Dagblaðið - 02.03.1977, Page 24

Dagblaðið - 02.03.1977, Page 24
Stefnt að mikilli aukningu rafhitunar húsa Aðeins 3,3 af 100 með olíuhitun eftir 5 ár Kinungis 3,3 af hverjum 100 iandsmanna veröa með olíuhit- un í húsum sínum að fimm árum liðnum, ef sú orkuspá stenzt, sem nú er verið að skoða á miðsvetrarfundi Sambands ís- lenzkra rafveitna. Raforkuspáin er miðuð við, að því er tekur til húshitunar, að forgangsorka korni i stað olíu til hitunar húsa i dreifbýli og þéttbýli þar sem möguleikar á öflun jarðhita eru taldir litlir eða vafasamir sem stendur. Gert er ráð fyrir að þessi um- skipti á hitunaraðferð eigi sér að langmestu le.vti stað á næstu árum og fyrir 1985. Einungis er reiknað með þeirri raforkusölu til stóriðju sem þegar hefur verið samið um. Hún reiknar með að virkj- anir komi í notkun á þeim tíma sem nú er ákveðinn og þær verði tengdar sem fullkomnast. Rafhitun yrði þá tiltölulega minnst á Suðurlandi og Reykja- nesi eða 7,9 prósent en mest á Austurlandi, 100 prósent. Á öllu landinu er áætlað að 22.7 prósent íbúanna verði á rafhit- unarsvæðum en 77,3 prós&nt á hitaveitusvæðum. Heimilisnotkun rafmagns er nú svipuð í öllum landshlutum, rúmlega 1000 kílówattstundir á íbúa á ári. í orkuspánni er stuðzt við áætlanir Svía og Norðmanna um heimilisnotk- un, en í þeim er gert ráð fyrir að notkunin verði orðin um 3300 kilówattstundir á íbúa á ári árið 2000. Aukningin er tal- in munu verða nokkuð ör fyrst í stað en síðar dregur úr aukn- ingunni. Orkuspá þessa gerði sérstök orkuspárnefnd. Því fer fjarri, að menn séu sammála um þessar miklu rafhitunaráætlan- ir, Eins og DB skýrði frá í gær, lét Aðalsteinn Guðjohnsen, raf- magrisstjóri Reykjavíkur, svo ummælt á fundinum í gær, að ,,ofurkapp“ hefði verið lagt á rafhitun. Samanburður við hitaveitur væri hitaveitunum tvimælalaust í hag. -HH Kapalviðgerðin íEyjum: Fárviðri frestar viðgerð — Árvakur kominn með viðgerðarbúnað Árvakur kom til Eyja í gær með búnað meðferðis til að gera við rafmagnskapalinn. Stóð til að hefja þegar vinnu við viðgeröina, en í morgun var fárviðri á austan og þvi ekki unnt að gera neitt. Gott veður verður að vera svo unnt sé að standa að verkinu. Að sögn bæjarstjóra hafa bæjarbúar tekið vel tilmælum um að spara rafmagn og því hefur varaaflið dugað svo til fram að þessu. Þegar unnt verður aö hefja vinnu við við- geröina. er búiz\ við að hún taki fjóra til fimni daga. -G.S. Einn er að flýta sér, en öðrum liggur ekkert á. Sumir komast aldrei yfir þáð sem þeir ætla að gera, hversu mjög sem þeir fiýta sér og hlaupa. Hjá öðrum er biðin löng og tíminn virðist næstum standa kyrr. Þessi svipmynd er úr Lækjargötu — sjaidgæf sjón en þó enn til. í bakgrunni erStjórnarráðshúsið þar sem mest er f jallað um hækkanir á vöruverði þessa dagana. DB-mynd Hörður. Reyðarfjörður: Milljónatjón —er skip sigldi á bryggju í blíðskaparveðri í gærkvöldi sigldi 12 þúsund lesta grískt skip á mikilli ferð á bryggjuna á Reyðarfirði. Við áreksturinn stórskemmdist nýlegt stálþil mikið og er um milljónatjón að ræða. Stór rifa myndaðist á stefni gríska skipsins, sem síðan slóst þvert fyrir og lenti á Helgafell- inu sem lá við bryggjuna. Helgafellið slapp óskemmt. Gríska skipið fór strax frá br.vggju. Það er stærsta skip sem hér hefur komið um árabil. Átti skipið að lesta 850 tonn af mjöli. Bryggjan er nothæf eftir áreksturinn en skemntdirnar á stálþilinu eru neðan sjávarlinu. Vigfús/A.Bj. Byrjað á Grundar- tangalínu bráðum Að sögn Agnars Olsen hjá Landsvirkjún má búast við að byrjað verði að vinna við lagn- ingu háspennulínu til Grundar- tanga. Blaðið skýrði frá til- boðum í verkið fyrir skömmu og kom þar m.a. fram mjög mik- ill mismunur á hæstu og lægstu tilboðum. Var verkið boðið út í þrem áföngum. Landsvirkjun hefur nú ákveðið verktaka, í hvern áfanga. Þeir eru Aðalbraut hf., Hlaðbær hf. og Vörðufell hf. Voru þeir lægstbjóðendur í við- komandi áfanga. Hlaðbær átti að vísu lægsta tilboð í tvo áfangá, en það skilyrði fylgdi tilboðum fyritækisins að það tæki ekki nema einn áfanga. -G.S. Rosahækkun á kaffi og strætisvagnafargjöldum N.ú berast daglega fréttir af verðhækkunum á nauðsynja- vörum. í gær ákvað verðlags- nefnd að heimila vérðhækkun á kaffi. strætisvagnafargjöldum og gasolíu. Kaffið hækkar um 26,3% og kostar nú pakkinn af ódýrasta kaffinu 370 kr., kostaði áður 293 kr. Þessi hækkun er vegna uppskerubrests í Brazilíu. Eru raunar boðaðar frekari verð- hækkanir á þessum þjóðar- drykk okkar. Strætisvagnar Reykjavíkur eru reknir með gifurlegu tapi og er meðaltalshækkunin 23%. Einstaklingsfar kostar nú kr. 60, var áður 50. Nitján farmiða spjöld kosta nú 1000 kr. Spjöld með fjörutiu og fjórum ntiðum kosta 2000 kr. og fjörutíu og fjögurra miða spjöld f.vrir ör.vrkja og aldraða kosta nú 1000 kr. Einstök fargjöld barna kosta nú 20 kr. og farmiða- spjöld með fjörutíu farmiðum kosta 600 kr. Olía. án söluskatts. til húsa- hilunar og fiskiskipa kostar nú 30 kr. hver lítri, kostaði áður 28 kr. Er þetta 7% hækkun. Ef þessi olía fer á bíla er hækkun- in minni að prósenttölu eða 5%. en hver olíulitri til bíla kostar 40 kr., var áður 38 kr. Fyrir lá einnig beiðni frá olíufélögunum um tveggja króna hækkun á hvern bensínlítra, en þeirri beiðni var svnjað. A.Bj. frjálst,úháð daghJað MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977. Krafla: „Krftískt” ástand um helgina? „Skjálftarnir frá kl. 3 í gær- dag til 8 i morgun reyndust vera 29, þar af 4 rétt yfir 2 stig á Richterskvarða. Sólarhring- inn á undan voru skjálftarnir 25, þar af 5 rétt yfir 2 á Richter," sagði Bryndís Brandsdóttir á skjálftavakt- inni við Kröflu í morgun. ..Skjálftarnir við Kröflu aukast stöðugt," sagði Bryndís og bætti við að menn byggjust við „krítísku" ástandi núna um helgina. í gær Jiafði landrisið við stöðvarhúsið náð 6.558 mm en fyrir skjálftahrinuna í janúar er land byrjaði að siga aftur hafði landrisið náð 6.682 mm. Þess ber þó að gæta, að sögri Bryndísar, að landrisið eykst alltaf þannig, að áður en það b.vrjar að síga á ný næst er búizt við að það verði orðið meira en 6.682 mm eins og það varð mest í janúar. EVI Skákskýringar Smyslovsog dr. Alsters Út er komin aukaútgáfa af tímaritinu Skák. Flytur blaðið allar skákirnar, sem tefldar hafa verið í áskorendaeinvigj- unum fjórum sem nú standa yfir, nema skák Horts og Spasskys sem tefld var í gær- kvöldi. Nýtt blaðþessararauka- útgáfu Skákar kemur út aila dagana, sem teflt er hér, með þeint skákum sém lokið er. Skákskýringar eru eftir þá Smyslov, fyrrverandi heims- meistara, og dr. Alster, að- stoðarmann Horts. -BS Lífogfjörá Loftleiðum í dag verður líf og fjör á Loftleiðahótelinu. Auk þess sem Hort og Spassky taka til við biðskák sína frá í gær- kvöldi verða skýrðar og sýndar skákir Larsens og Portisch í Rotterdam, Meckings og Polugajevskis i Luzerne og Korchnois og Petrosians í II Ciocco. Að venju verða það færustu skáksérfræðingar sem skák- irnar skýra jafnóðum og leikjr berast, en skákskýringarnar hafa þótt mjög skemmtilegar og menn þaulsætnir yfir þeim. -BS Brældiámið- unumínótt ,,Við bíðum eftir betra veðri." sagði Jafet Ölafsson hjá loónunefnd í viðtali við DB i morgun. ,,Það brældi á loðnumiðun- um í nótt og var sama og engin veiði. Sólarhringinn á undan fór aflinn upp í 8800-tonn frá þrjátíu skipum. Skipin eru á tveimur veiðisvæðum, við Ingólfshöfða og rétt við Vest- mannaeyjar," sagði Jafet. A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.