Dagblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 07.06.1977, Blaðsíða 3
DAC.BLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAdUK 7. JUNÍ 1977. Landbúnaður, uppmælinga- aðall og skattamál Múrari að norðan skrifar: Þetta er nú i fyrsta skipti á ævinni sem ég skrifa dagblaði. Eg er ekki áskrifandi að neinu þeirra og hefi ekki hugsað mér að verða það. En ég kaupi stundum Vísi eða Dagblaðið, Dagblaðið þó miklu oftar. Þar sem ég hefi aldrei getað gert upp á milli þessara hagsmuna- klíkna sem kalla sig stjórnmála- flokka, þá finnst mér Dagblaðið það eina sem mér hæfir. Ekki þar fyrir að ég lesi ekki flokks- blöðin ef færi gefst, því alltaf slæðist eitthvaó gott með. Eftir því sem ég fæ best séð hefur Dagblaðið sannað tilverurétt sinn með aukinni útbreiðslu sem hlýtur að tákna vinsældir meðal almennings. Mál var til komið að við íslendingar eign- uðumst óháð blað, það er að segja óháð flokksvélunum. Allan almenning þyrstir í upplýsingar í þessu landi leyndar og pukurs, en þá þyrfti að vera hægt að reiða sig á að þær væru sannar. Allir vita hversu áreiðanlegar upp- lýsingar flokksblaðanna eru og eru þess vegna að leita þeirra annars staðar frá. En mér finnst, því miður, ekki nógu traustur málflutningur í Dag- blaðinu, þó tilgangur stofnunar þess sé góður. Ég get bent á atriði í því sambandi, eins og t.d. skrif ykkar um landbUn- aðinn. Helst skilst mér að þið óskið þess að hann verði lagður niður og farið verði að flytja inn landbUnaðarafurðir frá Danmörku, sem verði mikið ódýrari. Menn gætu hæglega freistast til að halda að þið væru á mála hjá danska landbUnaðarráðuneytinu til að auglýsa vörur þess. Að vísu veit ég að mörgu er ábótavant í íslenskum land- bUnaði, en er við athugum það að ekki er nema um einn mannsaldur og varla það síðan langflestir landsmenn lifðu á landbUnaði, þá er varla hægt að furða sig á því, þó eitthvað sé öðruvísi en ætti og þyrfti að vera. Þið eruð einnig sífellt að klifa á þvi að ríkið styrki bændur. Það er vissulega rétt, en þetta gera líka allar menn- ingarþjóðir, þó ef til vill í minna mæli sé. Vitið þið um einhverja þjóð sem ekki nytjar land sitt? í öllum bænum hættið þessum áróðri og bendið heldur á ráð til Urbóta, ef þið vitið um þau. Allir vita að sjávarUtvegur nýtur einnig styrkja frá ríkinu en ég hefi aldrei séð orð um það í Dag- blaðinu. Annað atriði langar mig til að minnast á. Það er grein sem einhver skrifaði um grein eftir Vilmund Gylfason sem hann skrifaði Ut af grein sem birtist í Morgunblaðinu (þetta líkist óneitanlega sögusögnum). Svo vildi til að ég las þessa grein i Morgunblaðinu. HUn var um dóm Hæstaréttar í einhverju bílskUrsmáli og var skrifuð af nágrönnum þess sem bílskUr- inn átti. Þetta var löng grein og ýtarleg en vissulega aðeins lýsing þeirra sem töldu sig órétti beitta. Síðan skrifar Vil- mundur grein i Dagblaðið og fordæmir vinnubrögð réttarfar- sins, og þá sérstaklega Hæsta- réttar, í þessu máli. Eftir því sem mér skildist hafði hann ekki annað til að fara eftir til þessarar skoðanarriyndunar sinnar en þessa grein í Morgun blaðinu, og er það að vísu vaía- samt að líta málið aðeins frá annarri hliðinni. Síðan ritar einhver grein i Dagblaðið og áfellist Vilmund fyrir skrif hans um þetta mál. Ekki komu fram í þeirri grein neinar upp- lýsingar sem styrkt gætu dóm Hæstaréítar. Er nU ekki þessi maður að gera sig sekan um það sem hann er að saka Vilmund um? Þetta finnst mér lélegur mál- flutningur að ekki sé meira sagt og ekki held ég að birting svona skrifa verði blaðinu til framdráttar. Annars vil ég geta þess að ég er Vilmundi oft sam- mála í skrifum hans en þó finnst mér stundum að hann mætti rökstyðja betur málflutn- ing sinn. Nokkrum sinnum hefi ég rekið mig á í skrifum Dag- blaðsins nafnið uppmælingar- aðall og er það gjarnan notað í niðrandi merkingu, að því er mér skilst af því, að þeir sem honum tilheyra eigi að hafa óheyrilega há laun. NU vill svo til að ég tilheyri einmitt þess- um illræmda aðli og ég viður- kenni það að ég hefi allmiklu hærri laun en t.d. verkamaður, og svo ég sé ekki að fela neitt þá voru tekjur mínar árið 1976 um það bil 2,4 milljónir, þ.e.a.s. um 200 þUsund á mánuði. Mér er kunnugt um að aðrir í minni stétt hafa haft meira í laun yfir árið og aftur aðrir minna. Hvort þessi munur á kaupi okkar og verkamannakaupi er réttlátur skal ég ekki dæma um. Eg er, eins og reyndar flestir, sannfærður um að laun verkamanna, verksmiðjufólks og verslunarfólks séu of lág. Hins vegar fæ ég ekki séð að unnt sé að breyta því að ráði nema þeir sem meira hafa fáist til að slá af kröfum sínum, því ég er ekki i vafa um að launa- 100-110-121-133-146-161-177-195-215-: 10% og þá hækki háu launin um fleiri króiiur en þau lágu. Þetta er að vísu rétt, en eins og hver maður getur fullvissað sig um sjálfur, þá breytist ekki hlutfallið neitt við það. Við getum tekið einfalt dæmi: Setjum svo að hlutfallið milli launa verkamanna og iðnaðar- manna væri ákveðið 2:3. Látum t.d. kaup verkamanna vera 100 krónur á klst. Þá yrði kaup iðnaðarmanns 150 kr. á klst. Segjum svo að kaupgjaldsvísi- tala hækki um 10% tíu sinnum. Þá lítur dæmið þannig Ut: 237-260 260 2 390 150-165-182-200-220-242-266-293-322-354-390 (Broti Ur krónu er sleppt til einföldunar) Eg hefi aldrei getað skilió munur milli sumra stétta er óhóflegur. Svo að ég sé ekki að blaðra eins og hinir, lýsi ég mig fUsan til að slá af mínum kröfum. Af því að ég gat um i upphafi skrifa minna, land leyndar og pukurs, þá vil ég benda á þá endileysu að allir kauptaxtar skuli ekki birtast i fjölmiðlum í hvert sinn sem breyting verður á þeim. Á ég þá ekki aðeins við laun verkamanna, heldur allra stétta. Ætli sumir skammist sín fyrir að láta launaupphæð sína sjást? Eg er ekki í vafa um að það myndi eyða mörgum misskiln- ingi manna og stétta á milli. Auk þess finnst mér að almenn- ingur eigi heimtingu á að fá að vita hvað það fólk hefur I kaup sem hann verður að borga af launum sínum, þ.e.a.s. starfs- menn ríkis og bæja. Mér finnst liggja beint fyrir að Hagstofan, eða einhver slík stofnun, taki að sér að reikna Ut meðalárstekjur hverrar stéttar í landinu (sem ætti að vera hægt eftir framtölum), og birti siðan niðurstöður sínar i öllum fjölmiðlum. Þess ber að gæta að ekki er raunhæft að bera aðeins saman tekjuupphæð manna og/eða stétta, því mis- munandi vinnustundafjöldi getur legið þar að baki. Venju- legur vinnustundafjöldi á ári, miðað við 8 st. vinnu, er um 2200 tímar, en það mun algengt að menn skili yfir 3000 tlmum, og sumir jafnvel miklu meira. Mér finnst að þið á Dag- blaðinu ættuð að beita ykkur fyrir upplýsingaþjónustu á þessu atriði, því varla eru líkur til að hin blöðin geri það. Mér. er þó ljóst að þar muni vera mörg ljón á veginum, en reynið samt. Oft er þvi slegið fram í fjöl- miðlum að ein aðalorsök launa- mismunar sé prósentukerfið. Ef t.d. vísitalan hækki um 10% þá hækki einnig öll laun um hvað svona áróður á að þýða, nema ef vera kynni að ætlast sé til að menn haldi að hlutfallið milli launa breytist. Ég minnist nU ekki að hafa séð þessu haldið fram í Dagblaðinu. Að lokum langar mig að minnast á skattamálin. Skattar eru að vonum háir á landi voru, sem ekki er nema eðlilegt, þegar litið er á fólksfæð þjóðar- innar. Við viljum hafa svipaða þjónustu af hendi þess opin- bera og gerist meðal annarra þjóða og því segir það sig sjálft að þess meira verður hver ein- stakur að bera. Ég held að flestir geri sér þetta ljóst. Meinið er að þeir sem lægst hafa launin greiða hlutfallslega mest í skatta. Tekjuskattur er að vísu ekki vel séður en hversu miklu ranglátari eru ekki neysluskattarnir se'm koma þyngst á þá sem flesta hafa á framfæri. Sanngjarnt væri að hafa háa skatta á öllum munaðarvarningi en lága eða helst enga á lífsnauðsynjum, svo sem matvöru, hreinlætis- vörum, og vinnufatnaði. Ég veit að vísu að bUið er að afgreiða fjárlög yfirstandandi árs, en ég trUi því varla að ekki mætti færa til skatttekjustofna ríkis- ins sem því næmi, eða þá í það minnsta að undirbUa þá breyt- ingu fyrir næsta ár. Hvernig væri t.d. að skattleggja bygg- ingafyrirtæki sem spretta upp sem gorkUlur á haugi og virðast cll dafna sæmilega vel og sum jafnvel meira en það? Og hvernig er með staðgreiðslu- kerfi skatta? Er það á leiðinni, eða hvað? Hvernig stendur á því að ég hefi aldrei séð nein rök sem mæla móti þvi, aðeins fullyrðingar um að það sé miklum erfiðleikum bundið að koma því á? Þessum spurning- um beini ég til ríkisstjórnar- innar því hUn er það sem við veðrum að byggja traust okkar á, enda farið að nálgast kosningar. Hverjum má treysta? Göngumóöur skrifar: Fróðlegt var að bera saman skrif dagblaðanna að lokinni Straumsvíkurgöngu nU fyrir skemmstu, þar sem her- stöðvaandstæðingar gengu til Reykjavíkur til þess að mótmæla herstöðinni í Kefla- vík. Morgunblaðið segir að 800- 1000 manns hafi hafið gönguna frá Straumsvík. Vísir telur að 1000-1200 manns hafi tekið þátt í göngunni. DB telur að á fundinum við Lækjartorg hafi verið á milli 3 og 4000 manns og Tíminn er sama sinnis. Alþýðublaðið telur að á fund- inum hafi verið um 7000 manns og Þjóðviljinn er með sömu tölu, en telur að tvö þUsynd manns hafi gengið alla leið. Hverju eiga almennir blaða- lesendur að trUa? Þarf pólitikin að lita allar fréttir? Ef farinn er meðalvegurinn virðast tölur Timans og Dagblaðsins sennilegastar. Hagsmunir Morgunblaðsins og Vísis annars vegar og Þjóðviljans hins vegar virðasl ráða öfgun-' um lil beggja hliða. Kapítuli Utaf fyrir sig er að bera saman myndir af fundin- um á Lækjartorgi. Hér fylgja tvær myndir, önnur Ur Morgun- blaðinu, hin Ur Þjóðviljanum. Þjóðviljamyndin er tekin yfir hóninn, en Morgunblaðs- myndin í Utjaðri fundarins og sýnir menn á strjáli. IV » s1 a. Stóra myndin er úr Þjóðviljanum, en innfellda myndin úr Morgunblaðinu. Spurning dagsins Hefur yfinfinnubannið skaðað afkamu þína? Norma MacUleave húsmóðir: Nei, alls ekki. Það hefur ekki komið neitt við mig. Maðurinn minn er verktaki og er með ýmis stórverk sem taka lengri tíma þannig að bannið hefur ekki komið við mig eins og hjá daglaunamönnum. Einar B. Olafsson, vinnur hjá Hafrannsóknarstofnun. Eg er. nýkominn frá Sviþjóð og auk þess vinn ég hjá ríkisstofnun þannig að það hefur ekki haft áhrif á mig. Guðmundur Finnbogason verk- stjóri hjá Sildarsöltunarstöð Höfn í Hornafirði. Það hefur ekki haft áhrif á mína afkomu þar sem ég hef hvort sem er verið í frii undanfarið. Þorvaldur Þórarinsson verka- maður. Já. það hefur haft talsverð áhrif á mig. Laun ntín hafa minnkað um 10 þUsund á viku. Eg fæ lán hér og þar og hef verið i vandræðum. þannig að ég vona að þetta U'.vsist sent fyrst. I Sigurjón Hannesson rafvirki: Já. óneitanlega. Maður er blankur alla daga. Það er ekki hægt að veita sér það sem maður gat áður. Ég hef lagt niður skemmtanir og allan munað. Margrét Asmundsdóttir af- greiðslustúlka. Já. það hefur gert það. Tekjur hafa minnkað tölu- vert. sérstaklega munar um föstu- daginn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.