Dagblaðið - 02.03.1977, Page 22

Dagblaðið - 02.03.1977, Page 22
22 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977. Þjófar og villtar meyjar (The Great Scout and Cathouse Thursday) Viðfræg, sprenghlægileg og vel leikin ný. bandarísk gamanmynd í litum. Aðalhlutverk: Lee Marvin, Oliver Reed. Elizabeth Ashley. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hækkað verð. Islenzkur texti Síðasta sinn I I Kvenhylli og kynorka Bráðskemmtileg og d.jörf ný ensk litmynd með Anthon.v Kenyon og Mark Jones. Islenzkur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 9 og 11 og á samfelldri sýningu kl. 1.30 til 8.30 ásamt myndinni Húsið sem draup blóði með Peter Cushing. Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.30. Rúmstokkurinn er þarfaþing S0REN STR0MBERG PAUL HAGEN OLE S0LTOFT • ARTHUR JENSEN ANNIE BIRGIT GARDE , LISE-LOTTE NORUP Ný, djörf, dönsk gamanmynd og tvímælalaust skemmtilegasta „rúmstokksmyndin“ til þessa. tslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Logandi víti Stórkostlega vel gerð og leikin ný bandarísk stórmynd, talin lang- bezta stórslysamyndin sem gerð hefur verið, enda hefur hún alls staðar fengið metaðsókn. Aðalhlutverk: Steve McQueen, Paul Newman, William Holden, Faye Dunaway. ísl. texti. Sýnd kl. 9. Hækkað verð. 1 STJÖRNUBÍÓ I Ást með fullu frelsi (Violer er blá) tslenzkur texti. Sérstæð og vel leikin ný dönsk nýtímamynd, sem orðið hefur mjög vinsæl víða um lönd. Leik- stjóri. Peter Refn. Aðalhlutverk: Lisbeth Lundquist, Baard Owe. Sýnd kl. 6, 8 og 1(L Bönnuð innan 16 ára. Þú ok nýju MANZ-skórnir þínir verða fljótt óaðskiljanlegir vinir. 6 erndið f œturna andið skóvalið Domus Medica Egilsgötu 3 Sími: 18519. IAUGARASBÍO Rauði sjórœninginn S) Ný mynd frá Universal, ein stærsta og mest spennandi sjó- ræningjaniynd sem framleidd hefur verið síðari árin. ísl. texti. Aðalhlutverk: Robert Shaw. James Earl Jones, Peter Bovle, Genevieve Bujold og Beau Bridges. Sýnd kl. 5. 7. 9 og 11. Bönnuð börnunt innan 14 ára. I NÝJA BIO I Royal Flash Ný bandarísk litmynd um ævin- týramanninn Flashman, gerð eftir einni af sögum G. MacDonald Fraser um Flashman, sem náð hafa miklum vinsældum erlendis. Aðalhlutverk: Malcolm McDowell, Alan Bates og Oliver Reed. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. I TÓNABÍÓ Enginn er fullkominn (Some like it hot) „Some like it hot“ er ein bezta gamanmynd sem Tónabíó hefur haft til sýninga. Myndin hefur verið endursýnd víða erlendis við rnikla aðsókn. Leikstjóri: Billy Wilder. Aðalhiutverk: Marilyn Monroe, Jack Lemmon, Tony Curtis. Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7.15 og-9.30. HÁSKÓLABÍÓ Mjúkar hvílur — mikið stríð (£oft beds — hard battles) I Sprenghlægileg ný litmynd þar sem Pcter Sellers er allt í öllu og leikur 6 aðalhlutverk, auk hans leika m.a. Lila Kedrova og Curt Jiirgens. Leikstjóri: Roy Boulting. tsl. texti. Sýnd kl. 5. 7 og 9. Góóa skemmtun. Allra síðasta sinn. Leikfélag Kópovogs Glataðir snillingar aukasýning sunnudag 20.30. Aðeins þetta eina sinn. Aðgöngunnðar lijá l,h Blöndal, Skólavörðustíg c Félagsheimili Kópavogs. Miðasalan opin frá kl. 17. Sími 41985. Útvarp Sjónvarp i) Sjónvarp f kvöld kl. 18,15: Líf unglinga í Vest- mannaeyjum séð með augum útlendinga Börnin á Heimaey nefnist mynd sem er í barnatímanum í dag kl. 18.15. Er þetta dönsk heimildarmynd sem gerð er í samvinnu við sænska sjónvarpið. Þýðandi er Guðmundur Svein- björnsson en þulur er Jón O. Edwald. „Þessi mynd er tekin af út- lendingum og fyrir útlendinga en það er fróðlegt fyrir okkur að sjá hverjum augum þeir líta á efnið. Myndin er gerð til þess að sýna dönskum unglingum hvernig líf unglinganna er í Vestmannaeyj- um. Myndin hefst á gosinu og eru nokkrar svipmyndir frá því en síðan er daglegt lif eyjabarnanna sýnt. Það er einnig sýnt hvernig öskuhreinsunin fór fram. Það eru aðallega strákar og stelpa sem þarna koma fram og sýnt hvernig foreldrar þeirra og aðrir forfeður þeirra voru fiski- menn, það er sýnt hvernig strákar spranga í björgunum. Myndin lýsir lífinu nokkuð vel þótt kannski sé ekki mikið meira um hana að segja." sagði Jón O. Edwald. Mynd þessi er á litfilmu en enn hefur sjónvarpið ekki tæki. til þess að senda litfilmur út þannig að myndin er sýnd í svart-hvítu Að sjálfsögðu er ekki nema hálft gaman að því að sjá hana í svart- hvítu, eins og segja má um svo margar aðrar myndir sem við höfum séð á undanförnum árum i sjónvarpinu. Flestar ef ekki allar sjónvarpsmyndir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum, eru teknar með það fyrir augum að vera sýndar í lit og ekki hálft gagn af því að sjá þær i svart-hvítu Þetta stendur allt til bóta, því nú hafa borizt fréttir frá yfir- völdum þess efnis að nauðsynleg tæki til litaútsendingar verði fengin til sjónvarpsins í náinni framtíð. Sýningartími Vestmannaeyja- myndarinnar er þrjátíu og fimm mínútur. -A.Bj. 1 myndinni í kvöld frá Vestmannaeyjum er m.a. sýnt hvernig Vestmannaeyjaungiingar spranga. Þarna er ein ung og frísk sprangandi Vestmannaeyjamær. DB-mynd Ragnar Th. Wimsey lávarður og Onedin skip- stjóri snúa aftur Sagt var frá því í einu dag- blaði fyrir skömmu að þegar sýningum á finnska framhalds- myndaflokknum um Maju á Stormey l.vki hæfust sýningar á nýjum bandarískum fram- haldsmyndaflokki Rich man poor man. Samkvæmt áreiðan- legum heimildum verður ein- hver bið á að við fáum að sjá þann þátt, því hann var dýrari en svo að íslenzka sjónvarpið gæti keypt hann. Næsta miðvikudag er fyrsti þátturinn í fjögurra þátta saka- málaflokki um Lord Peter Wimsey. Að þeim þætti loknum hefst nýr flokkur um skipstjór- ann vinsæla Onedin. Er ekki að efa að margir gleðjast við endurkomu hans, því hann naut mikilla vinsælda þegar myndirnar um hann og fjöl- skyldu hans voru á skjánum. A.Bj. Peter Gilmore fer með hlutverk Onedins skipstjóra en hann kemur aftur á skjáinn eftir að f jórum þáttum um sir Peter Wimsey Iýkur. Sjónvarp f kvöld kl. 20,45: Nú kynnumst við hugviti franskra í þættinum Nýjasta tækni og vísindi Þátturinn Nýjasta tækni og vísindi er á dagskrá sjón- varpsins í kvöld kl. 20.45. Umsjónarmaður er Örnólfur Thorlacius. Verða kynntar nokkrar franskar fræðslu- myndir. í þeirri fyrstu kynn- umst við franska hönnuðinum og listamanninum Georges Patrix, sem fæst við að fegra ýmsa vinnustaði. — I einni myndinni er kynnt gagnmerkt tæki er hlotið hefur nafnið bergmálshjartaritun, þar sem fyigzt er með starfandi hjarta með því að senda út hljóðmerki og mæla síðan bergmál merkjanna á myndskjá. Þá kynnumst við einnig aðferðum Frakka við að hanna byggð í nánd við háværar hrað- brautir og sýnt er líkan sem reist hefur verið af slíkri byggð. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.