eyjólfsson
mmuuim
frjálst, úháð dagblað
Róbert Arnfinnsson, Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, Jón Sigur-
björnsson og Gunnar Eyjólfsson
fara með aðalhlutverkin.
Sögusviðið er í bænum Alta-
mont i Norður Karolínu í Banda-
ríkjunum haustið 1916. Segir frá
Gant-fjöiskyldunni. Heimilis-
faðirinn Oliver er drykkfelldur
steinhöggvari og hálfgert svaka-
menni. Hann er kvæntur Elisu
sem er af skozkum uppruna og
eiga þau þrjá syni og eina gifta
dóttur. Þau hjónin reka gisti-
heimili og leigjendur eru fólk af
ýmsu tagi. Leikurinn er mjög
áhrifamikill og lýsir uppgjöri fjöl-
skyldunnar við sjálfa sig, lífið og
umhverfið. Talið er að höfundur
sögunnar, Thomas Wolfe. hafi í
rauninni verið að lýsa kafla úr
sinni eigin ævi.
Wolfe fæddist árið 1900 en lézt
ungur að aldri árið 1938. Hann
var af mörgum talinn einhver
bezti rithöfundur Bandaríkjanna.
Fyrsta skáldsaga hans, sem var
Engill horfðu heim, kom út árið
1929.Lvikrilið var samið tuttugu
árum eftir lát höfundar af Ketty
Frings. Hún starfaði í Hollywood
og skrifaði kvikmyndahandrit
þar, m.a. skrifaði hún handrit
kvikmyndarinnar „Come back,
little Sheba“ eftir William Inge.
Sú kvikmynd var sýnd í íslenzka
sjónvarpinu á síðasta ári og fóru
þau Burt Lancaster og Sheila
Booth með aðalhlutverkin.
Keity Frings hefur einnig sjálf
samið leikrit en fyrir Engill
horfðu heim. fckk hún Pulitzer-
verðlaunin.
Leikrit þetta var sýnt í Þjóð-
leikhúsinu veturinn 1960-61 við
miklar vinsældir. Leikendur voru
þeir sömu og i utvarpsleikritinu,
sem áður var flutt f útvarpi árið
1961.
Alls urðu þrjátiu ög tvær
sýningar á verkinu í Þjóðleik-
húsinu og leikhúsgestir urðu
11.053 talsins.
Flutningstími leikritsins er
tvær klukkustundir og tuttugu
mínútur.
-A.Bj.
»
Baldvin Halldórsson, leikstjóri.
Veitum 10-20% afslátt
oggóða greiðsluskilmála
út þessa viku.
Kanínupelsar
Kiðlingapelsar
Úlfapelsar (stuttir)
Mokkakápur
ST0RK0STLEGT TÆKIFÆRI