Dagblaðið - 20.04.1977, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977.
1*
gþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
FRAMSTÚLKUR BEZTAR
Jönköping
byrjaði
mjögvel!
Ákaflega hættulegir í framlínu
Jönköping voru fslendingurinn,
Teitur Þórðarson, sem svo mjög
hefur verið skrifað um, og Ulf
Lantz, skrifar Dagens Nyheder
eftir fyrsta leik Jönköping í 2.
deildinni sænsku.
Jönköplng vann þar mjög at-
hyglisverðan sigur á örgryte —
Gautaborgarliðinu fræga — á
Ullevi-leikvanginum mikla í
Gautaborg. Sören Börjesson
skoraði fyrsta mark leiksins á 34.
mín. fyrir örgryte. Christer
Johanson jafnaði fyrir Jönkö-
ping á 40. mín. I siðari hálfleikn-
um skoraði Ulf Lantz tvivegis
fyrir Jönköping. Fyrra markið á
65. mín., en hið síðara á 80 mín.
Áhorfendur voru 3312.
Greinilegt var í byrjun
leiksins, að leikmenn Jönköping
komu til Gautaborgar með það í
huga að ná öðru stiginu. Léku
upp á jafntefli, en eftir að
örgryte komst yfir varð liðið að
fara að sækja. Það heppnaðist
með fyrrgreindum árangri.
Miðvörðurinn Lars-Erik Ánders-
son misnotaði meira að segja víta-
spyrnu fyrir Jönköping.
Norrby, liðið, sem Vilhjálmur
Kjartansson, Val, mun leika með
i sumar lék sinn fyrsta leik i 2.
deild (suður) á útivelli gegn IFK
Malmö. Jafntefii varð 0-0.
Vilhjálmur heldur til Svíþjóðar í
dag, miðvikudag.
f 3. dejld (Skáni) lék Perstorp,
liðið sem Þorsteinn Ölafsson
leikur með, sinn fyrsta deildaleik
við Lunds SK. Það var á útivelli
og Perstorp tapaði leiknum 3-1.
fslandsmeistarar Fram í meistaraflokki kvenna: Áffari röð frá vinstri: Helga Magnúsdóttir, Guðrún Sverrisdóttir, Kristín Orradóttir, Berg-
þóra Ásmundsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Elin Hjörleifsdóttir, Jenný Grétudóttir og Jón Friðsteinsson form. Handknattleiksdeild-
ar Fram. Fremri röð: Guðjón Jónsson þjálfari, Jenný Magnúsdóttir, Þorbjörg Albertsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Kolbrún Jóhannesdótt-
ir, Guðríður Guðjónsdóttir, Steinunn Helgadóttir og Sylvía Hallsteinsdóttir. DB-myndir Bjarnleifur.
Evrópuleikir
íkvöld
Síðari leikirnir í undanúrslit-
um Evrópumótanna þriggjá i
knattspyrnu verða háðir í kvöld.
Liverpoot leikur við Zurich á Án-
field — og það ætti að verða létt
fyrir enska liðið að komast i úr-
slit. Sigraði 3-1 i Zurich, en þó
þurfa leikmenn Liverpool að
gæta sin á ftalanum Franco Cuci-
notta. Hann lék ekki i fyrri leikn-
um vegna leikbanns og á sunnu-
dag var hann heldur betur á skot-
skónum. Skoraði fjögur mörk
fyrir Zurich i 1. deildinni sviss-
nesku. David Fairclough hjá
Liverpool hefur náð sér eftir
meiðsli, en ekki er þó víst hann
leiki vegna frábærrar frammi-
stöðu David Johnson sl. laugar-
dag. f hinum undanúrslitaleikn-
um í Evrópubikarnum leika
Borussia Mönchengladbach og
Dynamo Kiev. Sovézka liðið
sigraði í fyrri leiknum 1-0 í Kiev.
f keppni bikarhafa leika Ham-
borg og Átletico Madrid, svo og
Ánderlecht og Napoli. f UEFA-
keppninni leika AEK, Grikk-
landi, og Juventus annars vegar,
en Bilbao og Molenbeek hins
vegar.
Mesta þátt-
taka íVíða-
vangshlaupi ÍR
Víðavangshlaup fR — hið 62. í
röðinni — fer fram að venju 4
sumardaginn fyrsta. Skráðir
keppendur eru 105. 70 karlmenn
og 35 stúlkur. Það er met-
skráning. Aður mest 102. Flestir
keppendur eru frá fR eða 36. Frá
UBK og HSK eru 21 keppandi frá
hvoru sambandi. Niu Borg-
firðingar eru skráðir, átta Ar-
menningar, tveir frá Leikni og
einn frá FH, KR og USVS.
Hlaupið hefst kl. tvö á morgun
í Hljómskálagarðinum. Hlaupið'
út f Vatnsmýri og siðan til baka.
Tjarnargötu, Áðalstræti og
Áusturstræti. Hlaupinu lýkur á
horni Pósthússtrætis.
Fram-stúlkurnar komu mjög
ákveðnar til leiks í úrslitaleikinn
við Val i 1. deild kvenna í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöld.
Akveðnar í því að verja fslands-
meistaratitil sinn þó svo Valur
stæði að því leyti betur að vígi, að
liðinu nægði jafntefli til sigurs í
mótinu.
Það kom fljótt í ljós að hverju
stefndi í leiknum. Fram skoraði
þrjú fyrstu mörk leiksins, en á
sama tíma lokaði Kolbrún
Jóhannsdóttir alveg Fram-
markinu. Varði allt og varði
snilldarlega allan leikinn. Þar var
lagður grunnur að stórsigri Fram,
13-5, og eftir leikinn í gær voru
Kolbrúnu afhent verðlaun, þar
sem hún var kjörin „handknatt-
leikskona ársins“.
Staðan í hálfleik í gær var 5-2
fyrir Fram — og í upphafi síðari
hálfleiks gerðu Fram-stúlkurnar
alveg út um leikinn. Skoruðu
fimm fyrstu mörkin og komust í
10-2. Eftir það var aðeins formsat-
riði að ljúka leiknum. Lokatölur
13-5 eða nákvæmlega þær sömu
og þegar Fram sigraði Val í úr-
slitaleik mótsins í fyrra og varð
Islandsmeistari. Nú hlaut Fram
einu stigi meira en Valur á
mótinu. Tapaði ekki leik nema
fyrir Val í fyrri umferðinni, en
Valsstúlkurnar gerðu jafntefli við
FH auk þess, sem þær töpuðu svo
í gær.
Mörk Fram í leiknum i gær
skoruðu Guðríður Guðjónsdóttir
— dóttir þjálfara liðsins Guðjóns
Jónssonar, fyrrum landsliðs-
manns og Sigríður Sigurðardóttur
Manch. City jók þá miklu
pressu, sem er á leikmönnum
Liverpool, þegar liðið sigraði
Birmingham á Maine Road i Man-
chester í 1. deildinni í gær. Með
sigrinum náði City meisturum
fyrirliða ísl. kvennaliðsins, sem
varð Norðurlandameistari — með
þrjú mörk, Jóhanna Halldórs-
dóttir 3, Oddný Sigsteinsdóttir,
fyrirliði, 3, Kristín Orradóttir 2,
Guðrún Sverrisdóttir og Sylvia
Hallsteinsdóttir eitt hvor. Fyrir
Val skoruðu Björg Guðmunds-
dóttir 2, Harpa Guðmundsdóttir,
Halldóra og Ágústa Dúadóttir eitt
hver.
Liverpool að stigum. Bæði lið
hafa 50 stig. Liverpool eftir 36
leiki, en Manch. City hefur leikið
37 leiki. Það var Brian Kidd, sem
skoraði bæði mörk City í gær en
Ken Burns eina mark Birming-
ham.
í 2. deild náði Chelsea forustu
eftir jafntefli í Oldham, þar sem
Peter Bonetti, enski landsliðs-
markvörðurinn hér áður fyrr,
bjargaði Chelsea með frábærri
markvörzlu, en á sama tíma
tapaði Wolverhampton í Carlisle.
Chelsea hefur nú 50 stig eftir 38,
leiki, Wolves 49 stig eftir 36 Ieiki,
en síðan kemur Notts County með
46 stig eftir 38 leiki.
Urslit í ensku knattspyrnunni í
gær urðu þessi:
1. deild
Coventry — WBA 1-1
Everton — Norwich 3-1
QPR — Manch. Utd. 4-0
Manc. City — Birmingham 2-1
2. deild
Carlisle — Wolves 2-1
Hull City — Orient 1-1
Oldham — Chelsea 0-0
3. deild
Northampton — Grimsby 0-0
Portsmouth — Tranmere 0-3
Preston — Chesterfield 2-2
Shrewsbury — Peterbro 2-1
Walsall — Mansfield 1-2
York — Swindon 4-2
Fyrsti leikur kvöldsins var
bikarleikur KR og Ármanns i
meistaraflokki kvenna. Jafntefli
varð 9-9 og þurfa liðin þvi að leika
að nýju. Þessi úrslit voru óvænt
eftir að KR komst í 6-1 í byrjun.
Eftir leikina afhentu Sigurður
Jónsson, form. HSl, og Svana
Jörgensdóttir þrettán nýjum
landsliðskonum landsliðsnælu
HSÍ.
4. deild
Bournemouth — Barnsley 1-0
Colchester — Huddersf. 3-1
Doncaster — Workington 6-3
Halifax — Brentford 0-0
Scunthorpe — Newport 1-0
Watford — Southport 2-0
1 1. deild skozku vann St.
Mirren stórsigur f Dundee 0-4. St.
Mirren hefur þegar tryggt sér rétt
til að leika I úrvalsdeildinni
skozku næsta keppnistimabil
ásamt Clydebank.
QPR komst úr mestu fallhætt-
unni í 1. deild eftir stórsigur á
Manch. Utd. Don Givens, Eddie
Kelly og Peter Eastoe, tvívegis,
skoruðu mörk QPR gegn United-
liði , sem lagði sig lítið fram í
leiknum, enda undanúrslit
bikarsins gegn Leeds næsta
laugardag. Ekki hefur enn frétzt
hvað skeði á stjórnarfundi
Manch. Utd. í sambandi við fram-
kvæmdastjórann, Tommy
Docherty, en þess má einnig geta,
að talsverð óánægja er einnig
meðal leikmanna United hvað
kaupi viðkemur. Einkum
Skotunum Martin Buchan,
fyrirliða, og Lou Macari. Þeim
finnst þeir fái ekki nóga sneið af
kökunni, en talið er að tekjur
Manch. Utd. á leiktfmabilinu
muni nema 750 þúsund sterlings-
pundum.
Mamma varð Islandsmeistari — Sylvia Hallsteinsdóttir, handknatt-
ieikskonan kunna, landsliðskona og systir iandsliðsmannanna Geirs og
Arnar, varð fslandsmeistari með Fram í gær og meðal þeirra, sem
fögnuðu henni eftir leikinn við Val i gær voru börnin hennar þrjú.
DB-mynd Bjarnleifur.
Man. City eykur pressu
á meistara Liverpool!
Vann Birmingham í 1. deild í gær og hef ur nú sama stiga-
fjölda. Ulfarnir töpuðu íCarlisle og Chelsea efst í2. deild