Dagblaðið - 02.03.1977, Side 2

Dagblaðið - 02.03.1977, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977. Styðjum við bakið á unglingunum - íbaráttunni gegn tóbaksreykingum K.A.T. skrifar: Mikið finnst mér kaupmenn sem fylla búöir sínar af tóbaks- auglýsingum vera litlir karlar. Á meðan krakkarnir i næsta skóla eru að berjast gegn reyk- ingum geta þeir fengið af sér að skreyta búðir sínar með þessum ósmekklegu skiltum. Mér er sama þótt verölaun séu i boði fyrir beztar auglýsingar. Þeir ættu að sjá sóma sinn í því að taka ekki þátt í þessari vitleysu. Er ekki alltaf verið að segja að við fullorðna fólkið eigum að vera börnunum til fyrir- myndar? Nú er þessu óvart snúið við. Krakkarnir eru til fyrirmyndar fyrir okkur full- orðna fólkið. Þeir eru aldeilis búnir að snúa dæminu við. Við eigum að sjá sóma okkar í því að styðja við bakið á unga fólkinu sem sér hversu mikill skaðvaldur tóbakið er. Kaup- menn sem aðrir mega ekki láta sitt eftir liggja. Þessi verzlun er ein af mörgum sem hafa tóbaksauglýsingar i gluggum. Nú hafa skólabörn hafið baráttu gegn þessum augiýsingum og víóa tekið þær niður. ALÞINGISMENN GETA EKKIVERIÐ BARNFÓSTRA FYRIR ALLA ÞJÓÐINA — þess vegna þjóðaratkvæði um bjórinn Nú undanfarið hefur mátt lesa allmikið um bjórmálið hans Sólness í blöðum borgar- innar, ýmist með eða móti því væntanlega frumvarpi, og hefur borið sýnu meir á bann- mönnum heldur en hinum. Ýmsar tilvitnanir um reynslu annarra þjóða hafa sett sinn svip á þessi skrif og að sjálf- sögðu mest frá hinum Norður- löndunum, sérstaklega Svíþjóð, sem sagt er að hafi slæma reynslu af áfengisþambi þar í landi, sérstaklega eftir að hið svokallaða ..milliöl" kom til sög- un nar. Svíar hyggjast nú hætta þess- ari framleiðslu og setja aftur bann á „milliölið". Svíar hafa um alllangt árabil búið við alls konar ófrelsi í áfengismálum sínum, svo sem skömmtun, síðan nokkurt frelsi o.s.frv., svo ekki hefir verið um samfellda reynslu þeirra að ræða í marga áratugi. Þegar ég kom til Svíþjóðar fyrst árið 1929, þá frá Þýzkalandi, og ætlaði að fá mér bjórkrús fékkst þessi sjálfsagði hlutur ekki nema þá að fá sér heitan mat um leið. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar eins og sagt er, 48 ár liðin og ekki virðast mér Svíar hafa lært að umgangast þessa sjálfsögðu neyzluvöru enn. Við íslendingar höfum heldur ekki farið varhluta af ýmsum mjög svo klaufalegum ráðstöfunum í áfengismálum okkar allt frá því aðflutnings- bann tók gildi árið 1915. Strax árið 1917 er farið að bera á því og harðar deilur hafnar í blöðum á milli and- banninga og bannmanna um bannlögin sem þá höfðu verið í gildi hátt á þriðja ár. Andbann- inga-félagið (þá) gengst fyrir áskorunarsöfnun um „að bann- lögunum verði sem allra fyrst létt af og (þjóðin) snúi sér að því að finna aðrar leiðir og henni samboðnari sem frjálsri þjóð til þess að koma áfengis- málinu í sæmilegt horf“. Og í áskoruninni segir meðal annars: „Það er nú orðið full- ljóst af hálfs þriðja árs reynslu aö lögin um aðflutningsbann á áfengi koma alls ekki að þeim notum sem til var ætlazt af frumkvöðlum þeirra og fylgis- mönnum." Og enn segir: „þótt áfengisnautn hafi ef til vill minnkað eitthvað til sveita, en þar var drykkjuskapur þegar að mestu leyti úr sögunni, þá hefur hann ekki minnkað í kaupstöðum og sjávarþorpum, en hefur aftur á móti orðið miklu skaðlegri heilsu manna vegna neyzlu allskonar ódrykkja, sem allir vita, að margir leggja sér til munns, þegar hörgull verður á ómeng- uðu áfengi, og allt eru það sterkustu brenndir drykkir, sem til landsins flytjast nú...“ Bannmenn hófu þegar að mótmæla kenningum þeim sem haldið er fram (þá) i áskorun andbanningafélagsins. Gerðu þeir m.a. harða hríð að dómur- um vió landsyfirréttinn, en þeir höfðu allir undirritað fyrr- nefnda áskorun. Þannig rifust menn þá og menn rífast ennþá um þessi mál og stundum er ekki gætt sem skyldi hvort um stað- reyndir og sannleika er að ræða. Um vínmenningu og hvort hægt sé að bæta hana á meðal íslendinga skrifar dr. Bjarni Þjóðleifsson og sýnist mér hann skrifa hóflega og ekki við- hafa nokkurn æsing í málflutn- ingi sínum. Hann birtir með grein sinni tölur um áfengis- neyzlu nokkurra þjóða (7) mælt í dagsneyzlu á mann. Við tslendingar erum næst- neðstir á þessum lista, næst á undan Tyrklandi sem rekur lestina. Við íslendingar neytum 7,9 ml (millilítra) á dag á mann en af því magni er 86% brennd vín. Frakkland er hæst, þar er neyzlan 46 ml á mann á dag af hreinum vínanda en ekki nema 14% af þvi magni er neyzla brenndra vína. Þetta talar sínu máli. Allt áfengi hefur örvandi áhrif á líkama mannsins, segir doktorinn, en hófleg neyzla sér- staklega veikra vína hefur oft á tíðum róandi áhrif á manneskj- una (ekki má vist segja mann- inn). 86% af neyzlu íslendinga er neyzla brenndra vína sem við í daglegu tali köllum brennivín. Af neyzlu brennivíns verða allir vitlausir, og það þó í litlum mæli sé. Af neyzlu bjórs, miiiibjórs skulum við segja, verða menn latir, syfjaðir og rólegir. Hvort er nú betra, les- endur góðir, lútsterkt brenni- vín eða róandi bjór, sem auk þess bætir meltinguna? Þér skuluð sjálf dæma. Drykkjuskapur unglinga hér á landi er vissulega mikið vandamál og það er sorglegt að sjá myndarleg ungmenni slagsa ofurölvi um göturnar með brennivínsflösku í hendinni. Þessi ungmenni hafa ekki lært þessa drykkjusiði af BJÖRNUM því bjór er ekki seldur í landinu. Þau hafa iært að drekka lútsterkt brennivín sem er mest örvandi allra drykkja og framkallar oft of- beldishneigð og rudda- mennsku. ALÞINGISMENN, sýnið að þið hafið þor til þess, eins og dómarar landsyfirréttarins forðum, að taka jákvæða af- stöðu til hins væntanlega bjór- frumvarps Jóns Sólness. Ef þið, þingmenn okkar, ÞORIÐ ekki að bera ábyrgð á þessu sjálfsagða máli þá skuluð þið með því að samþykkja þjóðaratkvæðagreiðsiu losa ykkur við alia ábyrgð. Þið getið hvort sem er ekki verið barn- fóstra fyrir alla þjóðina. Mér datt þetta (svona) í hug. SIGGI flug. 7877-8083. Raddir lesenda V Tölvur, Um leið og sagt var frá enda- lokum hins svokallaða Geir- finnsmáls var tilkynnt að „tölva" hefði mjög svo auð- veldað rannsókn málsins eftir aö búið var að mata hana á alls konar upplýsingum. Þótti sumum mönnum nóg um og var mál þetta tekið upp á þingi af einum þingmanni Alþýðu- bandalagsins sem vildi að fólk yrði verndað gegn þessum tölv- um og notkun þeirra. Ekki kann ég skil á því hvernig hægt var að nota tölvu i rannsókn glæpamáls hér á Islandi. nema fyrst hafi verið búin til sakaskrá fyrir tölvuna og hún mötuð með alls konar upplýsingum. Nú re.vndist það svo að fjórum mönnum var aö ósekju haldið fangelsuðum í marga mánuði og hefur þá tölvan góða væntanlega verið mötuð á niifn- um þessara manna og um leið með alls konar upplognum upp- lýsingum um þá. Tölvur eru sjálfsagt til margs nýtilegar en aðallega held ég að tölvan sé „leikfang hinna lærðu" við útreikning alls konar vandasamra mála. svo leikföng hinna lærðu sem hagkerfis lands okkar og svo við greiðslur ellilauna og örorkubóta sem hún nú stjórnar o.m.fl. Aldrei hafði mig órað fyrir að tölvur gætu orðið hættulegar fyrir þegna þjóðarinnar, en svo virðist þó vera. Eg held að almenningur eigi heimtingu á að vita hver matar þessa tölvu og þá með hvaða upplýsingum og hvernig og hve mikil afbrot tnanna þurfa að vera til þess að hljóta þann vafasama heiður að verða tölvu- tækir. Eru t.d. smáhlutir, svo sem sektir f.vrir umferðarbrot, tengdar þessari tölvu? Spyr sá sem ekki veit. 1 hinu svonefnda Geirfinns- máli var vísvitandi logið upp á fjóra menn að þeir væru við- riðnir þetta andstyggilega mál. Ekki er nokkur vafi á að þeir voru stimplaðir inn í tölvuna vegna þessa og því spyrjum vér: er búið að má þet-ta mál þeirra út af tölvunni aftur og þeir þar með „tölvulega" hreinsaðir? Mérdatt þetta (svona) í hug. SIGGI flug. 7877-8083. Tölvur eru leikföng hinna lærðu, segir Siggi fiug. Hef ur verið slakað á málkröfum? Rithöfundur sendi okkur eftir- farandi: Ósköp kunni ég illa við það að heyra þulið i auglýsingatíma a.m.k. tíu sinnum sama kvöldið að Bókamarkaður Bóksala- félagsins opnaði útsölu sína. Kemur þá ekki tilkynning síðar að sami markaður loki? Auðvitað eiga auglýsinga- stofumenn útvarpsins að breyta svona. Það eru bóksalar sem stjórna markaði og opna hann eða loka honum eða þeim húsa- kynnum þar sem hann er hald- inn. Heldur finnst mér auglýs- ingamenn útvarpsins hafa slakað á málkröfum sínum síðustu árin. Og sama má segja um fréttamenn sömu stofnunar — þó fyrst og fremst um þýð- endur sjónvarpsins.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.