Dagblaðið - 03.02.1977, Qupperneq 24
f ■ ■' "
Mál vegna f urðulegrar íbúðasölu:
Seldi íbúð án þess að
verða löglegur eigandi
Ibúðareigandi einn að
Hamraborg 8 í Kópavogi
stendur nú frammi fyrir hótun
frá Veðdeild Landsbanka
Islands um sölu á íbúð er hann
keypti um mánaðamótin
maí/júní 1976. Þá er kaupin
fóru fram var gjaldfallin af-
borgun á láni með veði í
ibúðinni hjá Veðdeildinni. I
sölusamningi er skýrt tekið
fram að seljandi íbúðarinnar
skuli greiða þessa skuld við
Veðdeildina. Það hefur hann
ekki gert og nú á að ganga að
núverandi eiganda. Málið hefur
verið fengið hæstaréttarlög-
manni til meðferðar.
Seljandi þessarar íbúðar er
Guðjón Styrkársson og skrifar
hann undir samninginn sem
gerður var þá er kaupin fóru
fram sem slíkur.
Hinn nýi íbúðareigandi sagði
í viðtali við DB að Guðjón hefði
engu anzað kröfunni frá
Veðdeildinni og vísað til Eigna-
markaðarins (fasteignasöl-
unnar sem sá um sölu íbúðar-
innar j.Þessi fasteignasala var
eitt sinii í eigu Guðjóns
Styrkárssonar, en síðar seldi
hann hana Kristjáni Knútssyni.
Þegar nýi íbúðareigandinn
sneri sér til Eignamarkaðarins
vísa forráðamenn fasteigna-
sölunnar málinu til Guöjóns!!
Núverandi Ibúðareigandi
kveðst aldrei hafa séð skjöl er
sýndu að Guðjón Styrkársson
væri eigandi íbúðarinnar sem
hann seldi. Telur hann að
Guðjón hafi keypt íbúðina í
byggingu og fengið húsnæðis-
málastjórnarlán út á hana.
Síðan eru það Borgir s.f. sem
afsala núverandi eiganda
íbúðina framhjá Guðjóni
Styrkárssyni seljanda. Guðjón
selur því íbúðina en virðist
aldrei og hvergi koma fram sem
eigandi hennar. Nú stendur
núverandi íbúðareigandi
ábyrgur fyrir vanskilum
seljandans.
Ibúðareigandinn kvaðst
nundu höfða endurkröfumál á
hendur seljanda íbúðarinnar að
Hamraborg 8. Kveðst hann hafa
haft af því spurnir að slík mál
hafi verið höfuð gegn Guðjóni
og hann hafi haldið uppi mála-
myndavörnum og tafið mál í
allt að 2 ár. Þá hafi venjulegast
dómur fallið honum í óhag og
hann þá greitt vanskila-
skuldina sem verðbólgu vegna
verður tiltölulega lítil upphæð.
Lögmaður íbúðareiganda er
Jón Oddsson hrl.
-ASt.
KORKURINN VAR ORÐINN
„ÍSLENDINGSLEGUR”
Þegar Korkurinn,
Christopher Barbar Smith fannst
í fyrrinótt, kom f ljós að hann
hafði breytzt verulega í útliti.
Skegg hans, svart og mikið, var
nú horfið og hár hans var orðið
ljóst eins og algengt er meðal
íslendinga. Eflaust hefur Smith
og vitorðsmenn hans talið að sá
háralitur mundi henta betur til að
leynast hér á landi og hann líta
„Islendingslegar“ út en áður.
Tveir menn eru nú í gæzlu í
fangelsinu á Keflavíkurflugvelli
grunaðir um að hafa verið f
vitorði með Korknum.
Gæzla á eiturlyfjasmyglaranum
hefur nú verið hert, að sögn tals-
manna Varnarliðsins og væntan-
lega mun hann ekki fá að horfa á
kvikmyndir á göngunum eins og
þegar hann slapp og þá verður
hann væntanlega ekki heldur
með hengilás í vasanum „af
tilviljun“ eins og gerðist á
dögunum. Bfður Smiths nú her-
dómstóll og væntanlega fangelsis-
vist ytra.
-JBP-
Á stærri myndinni sýnir
Howard Matson, blaðafulltrúi
Varnarliðsins, staðinn þar sem
Smith fannst undir skrifborðinu.
Litla myndín var tekin af Korkin-
um skömmu síðar af herlögregl-
unni. Var hann þá orðinn ljós-
hærður og skegglaus, eins og sjá
má. (Ljósmyndir: Arni Páll og
. herlögreglan).
Þriðja
morðið
ekki til
rannsóknar
Örn Höskuldsson neitaði því á
fréttamannafundinum í gær að
verið væri að rannsaka hugsan-
legt morð Kristjáns Viðars
Viðarssonar á Færeyingi sem tal-
inn er hafa horfið hér á landi
seinni hluta árs 1974.
„Það er ekki verið að rannsaka
þefla mál hér. Við erum að tala
um Geirfinnsmálið," sagði Örn.
Fréttamenn spurðu hann hvort
gæzlufangarnir hefðu verið
spurðir um afdrif umrædds
Færeyings.
„Nei,“ svaraði Örn.
Hafa þá komið fram upplýsing-
ar af hálfu fanganna?
örn brosti tvíræðu brosi og
kvaðst ekki vilja ræða málið.
-ÓV/BS.
CORTINA-BILL STENDUR
ÓBÆTTUR í GEYMSLUNNI
— lenti íárekstri við Mustang sem var með
stolin númer og stolin skoðunarmerki
Útlit er fyrir að maður, sem
saklaus lenti í árekstri og það
svo harkalegum að bíll hans
gereyðilagðist, verði að bíða til
vors eftir því að úr þvf verði
skorið hvort hann fær bfl sinn
bættan eða ekki. Bíllinn sem
eyðileggingunni olli var ekki til
í kerfinu. A honum voru númer
sem hvergi eru til á skrá og
enginn veit enn hvernig þau
eru á bílinn kominn. Helzt er
hallazt að þvf að númera-
plöturnar séu stoinar, svo og
sko^unarmiði frá 1976 sem var
á framrúðu bílsins.
DB skýrði frá þéssu máli
fyrir tveimur vikum. Síðan
hefur ekkert gerzt í málinu.
Þarna var um Mustang-bifreið
að ræða. A númeraplötum var
R-23587. Segir ökumaður hans
að bíllinn hafi lent á klaka-
oakKa á gotunni snúizt og kast-
ast vfir á hinn götuhelminginn.
Þar lenti hann svo harkalega á
Cortinubifreið að hún er ger-
ónýt.
í Mustang-bílnum voru tveir
menn. Hafa þeir báðir verið
yfirheyrðir en þær yfirheyrzlur
hafa fátt leitt f ljós. Þeim ber
þó saman um að eigandi bflsins
sé sjómaður sem nú er á loðnu-
veiðiskipi fyrir austan. Hafi
þeir ekið honum til skips dag-
ínn sem onappio var og verið að
koma frá því erindi. Bað sjó-
maourinn þann er bílnum ók að
sjá um hann fyrir sig meðan
hann væri fjarverandi. Um
númerin segjast þeir ekkert
vita né. það að billinn væri
hvergi i^tryggingu.
Cortina-bifreiðin sem
eyðilagðist var tryggð hjá Sam-
vinnuiryggingum, svo og sá
bfll, sém númeraplöturnar R-
23587 voru síðast á. Var það
gamall Trabant bfll.
Gunnar Sigurðsson deildar-
stjóri bifreiðadeildar Sam-
vinnutrygginga kvaðst ekki
hafa heyrt um þetta mál. Hann
kvað númerastuld ekki nýjan
af nálinni, ef um slikt væri að
ræða i þessu tilviki. Um bóta-
skyldu kvaðst Gunnar álíta f
fljótu bragði að það félag sem
síðast hafði MUstangbifreiðina
i tryggingu væri bótaskylt, en
ekki það félag sem sfðast hefði
haft bifreiðina R-23587 f
tryggingu.
Engar tilraunir munu hafa
verið gerðar til að ná f umrædd-
an sjómann og gæti málið þess
vegna beðið til vors.
-ASt.
fijálst,úháð da§Mað
FIMMTUDAGUR 3. FEBR, 1977
Leikiðvið
dauðann á
Elliðaánum
EUiðaárnar eru nú uppbólgnar
og stórhættulegar því að börn og
unglingar freistast til að vera á
fsnum. Þannig hafa t.d. börn f
Afbæjarhverfi fengizt við þann
stórhættulega leik að vera á hjól-
um milli vaka á ísnum gegnt
Fylkisvelli. Þarf ekki að leiða
IfKum að því hvernig fara munjii
ef Unglingur á hjóli félli í vök þvl
undir er víða straumhart vegna
rennslistruflana annars staðar.
Hefur lögreglan haft talsvert
fyrir því að afsfýra hættu vegna
þessa stórhættulega leiks.
-ASt.
„Skothvell-
ir” frá sand-
dæluskipi
Alloft hefur verið undan
því kvartað að skothvellir
heyrðust við Elliðaárvog, en
aldrei hefpr lögreglulið, er
kvartað hefur veríð til,
fundið skotmann eða skot-
mennina. Nú er komið f ljós
að þegar landað er úr sand-
dæluskipinu við Ártúns-
höfða framkallar grjót, sem í
sandinum er, hávaða í lík-
ingu við skothvelli í Voga-
hverfi þá er grjótið kastast
eftir dælurörinu frá skipi til
lands. Kannski er þarna
lausnin fundin á öllum skot-
hvellunum. Slíkar kvartanir
bárust f gær og þá var skipið
einmitt að landa.
Með stolna
dýrgripi í
sængurveri
Áræðii þeirra sem fara
ruplandi um borg og bí eru
oft lítil takmörk sett. Einn
slíkur næturhrafn var á férð
á Laufásvegi í fýrrinótt og
komst þar inn í fbúðarhús án
þess að til haris heyrðíst eða
sæist. Þar hóf hann iðju;
sfna, fann sængurver og
byrjaði að safna í það
ýmsum hlutum, sem hann
taldi verðmæta.
En hann fór ekki nógu
varlega og einn fbúi hússins
• vaknaði og kom hann
þjófnum í opna skjöldu.
Greip hann til fótanna með
sængurverið í fanginu og
fbúinn á eftir honum. Þjóf-
urinn sá að sængurverið
mundi hefta för hans og tók
hann þann kostinn að losa
sig við það os komst þá
. undan — þýfislaus.
-ASt.
Lágtgeta
sumir lagzt
Það tók tvo daga að hafa
upp á ungum manni sem
lagðist svo lágt að hrifsa
eina áfengisflösku f bréf-
poka af gömium manni á
Lindargötu. Ahorfandi að
ráninu var óeinkennis-
klæddur lögreglumaður sem
veitti þjófnum eftirför og sá
númer bfls hans. Nú er þjóf-
urinnJundinn.