Dagblaðið - 24.05.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 24.05.1977, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. MAl 1977. Kakan verður ekki bæði geymd og étin — segir m.a. í nýútkomnum upplýsingabæklingum ASÍum samningana „Ymis rök hníga að því að æskilegt sé að stærri hluta þjóðarframleiðslu sé varið til fjárfestingar hér en algengast er í öðrum löndum. Hins vegar má ekki gleymast að kakan verður ekki bæði geymd og étin og miklar erlendar skuldir geta orðið þung byrði ef þess er ekki gætt að fjárfestingar gangi til raunhæfrar uppbyggingar." Þetta segir m.a. í einum þriggja bæklinga sem ASt hef- ur nú gefið út og mnihalda upp- lýsingar um nteginkröfur verkalýðshreyfingarinnar og stuttar útlistanir á þeim. Allir bera þeir samheitið „Þetta vilj- um við“. Fjallað er um grundvallar- stefnuna i kjarabaráttunni, styttingu vinnuvikunnar, félagslegar íbúðabyggingar, samræmda verðlagningu, betra eftirlit með verðlagningu, skyn- samlegt skipulag fjárfestingar- mála, dagvistunarmál, breytingar á skattalögum og vinnuvernd. Pésunum hefur verið komið til verkalýðsfélaganna sem munu siá um að dreifa þeim til félagsmanna. Þá hefur ASI einnig gefið út dreifimiða um yfirvinnubannið og hótanir at- vinnurekenda. Er útgáfa í þess- um dúr fyrirhuguð af og til á meðan á samningum stendur, eftir því sem þörf verður á. -G.S., í SILFURLEIT TIL ÍSLANDS Danir hyggjast nú komast að raun um hvort slíkir gripir fyrirfinnist á Islandi og senda. hingað í sumar kirkju- og lista- verkaljósmyndarann O. Willumsen Krog frá Árósum. Hyggst hann dvelja hér á landi og heimsækja íslenzkar kirkjur og rannsaka hvað af gripum þeirra hefur verið smíðað í „kóngsins Kaupinhafn". Willumsen Krog mun njóta leiðsagnar Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar. ,,Við vitum að raargir Islendingar komu til Kauþ- mannahafnar til þess að læra silfursmíði og margir þeirra settust að í Danmörku eftir að námi lauk. Ættingjar þeirra og vinir á Islandi keyptu síðan smíðisgripi þeirra þegar þeir komu í innkaupaferðir til Dan- merkur," segir Willumsen Krog. „Við lítum á smíði tsiending- anna sem danska siifursmíði. Þeir lærðu í Danmörku og fengu borgarabréf i Kaup- mannahöfn,“ segir Willumsen Krog einnig. Það er sparisjóður einn á Jót- landi sem stendur straum af kostnaðinum við ferð Willum- sens til tslands, en hann fékk um 600 þúsund ísl. kr. til farar- innar. Hefur hann meðferðis bæði ljósmyndavél sína og tæki til þess að taka afsteypur af þeim smíðisgripum, sem hann rekst á hér. ,[Við reiknum með því að finna marga gripi sem nú þeg- ar eru skráðir í Danmörku en einnig marga sem ekki hafa áður verið skráðir,1' sagði Willumsen Krog. Fyrirlestur Á vegum Styrktarfélags vangefinna verður haldinn fyrirlestur í Mennta- skólanum við Hámrahlíð á morgun, 25. maí, kl. 20.30. Fyrirlesturinn flytur N.E. Bank-Mikkelsen ráðu- neytisstjóri og yfirmaður málefna vangefinna í Danmörku. Fyrirlestur- inn nefnist: „Markmið og leiðir í mál- efnum vangefinna“. Fyrirlesturinn verður túlkaður á íslenzku. Fyrirlesarinn svarar spurningum fundarmanna að fyrirlestri loknum. Áhugafólk um málefni vangefinna er hvatt til þess að mæta á fundinn. Styrktarfélag vangefinna. Þegar Danaveldi varð gjald- þrota árið 1813 sendu danskir góðborgarar silfurmuni sina til ríkisfjárhirzlunnar og til þess að láta bræða þá og slá úr þeim mynt. Matur og klæðnaður var þá allt í einu orðið meira virði en listaverk úr silfri. Þess vegna er frekar lítið til af merkúm silfurgripum frá því fyrir þennan tíma í Danmörku og telja Danir ekki ósennilegt að eitthvað af kjörgripum fyrir- finnist frekar á Islandi vegna þess að Island hefur ekki lent í sams konar vandræðum, segir i cfanska blaðinu Politiken. Einn af þeim tslendingum sem lærði silfursmiði i Danmörku og fékk borgarabréf i Kaup- mannahöfn var Sigurður Þor- steinsson. Fékk hann borgara- bréf sitt árið 1742. Á myndinni eru O. Willumsen Krog og Kjeld Ladefoged að skoða kaleik sem Sigurður smíðaði. Kaleikurinn er í Christians- kirkju í Christianshavn. Lömbin sem litli snáðinn er að horfa á eru í fljótu bragði ekkert óvenjuleg. Hins vegar er það óvenjulegt við þau að þau eru alsystkini, eða tvílembingar, sem fæddust samtímis úti i Heimaey fyrir nokkru og er annað lambið dverglamb. Það fæddist þó hraust og vitum við ekki betur en því heilsist enn vel. DB-mynd Heiðar Marteinsson. Enginn af 8000 dollara ferðatékkunum kominn fram Ekki er vitað til þess að neinn þeirra ferðatékka sem stolið var frá bandaríska ferða- manninum sem leitaði sér gistingar í svefnpokaplássi í Reykjavík sl. miðvikudag hafi komið fram. Úr tösku ferða- mannsins var stolið ferða- tékkum samtals að upphæð 8000 dollarar, eða rúmlega einni og hálfri milljón ísl. króna. Ferðamaður þessi kom frá Bandaríkjunum með Loftleiða- vél og hafði hér sólarhrings viðdvöl sem „stop-over“ farþegi. Þrátt fyrlr góð fjárráð leitaði hann sér að ódýru svefn- pokaplássi til gistingar í Reykjavík þessa einu nótt hans á Islandi. Þaðan hurfu tékkarnir úr tösku hans. Tékkarnir voru útgefnir af American Express Company. Slíkir tékkar eru við sölu settir í sérstök plastumslög, eins og margir íslendingar munu kannast við. Er kaup á slíkum tékkum fara fram fylgir laus kvittun þar sem á eru rituð númer tékkanna. Þar eru ýms- ar leiðbeiningar um varðveizlu tékkanna, m.a. varnaðarorð um að geyma þá aldrei í farangri heldur i öruggum vasa eðá í tryggri geymslu á gistihúsi. Þar er og bent á að lausu kvittunina skuli ávallt geyma annars staðar en í tékkaumslaginu. Ætti það að verða islenzkum notendum slikra tékka rík að- vörun. Týnist slíkir tékkar eða sé þeim stolið er kaupanda tékkanna bættur skaðinn. Það gerir American Express Company þegar í stað. Siðan rannsakar fyrirtækið málið og, kannar hvort svik séu í tafli frá kaupandans hálfu. Sé svo ekki er leitað að falsara tékkanna með ýmsum ráðum. Ferðalangurinn sem hér missti 8000 dollara var með kaupkvittunina sér og gaf lög- regluyfirvöldum hér upp númer þeirra tékka er hann hafði eytt þá er þjófnaðurinn átti sér stað. Hina mun hann hafa fengið bætta samkvæmt reglum. Héðan hvarf hann sam- kvæmt áætlun daginn eftir. Hins vegar er öllum, sem taka við ferðatékkum, sem greiðslu ráðlagt að kaupa þá ekki nema seljandi sýni jafn- franjt persónuskilrlki ag aö i>au. komi heim og saman við nöfnin' sem seljanda ber að rita á hvern einstakan ferðatékk. -ASt. Þettaecsýnishornaf SOdollara ferðatékk. Svona voru tékkarnir sem hér \ ar stolið. nenia pen eru prentaðir i fjólubláum lit.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.