Dagblaðið - 20.04.1977, Qupperneq 18
Svör bandarískra vísindamanna
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977.
að deyja?
Hvernig er að deyja? Er líf
eftir dauðann? Þessar
spurningar hafa brunnið á
vörum margra en fram að þessu
hafa þær verið áiitnar vísinda-
lega ósvaranlegar. Trúarbrögð
hafa reynt að veita svör við
þessum spurningum en þau
svör eru ekki viðurkennd af
öllum.
Bandarískir sérfræðingar,
svo sem sálfræðingar og líf-
fræðingar, vinna nú að því að
rannsaka dauðann. Þeir taka
tali fólk sem hefur komizt
nærri dauðanum og jafnvel úr-
skurðað látið og inna það eftir
reynslu sinni.
Sálfræðingurinn dr. Karlis
Osis hefur safnað saman lýsing-
um af 877 manns sem hafa
verið við dauðann. Sameigin-
legt með reynslu allra er
tilfinning um frið og kyrrð
ásamt mikilli hamingjutil-
finningu. Sumir sjúklingar sjá
fyrri ævi líða hjá líkt og í leift-
ursýn.
Dr. Osis rannsakaði hvort
þessar sýnir gætu verið ofsjónir
sökum mikilla lyfjagjafa. Svo
reyndist ekki vera. Þeir sem
höfðu fengið lyf sá mun síður
slíkar sýnir en hinir. Dr. Osis
telur þessar sýnir tvímælalaust
vera sannanir fyrir tilvist lífs
eftir þetta lif.
En ekki eru allir vísinda-
menn sammála um það. Dr.
Russell Noyes er einn þeirra.
Hann hefur rannsakað reynslu-
sögur 104 sjúklinga, sem nær
hafa verið dauða en lífi. Dr.
Noyes telur sams konar reynslu
og áður var rædd merki um það
að heilinn einfaldlega neiti að
deyja og reyni því að fegra
dauðann.
Dr. Raymond Moody hefur
einnig rannskað svipaðar
sjúkdómssögur, alls 150 talsins.
Hann segir flesta sem séð hafa
sýnir af einhverju tagi vera
allsendis ófæra um að lýsa
henni með orðum, hún væri
ólýsanleg. Hvað menn geta
helzt sagt er að þeir hafi séð
skært ljós sem var á einhvern
hátt mannlegt. Ljósið hefði
skýran persónuleika, og ást og
hlýja stafi frá því. Þetta ljós
umvefji þá, taki þá upp á arma
sína og veiti þeim algert öryggi.
Sögurnar eru nokkuð
breytilegar frá manni til manns
og virðist aðalmunur vera á
mönnum, sem aðhyllast mis-
munandi trúarbrögð. Það
finnst Dr. Noyes benda skýrt til
þess að heilinn ákveði
Hvernig er
hreinlega þessa skynjun. Það
sem menn upplifa er yfirleitt
og nær eingöngu í fullu sam-
ræmi við það sem þeir trúa.
Visindin megna því ekki
enn að skera úr um það hvort
guð sé til eða ekki né heldur
hvort framhaldslíf sé til. Það
sem vísindin aftur á móti hafa
gert og gera líkast til enn betur
í framtíðinni er að fá betri upp-
lýsingar um það hvernig sjálf
dauðastundin er og finnst lík-
lega flestum að það sé ekki svo
lítið. -DS.
C
Verzlun
Verzlun
Verzlun
SB
STOLLINK
NETTUR OG ÞÆGILEGUR Ætmm
NB stóllinn hentar alls staðar.
A heimilinu:
V'ið sjónvarpið. i dagstofunni, holið
eóa húsbóndaherbergið.
Istofnunum:
Á hótelherbergjum, biðstofum, skrif-
stofum, sjúkrahúsum og þar alls w
staðar sem þörf er á nettum, þægiieg-
um og failegum stólum.
Fæst með leðri, áklæði
og leðurllki.
^ólsturgerðin
sími 16541 Laugavegi 134,
Ferguson litsjónvarps-
tœkin- Amérískir inlínu
myndlampar. Amerískir
transistorar og díóður
ORRI HJALTASON
Hagamel 8,,sími 16139.
BIAÐW
er smáauglýsingablaðið
Bflasalan BILAVAL
Laugavegi 90-92
Símar 19168 og 19092
Hjá okkur er opið alla daga nema
sunnudaga frá kl. 10-19.00
Látið okkur skrá bílinn og mynda
hann í leiðinni.
Söluskrá ásamt myndalista liggur
frammi. — Lítið inn hjá okkur og
kannið úrvalið. Við erum við hliðina á
Stjörnubíói.
BILAVAL
SIMAR19168
0G19092
Slappiðaf
í þægilegum hvildarstól með
stillaniegum fæti, ruggu óg
snúning. Stóllinn aðeins
framieiddur hjá
okkur. Fáanlegur
með áklæðum
og skinnlíki.
a eo
tn —
BÓLSTRUNIN J J
phyris
Fogurd blomanna stendur yður til boða.
Unglingalinan:
Spocial Day Cream — Special Night Croam.
Spocial Cleansing — Tonic.
Phyris tryggir vellíöan og þægindi og veitir
hörundi, sem mikiö mæöir ó. velkomna hvíld.
Phyrís fyrir alla — Phyris-umboðiÖ.
6/12/24/ volta
alternatorar
HAUKUR OG ÓLAFUR
Ármúla 32 — Stmi 37700
c
D
Þjónusta
Þjónusta
Þjónusta
Húseigendur— Húsbyggjendur.
Tek að mér nýbyggingar, viðgerðir,
breytingar. Geri tilboð. Uppl. í síma
66580 eftir kl. 18. Vinsamlegast geym-
ið auglýsinguna.
Þéttum allt sem lekur
Morter-Plas/n þakklæðningarefni fyrir slétt þök með
300% teygjuþoli —
sérlega gott fyrir ísl.
veðráttu bæði fyrir nýlagnir
og viðgerðir.
Þéttitækni
Tryggvagötu 1 — sími 27620.
«Verðkr.
pr. ferm. vMffl
ákomið HB
Loftpressur Gröfur
Leigjum út loftpressur,
traktorsgröfur og Bröyt-gröfu, gröf-
um grunna og ræsi, tökum að okkur
hvers konar múrbrot, fleyganir.
borvinnu og sprengingar. '
Verkframi hf.
Smiðjuvegi 14, sími 76070.
2023.